Milliliðurinn hraunar yfir þátt Kveiks, skoðar málsóknir og segir Eimskip hafa gert allt rétt

Fyr­ir­tækið GMS hefur sent frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar Kveiks um end­ur­vinnslu fyrrum flutn­inga­skipa Eimskips í Indlandi. Þar segir meðal ann­ars að Kveikur hafi sleppt því að ræða við þús­undir ánægðra starfs­manna í Alang.

Fréttamenn Kveiks eru í yfirlýsingu GMS sakaðir um upplýsingaóreiðu og falsfréttir í „illa rannsakaðri og villandi 30 mínútna heimildarmynd“ sem þjóni helst þeim tilgangi að fá háar áhorfstölur.
Frétta­menn Kveiks eru í yfir­lýs­ingu GMS sak­aðir um upp­lýs­inga­óreiðu og fals­fréttir í „illa rann­sak­aðri og vill­andi 30 mín­útna heim­ild­ar­mynd“ sem þjóni helst þeim til­gangi að fá háar áhorfs­tölur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eimskip var „heppið“ að finna kaup­anda að Laxfossi og Goða­fossi og gerði hár­rétt með því að hámarka sölu­verð­mæti skip­anna. Stjórn­endum Eimskips ætti að hrósa „fyrir að beita sér fyrir hags­munum fyr­ir­tæk­is­ins og hlut­hafa“ og þeir gerð­ust síður en svo brot­legir við lög.

Þetta segir í yfir­lýs­ingu frá GMS, fyr­ir­tæk­inu sem keypti öldnu flutn­inga­skipin tvö og seldi síðan áfram til end­ur­vinnslu­stöðva í Alang á Indlandi. GMS bregst þar við umfjöllun Kveiks um sölu skip­anna tveggja og end­ur­vinnslu­ferli þeirra, sem er nú á borði emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara eftir kæru frá Umhverf­is­stofnun. Fyr­ir­tækið seg­ist sjálft vera að skoða að ráð­ast í lög­sóknir í tengslum við umfjöllun Kveiks.

Eimskip sjálft baðst afsök­unar á því skipin hefðu endað í end­ur­vinnslu á ströndum Indlands, þar sem kröfur um aðbúnað starfs­manna og umhverf­is­á­hrif end­ur­vinnsl­unnar eru minni en í Evrópu. Í yfir­lýs­ingu félags­ins til Kaup­hallar 30. sept­em­ber sagð­ist Eimskip hafa „mátt gera rík­ari kröfur gagn­vart kaup­and­anum,“ í ljósi þess að skipin tvö voru komin til ára sinna.

Ásakanir um að flytja falsfréttir í pólitískum tilgangi

Alls enga afsök­un­ar­beiðni er að finna í yfir­lýs­ingu GMS, sem er ansi harð­orð. Frétta­menn Kveiks eru þar sak­aðir um upp­lýs­inga­óreiðu og fals­fréttir í „illa rann­sak­aðri og vill­andi 30 mín­útna heim­ild­ar­mynd“ sem þjóni þeim til­gangi að fá háar áhorfs­tölur með „svo­kall­aðri frétta­mennsku“ í „götu­blaða­stíl.“

Í yfir­lýs­ingu GMS eru athuga­semdir gerðar við margt sem fram kemur í þætti Kveiks og seg­ist fyr­ir­tækið raunar hafa afsannað sumar full­yrð­ingar í þætt­inum þegar það brást við umfjöllun BBC um aðstæður í end­ur­vinnslu­stöðv­unum í Alang, meðal ann­ars hvað varðar fjölda slysa á verka­mönnum og gæði heil­brigð­is­þjón­ustu á svæð­inu.

GMS segir að þáttur Kveiks sýni „aug­ljósa hlut­drægni“ í þá átt að styðja evr­ópskar end­ur­vinnslu­stöðvar sem starfa sam­kvæmt reglu­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins um skipa­end­ur­vinnslu og geri á móti lítið úr alþjóð­lega Hong Kong-samn­ingnum um örugga og umhverf­is­væna skipa­end­ur­vinnslu. Sá alþjóða­samn­ingur hefur ekki öðl­ast form­legt gildi.

„Vesturlönd gegn Indlandi“

GMS gagn­rýnir umfjöllun Kveiks um starfs­að­ferð­irnar við end­ur­vinnsl­una í Alang, sér í lagi umfjöllun um hina svoköll­uðu „þyngd­arafls­að­ferð“, sem lýsir sér þannig að skipin eru bútuð í sundur með gas­brenn­urum og látin falla undan eigin þyngd í flæð­ar­málið. Sú aðferð er ekki heim­iluð sam­kvæmt evr­ópskri lög­gjöf um skipa­end­ur­vinnslu.

Í yfir­lýs­ingu GMS segir að í þætt­inum sé lögð áhersla á að teikna þessa aðferð upp í slæmu ljósi, þegar raun­veru­leik­inn sé sá að um sé að ræða marg­reynda og próf­aða aðferð við nið­ur­rif skipa sem sé ekki ein­ungis notuð í SA-Asíu, heldur víðar. Þessi aðferð sé ekki mjög frá­brugðin þeim sem sé notuð til að rífa stór­hýsi á Vest­ur­löndum og sé þar kölluð „stýrt nið­ur­rif“ á máli fag­manna.

Ekki hafi verið talað við ánægðu starfsmennina

GMS segir að Kveiks-liðar hafi vilj­andi reynt að sýna ind­versku end­ur­vinnslu­stöðv­arnar í nei­kvæðu ljósi með því að greina ein­ungis frá nei­kvæðum upp­lif­unum eins óánægðs starfs­manns í Alang.

Á móti hafi frétta­menn­irnir látið undir höfuð leggj­ast að segja frá þeim þús­undum starfs­manna sem séu ánægðir með að hafa vinnu í þessum end­ur­vinnslu­stöðvum og hafi einnig ekki sagt frá því að verka­menn­irnir í Alang komi víða frá í Indlandi til þess að hljóta þessi „eft­ir­sóttu störf“, sem séu betur launuð en störf á þessu svæði eru alla jafna.

Einnig hafi Kveikur ekki sagt frá því að end­ur­vinnslu­stöðv­arnar hafi stutt vel við bakið á sínu starfs­fólki í COVID-19 far­aldr­inum þrátt fyrir að starf­semi hefði nán­ast lagst af – haldið áfram að borga þeim og veitt mat­ar­að­stoð.

Skoða meiðyrðamálsóknir

Heilt yfir þá sakar GMS Kveik um að ganga erinda frjálsra félaga­sam­taka í Evrópu sem fari harka­lega fram í bar­áttu sinni gegn skipa­end­ur­vinnslu á Indlandi, fyrir sinn eigin póli­tíska og per­sónu­lega ávinn­ing.

Fyr­ir­tækið seg­ist vera að skoða lög­sóknir vegna þess sem kemur fram í þætti Kveiks, þar sem „virt og vel þekkt“ vöru­merki GMS hafi vís­vit­andi verið dregið niður í svaðið.

Í lok yfir­lýs­ingar sinnar kvartar fyr­ir­tækið svo yfir því að fleiri aðilar í alþjóð­lega skipa­iðn­að­inum láti ekki í sér heyra, þegar „fölsk sjón­ar­horn“ um skipa­end­ur­vinnslu í Asíu séu sett fram.

GMS telur sig eitt vera að berj­ast með sann­leika og stað­reyndir að vopni gegn rangri umfjöllun og segir að það verði til þess að fyr­ir­tækið lendi efst á fórn­ar­lamba­lista þeirra sem séu stað­ráðnir í að vinna gegn alþjóð­lega Hong Kong-samn­ingnum og stöðva skipa­end­ur­vinnslu­iðn­að­inn í Indlandi og nær­liggj­andi löndum.

Fyr­ir­tækið hvetur aðra til þess að „rísa upp og láta í sér heyra!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár