Gömul skip Eimskips í endurvinnslu á Indlandi

Skipin Goðafoss og Laxfoss sem seld voru til fyr­ir­tæk­is­ins GMS í fyrra end­uðu í end­ur­vinnslu á Indlandi. Eimskip seg­ist ekki hafa tekið ákvörðun um að skipin yrðu sett í end­ur­vinnslu.

Skipið Goðafoss, sem endaði í endurvinnslu á Indlandi.
Skipið Goðafoss, sem end­aði í end­ur­vinnslu á Indlandi. Mynd: Eimskip

Eimskip sendi frá sér yfir­lýs­ingu fyrr í dag þar sem greint var frá sölu fyr­ir­tæk­is­ins á tveimur gáma­skipum í þeirra eigu í fyrra. Skipin, sem hétu Goðafoss og Laxfoss, voru sett í end­ur­vinnslu á Indlandi, en fyr­ir­tækið seg­ist ekki hafa tekið ákvörðun um það.

Til­kynn­ingin er send vegna fyr­ir­spurnar frá RÚV í tengslum við sölu og tíma­bundna end­ur­leigu Eimskips á gáma­skip­unum. RÚV spurð­ist einnig fyrir ákvörðun kaup­anda skip­anna á að setja þau í end­ur­vinnslu á Indlandi í sumar.

Kaup­and­inn var GMS, sem Eimskip segir vera við­ur­kenndan alþjóð­legan aðila og stærsta kaup­anda í heimi á not­uðum skipum. Skipin tvö voru orðin 25 ára gömul, en sam­kvæmt til­kynn­ing­unni hafði það legið fyrir að selja þau um leið og nýju skip félags­ins, Detti­foss og Brú­ar­foss, yrðu afhent.

Samhliða söl­unni, sem átti sér stað í des­em­ber í fyrra, gerði Eimskip samn­ing um að leigja gömlu skipin á meðan beðið var eftir þeim nýju. Sökum mark­aðs­að­stæðna hafi skip­unum hins vegar verið skilað á vor­mán­uðum, sem var fyrr en áætlað hafði verið. Eftir að þeim var skilað ákvað GMS að selja skipin í end­ur­vinnslu á Indlandi .

Eimskip tekur fram að félagið hafi ekki tekið ákvörðun um að skipin yrðu sett í end­ur­vinnslu, en seg­ist hafa fengið upp­lýs­ingar um að hún hafi átt sér stað hjá tveimur fyr­ir­tækjum sem starfa sam­kvæmt alþjóð­legum samn­ingum um örugga end­ur­vinnslu og hafi verið vott­aðar fyrir gæða­stjórnun, umhverf­is­stjórnun og vinnu­vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár