Kergja innan hluthafahóps Eimskips nær suðupunkti

Óánægja með fyr­ir­ferð stærsta eig­and­ans, drama­tík í kringum stjórn­ar­kjör og yfir­töku­skyldu sem var svo felld úr gildi og slök rekstr­ar­frammi­staða sem leiddi af sér fall á mark­aðsvirði Eimskips hafði leitt til kergju á meðal líf­eyr­is­sjóða.

Það hefur verið þung staða í hlut­hafa­hópi Eimskips lengi. Hvert málið hefur komið upp á fætur öðru þar sem óánægju hefur gætt meðal hluta stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins með fram­vindu mála. Í ofaná­lag hefur rekstur Eimskips ekki gengið sem skyldi og félagið rekið með umtals­verðu tapi á fyrri helm­ingi yfir­stand­andi árs.

Það er í þessu ljósi sem skoða verður þá stöðu sem teikn­að­ist upp eftir að Kveikur greindi frá því að tvö skipa Eimskips, Laxfoss og Goðafoss, hefðu verið seld í des­em­ber í fyrra til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­hæfir sig í að vera milli­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­ari en í Evr­­­ópu.

Þar eru skip oft rifin í flæð­­­ar­­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Ein helsta ástæðan fyrir því að skip eru flutt á þessar slóðir, í umræddu til­viki í skipa­kirkju­garð í Alang á Indlandi, er ekk­ert flókin, það er greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­ur­rif þar en í Evrópu. Það útskýrist af því að í Evrópu þarf að greiða laun sam­kvæmt kjara­samn­ingum, við­halda öryggi starfs­manna á vinnu­stöðum og mæta lög­gjöf frá árinu 2018 sem leggur bann við því að skip yfir 500 brúttó­tonnum séu rifin ann­ars staðar en í vott­uðum end­ur­vinnslu­stöðv­um.

Umhverf­is­stofnun hefur kært meint brot Eimskips á lögum um með­höndlun úrgangs til hér­að­sak­sókn­ara og málið rímar ekki við þær áherslur um sam­fé­lags­lega ábyrgð í fjár­fest­ingum sem stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa und­ir­geng­ist.

Þeir hafa allir kallað eftir skýr­ingum frá stjórn Eimskips og á grund­velli þeirra munu sjóð­irnir taka ákvörðun.

Við­mæl­endur Kjarnans segja tvo kosti blasa við ef stjórn Eimskips tekst ekki að sann­færa líf­eyr­is­sjóð­ina um að mála­til­bún­aður á hendur félag­inu byggi á sandi. Annars vegar geti líf­eyr­is­sjóðir, sem eiga yfir helm­ing hluta­bréfa í Eimskip, selt þau eða þeir geta beitt sér í gegnum eign­ar­hluta sinn í stjórn félags­ins, og kraf­ist þess að núver­andi stjórn­endur og stjórn­ar­menn axli ábyrgð á stöð­unni sem sé uppi.

Framundan er því, að óbreyttu, upp­gjör innan Eimskips.

Stærsti eigandinn með tögl og hagldir

Það hefur verið kergja innan hlut­hafa­hóps Eimskips allt frá því að Samherji Holding, annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, keypti um fjórð­ungs­hlut í Eim­­skip sum­arið 2018.

Í sept­em­ber sama ár var hald­inn hald­inn hlut­hafa­fundur til að kjósa nýja stjórn. Á þeim fundi tók Bald­vin Þor­­steins­­son, fram­­kvæmda­­stjóri við­­skipta­­þró­unar hjá Sam­herja og sonur Þor­­steins Más Bald­vins­­son­­ar, ann­ars for­­stjóra og eins helsta eig­anda Sam­herja, við sem stjórn­ar­for­maður og Guð­rún Blöndal var kjörin ný í stjórn. Þótt Guð­rún byði sig fram sem óháður stjórn­­­ar­­maður þá naut hún stuðn­­ings Sam­herja í starfið. Við­mæl­endur Kjarnans úr hlut­hafa­hópi Eimskips litu á þau bæði sem full­trúa Samherja í fimm manna stjórn félags­ins.

Í jan­úar 2019 var svo ráð­inn nýr for­stjóri Eimskips, Vil­helm Már Þor­­­steins­­­son. Hann er frændi stjórn­­­­­ar­­­for­­­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Sam­herja. Hluti líf­eyr­is­sjóð­anna í hlut­hafa­hópi Eimskips litu svo á að með þeirri ráðn­ingu væri Samherji að herða tök sín á félag­inu.

Baldvin Þorsteinsson er stjórnarformaður Eimskips en faðir hans, Þorsteinn Már Baldvinsson, hefur stýrt Samherja í áratugi. Mynd: Skjáskot
Baldvin Þor­steins­son er stjórn­ar­for­maður Eimskips en faðir hans, Þor­steinn Már Bald­vins­son, hefur stýrt Samherja í ára­tugi. Mynd: Skjáskot

Í lok mars 2019 fór fram aðal­fundur Eimskips. Þar tókst ekki að kjósa lög­mæta stjórn þar sem að sex stjórn­ar­menn höfðu sóst eftir fimm stjórn­ar­sætum. Sá sem bætt­ist nýr við var Óskar Magn­ús­son, sem gegnt hefur marg­s­­konar trún­­að­­ar­­störfum fyrir eig­endur Sam­herja í gegnum tíð­ina og situr í stjórn fjöl­marga félaga sem tengj­­ast sam­­stæð­unni.

Mánuði síðar náð­ist nið­ur­staða í það þrá­tefli þegar Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi for­stjóri HB Granda, dró fram­boð sitt í stjórn­inni til baka og eft­ir­lét Óskari sætið. Þá var Samherji, með sinn 27,1 pró­sent eign­ar­hlut, kom­inn form­lega með tvö af fimm stjórn­ar­sætum og einn stjórn­ar­maður til við­bótar sem naut óskor­aðs stuðn­ings sam­stæð­unnar til setu sem óháð sat þar líka.

Þessi atburða­rás lagð­ist ekki vel í marga aðra hlut­hafa.

Yfirtökuskyldan sem Samherji slapp við

Þriðju­dag­inn 10. mars síð­ast­lið­inn bætti Samherji Holding 3,05 pró­sent hlut við fyrri eign­ar­hlut sinn í Eimskip. Við kaupin fór heild­ar­eign Samherja yfir 30 pró­sent og yfir­töku­skylda mynd­að­ist sam­kvæmt lögum.

Ástæða þess er sú að þegar einn fjár­festir er far­inn að ráða yfir meira en 30 pró­sent í félagi þá eru tök hans á því orðin svo mikil að þær aðstæður geta skap­ast að hann geti tekið ákvarð­anir, og hrint þeim í fram­kvæmd, sem þjóna hags­munum fjár­fest­is­ins, ekki félags­ins eða ann­arra hlut­hafa. Því er um lyk­il­skil­yrði í lög­unum sem ætlað er að vernda minni hlut­hafa fyrir því að stórir fjár­festar geti valdið þeim skaða.

Tíu dögum síðar, 20. mars, hafði staðan í heim­inum breyst hratt. Hluta­bréfa­mark­aðir voru í frjálsu falli og hvert ríkið á fætur öðru var að loka landa­mærum sínum og hrinda í fram­kvæmd stór­felldum skerð­ingum á ferða­frelsi íbúa sinna, jafnt innan landamæra sem utan. Afleið­ingin var hrun í eft­ir­spurn eftir flest öllum vörum og þjón­ustum.

Þann dag sendi Samherji Holding Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands erindi þar sem félagið óskaði eftir að fá und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni sem hafði mynd­ast. Sú und­an­þágu­beiðni var rök­studd vegna þeirra „sér­stöku aðstæðna sem hefðu skap­ast á fjár­mála­mark­aði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verð­bréfa­við­skipti er fjár­mála­eft­ir­lit­inu veitt heim­ild til að veita slíka und­an­þágu ef sér­stakar ástæður mæla með því.“

Þremur dögum síðar seldi Samherji 2,93 pró­sent hlut í Eimskip. Sú sala gerði það að verkum að atkvæða­vægi Samherja í Eimskip fór niður í 29,99 pró­sent, eða í hæsta mögu­lega fjölda atkvæða sem halda má á án þess að mynda yfir­töku­skyldu.

Daginn eftir að Samherji seldi sig undir við­mið­un­ar­mörk ákvað Eimskip að fella afkomu­spá sína fyrir árið 2020 úr gildi vegna óvissunnar sem væri uppi vegna COVID-19.

Fjár­mála­eft­ir­litið sam­þykkti beiðni Samherja um að sleppa við yfir­töku­skyldu.

Við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði og innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins sögðu að mörgum fjár­festum þætti ákvörð­unin ótrú­leg. Svo virt­ist vera sem að hags­munir einnar fyr­ir­ferða­mik­illar sam­stæðu væru teknir fram fyrir hags­muni ann­arra hlut­hafa með því að „sleppa þeim af öngl­inum“ eins og einn við­mæl­andi orð­aði það. Hlut­hafar hafi verið full­færir til að taka þessa ákvörðun sjálfir og ákveða hvort að aðstæður köll­uðu eftir því að taka yfir­tökutil­boð­inu og hætta afskiptum að félag­inu, eða hafna því og halda áfram að vera í hlut­hafa­hópi þess á þeim krefj­andi tímum sem framundan eru.

Taprekstur

Í lok síð­asta mán­aðar birti Eimskip hálfs­árs­upp­gjör sitt. Þar kom fram að tekjur höfðu lækkað á milli ára þegar tíma­bilið var borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2019. Alls nam tapið á tíma­bil­inu 2,5 millj­ónum evra, rúm­lega 400 millj­ónir króna. Á sama tíma í fyrra var Eimskip rekið í 300 þús­und evru hagn­aði. EBITDA-hagn­aður, sem er hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­gjöld og skatta, dróst saman um 12,8 pró­sent. Vert er þó að taka fram að fjár­fest­ingar voru 4,4 millj­ónum evra meiri nú en á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 og tek­ist hefur að lækka launa­kostnað félags­ins um 10,5 pró­sent milli ára. Í upp­gjöri ann­ars árs­fjórð­ungs kom fram að nei­kvæðra áhrifa af COVID-19 gætti einna helst í ferða­þjón­ustu­tengdu dótt­ur­fé­lög­unum Sæferðum og Gáru. Þ.e. ekki í kjarna­starf­semi Eimskips.

Tap var á rekstri Eimskips á fyrri helmingi ársins 2020.
Tap var á rekstri Eimskips á fyrri helm­ingi árs­ins 2020.

Þessi staða hefur leitt til þess að hluta­bréf í Eimskip hafa hrunið í verði. Á árinu 2020 hafa þau lækkað um 30,7 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins nú er 24,7 millj­arðar króna. Í byrjun jan­úar náði það að vera 36 millj­arðar króna. Því hefur virði Eimskips lækkað um 11,3 millj­arða króna innan yfir­stand­andi árs.

Virði Eimskips reis hæst í lok nóv­em­ber 2016. Þá var mark­aðsvirðið 63,3 millj­arðar króna. Frá þeim tíma hefur mark­aðsvirðið hrunið um 38,6 millj­arða króna.

Þessi staða hefur valdið auk­inni kergju á meðal líf­eyr­is­sjóð­anna í eig­enda­hópnum. Þeir hafa það hlut­verk sam­kvæmt lögum að ávaxta fé sjóðs­fé­laga. Og fjár­fest­ing þeirra í Eimskip, félagi sem er að uppi­stöðu stýrt af stærsta eig­and­anum Samherja, er ekki að gera það.

Einu félögin sem skráð eru í Kauphöll sem hafa lækkað meira en Eimskip það sem af er ári eru þau sem hafa orðið harð­ast úti allra skráðra félaga vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þar er ann­ars vegar um að ræða Icelandair, sem hefur lækkað um 85,3 pró­sent, og fast­eigna­fé­lagið Reiti, sem hefur lækkað um 36,8 pró­sent. Icelandair hefur þegar farið í gegnum hluta­fjár­út­boð til að takast á við yfir­stand­andi stöðu, þar sem sóttir voru 23 millj­arðar króna, og Reitir greindu frá því í byrjun viku að hluta­fjár­út­boð þess, þar sem til stendur að sækja 5,1 millj­arð króna, fari fram 20. til 21. októ­ber.

Kæra til héraðssaksóknara

Staðan innan hlut­hafa­hóps Eimskips batn­aði ekki þegar Kveikur sýndi afrakstur margra mán­aða rann­sókn­ar­vinnu síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, í þætti sem fjall­aði um hvernig Eimskip hafði selt tvö skip til fyr­ir­tæk­is­ins GMS, og sér­hæfir sig í að vera milli­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­ur­rif í Asíu þar sem skip eru oft rifin í flæð­ar­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið, laun starfs­manna eru langt undir kjara­samn­ingum í Evrópu og vinnu­að­stæður svo erf­iðar að þær eru sagðar vera mann­rétt­inda­brot.

Fram­ferði Eim­skip hefur þegar verið kært til emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara af Umhverf­is­stofn­un. Eim­skip sendi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á föstu­dag þar sem félagið hafn­aði því að hafa brotið lög.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga meira en helm­ing í Eim­skip. Stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Birta eiga sam­tals 43,2 pró­sent í skipa­fé­lag­inu.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti eig­andi Eimskips og á alls 14,7 pró­sent hlut í Eimskip. Sjóð­ur­inn hefur und­an­farin ár lagt aukna áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. Er sjóð­ur­inn t.d. aðili að UN-PRI, sam­tökum á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem og FESTU-Sam­fé­lags­á­byrgð fyr­ir­tækja. Þar er málið til skoð­unar.

Gildi líf­eyr­is­sjóður er þriðji stærsti eig­andi Eimskips með 13,43 pró­sent eign­ar­hlut. Hann hefur und­an­farin ár lagt aukna áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. Í hlut­hafa­stefnu sjóðs­ins segir m.a.: „Gildi-líf­eyr­is­sjóður leggur áherslu á að þau félög sem hann fjár­festir í fylgi lög­boðnum og góðum stjórn­ar­háttum og gefi út full­nægj­andi stjórn­ar­hátta­yf­ir­lýs­ingar, standi vörð um rétt­indi hlut­hafa, fylgi lögum og reglum og gæti að sam­fé­lags­legri ábyrgð, umhverf­is­málum og við­skiptasið­ferði.“ Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði sjóð­ur­inn að „vinnu­brögðin sem lýst var í þætt­inum ríma illa við stefnu sjóðs­ins um ábyrgar fjár­fest­ingar.“ Málið yrði tekið til skoð­unar innan Gildis og sjóð­ur­inn biði eftir við­brögðum Eimskips.

LSR er fjórði stærsti eig­andi Eimskips. Sam­an­lagt eiga A og B-deildir sjóðs­ins 8,97 pró­sent í félag­inu. LSR hefur und­an­farin ár lagt aukna áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. Í áherslum hans, sem birtar eru á heima­síðu sjóðs­ins, segir m.a. að „mik­il­vægi sam­fé­lags­legs hlut­verks líf­eyr­is­sjóð­anna verði haft að leið­ar­ljósi í allri starf­semi þeirra.“

Sjóð­ur­inn hefur sagt að í kjöl­far umfjöll­unar Kveiks muni hann óska eftir skýr­ingum frá Eimskip vegna þess sem þar kom fram.

Rímar ekki við áherslum um samfélagslega ábyrgð

Birta líf­eyr­is­sjóður er á fimmti stærsti eig­andi Eim­skips með 6,1 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu. Sjóð­ur­inn er meðal ann­ars aðili að reglum Sam­ein­uðu þjóð­anna um ábyrgar fjár­fest­ingar (Principles for Responsi­ble Invest­ment). Þær eiga að vera leið­bein­andi fyrir stofn­ana­fjár­festa um allan heim og fela í sér að þátt­tak­endur skuld­binda sig til að taka til­lit til umhverf­is­legra og félags­legra þátta við fjár­fest­ingar sín­ar, auk þess sem lögð er áhersla á góða stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja sem fjár­fest er í. Sam­kvæmt því sem fram kemur á heima­síðu Birtu þykja regl­urnar því falla „al­mennt vel að hlut­verki og eðli líf­eyr­is­sjóða enda hafa þeir þýð­ing­ar­miklu sam­fé­lags­legu hlut­verki að gegna og almenn­ingur gerir kröfu um að þeir axli sam­fé­lags­lega ábyrgð.“

Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Birtu, var bein­skeyttur í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um það hvernig ætlað athæfi Eimskips pass­aði við skuld­bind­ingar Birtu um sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. „Sú kæra sem borist hefur frá Umhverf­is­stofnun til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna meintra brota Eim­skips á lögum um með­höndlun úrgangs rímar aug­ljós­lega ekki vel við áherslur okkar um sam­fé­lags­lega ábyrgð í fjár­fest­ing­um. Við lítum það mál að sjálf­sögðu mjög alvar­legum aug­um. Í okkar huga snýst málið ekki ein­göngu um sið­ferð­is­leg sjón­ar­mið í alþjóð­legum við­skiptum heldur hlít­ingu við lög og reglur sem er algjört grund­vall­ar­at­riði við mat á stjórn­ar­hátt­u­m.“

Hann sagði einnig að það væri hlut­verk stjórnar Eim­skips að upp­lýsa um málið. Ef ekki yrði orðið við því þyrfti „aug­ljós­lega að grípa til harð­ari aðgerða sem við höfum á þessu stigi ekki lagt mat á. Það mat mun byggja á fram­vindu máls­ins á næstu dögum og vik­um.“

Á borði eða bara í orði?

Málið er það fyrsta sem reynir virki­lega á að líf­eyr­is­sjóðir sem hafa skuld­bundið sig til að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð í fjár­fest­ingum geri það á borði, ekki bara í orði. Það er hins vegar vanda­samt verk fyrir sjóð­ina að grípa til aðgerða, telji þeir þörf á því.

Ef þeir myndu selja eign­ar­hlut sinn nú væru þeir að leysa hann út í tapi þar sem virði Eimskips und­an­farin miss­eri er það lægsta sem verið hefur frá því að félagið var skráð aftur á hluta­bréfa­markað eftir end­ur­skipu­lagn­ingu í jan­úar 2012. Virði bréfa nú er tæp­lega 60 pró­sent af skrán­ing­ar­gengi bréfa í félag­inu.

Hin leiðin sem hægt yrði að fara er sú að beita sér fyrir breyt­ingum á stjórn og stjórn­enda­teymi Eimskips.

Það myndi þýða beinni afskipti af stjórn skráðs félags en líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa viljað fram­kvæma á und­an­förnum árum, en þeir eru í dag, beint og óbeint, saman eig­endur að um helm­ingi allra skráðra hluta­bréfa í Kauphöll Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár