„Rímar augljóslega ekki við áherslur okkar um samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum“

Birta líf­eyr­is­sjóður segir það hlut­verk stjórnar Eimskipa að upp­lýsa um end­ur­vinnslu tveggja skipa félags­ins á Indlandi. Verði ekki orðið við því þurfi að grípa til „harð­ari aðgerða“.

„Sú kæra sem borist hefur frá Umhverf­is­stofnun til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna meintra brota Eimskips á lögum um með­höndlun úrgangs rímar aug­ljós­lega ekki vel við áherslur okkar um sam­fé­lags­lega ábyrgð í fjár­fest­ingum. Við lítum það mál að sjálf­sögðu mjög alvar­legum augum. Í okkar huga snýst málið ekki ein­göngu um sið­ferð­is­leg sjón­ar­mið í alþjóð­legum við­skiptum heldur hlít­ingu við lög og reglur sem er algjört grund­vall­ar­at­riði við mat á stjórn­ar­háttum.“

[links]Þetta segir Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Birtu líf­eyr­is­sjóðs, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, en Birta er fimmti stærsti eig­andi Eimskips með 6,1 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu. Tilefni fyr­ir­spurn­ar­innar var umfjöllun frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks á fimmtu­dag þar sem greint var frá end­­ur­vinnslu tveggja skipa, Laxfoss og Goðafoss, í skipa­n­ið­­ur­rifs­­stöð í Ind­landi sem upp­­­fyllir ekki evr­­ópskar reglur um end­­ur­vinnslu skipa.

Skipin tvö voru seld í des­em­ber í fyrra til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­hæfir sig í að vera milli­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­ur­rifs­ins eru mun lak­­ari en í Evr­­ópu. Þar eru skip oft rifin í flæð­­ar­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Lax­foss og Goða­­foss voru flutt í skipa­­kirkju­­garð­inn í Alang á Ind­landi í maí síð­­ast­liðn­­­um. Í þætti Kveiks kom fram að ein af ástæðum fyrir því að þetta þætti eft­ir­­sókn­­ar­vert væri sú að í Asíu sé greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­­ur­rif en í Evr­­ópu. Að minnsta kosti 137 starfs­­menn í Alang hafa lát­ist við störf síð­­ast­lið­inn ára­tug, sam­­kvæmt því sem kom fram í Kveik.

Lífeyrissjóðir eiga meira en helming

Fram­ferði Eimskip hefur þegar verið kært til emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara af Umhverf­is­stofnun. Eimskip sendi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á föstu­dag þar sem félagið hafn­aði því að hafa brotið lög.

Stærsti eig­andi Eimskips er Samherji Holding, annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem heldur utan um erlenda starf­semi hennar og eign­ar­hlut­inn í Eim­skip, með 27,06 pró­sent hlut. Stjórn­ar­for­maður Eim­skips er Bald­vin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Sam­herja.

[adspot]Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga hins vegar meira en helm­ing í Eim­skip. Stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Birta eiga sam­tals 43,2 pró­sent í skipa­fé­lag­inu. Kjarninn greindi frá því að þrír stærstu sjóð­irnir séu allir með vinnu­brögð Eimskips í mál­inu til skoð­unar, enda hafa þeir allir und­ir­geng­ist kvaðir um að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð í fjár­fest­ingum sínum, sem efni þáttar Kveiks rímar illa við.

Stjórn Eimskips þarf að upplýsa um málið

Birta hefur einnig sett sér slíka stefnu. Sjóð­ur­inn er meðal ann­ars aðili að reglum Sam­ein­uðu þjóð­anna um ábyrgar fjár­fest­ingar (Principles for Responsi­ble Invest­ment). Þær eiga að vera leið­bein­andi fyrir stofn­ana­fjár­festa um allan heim og fela í sér að þátt­tak­endur skuld­binda sig til að taka til­lit til umhverf­is­legra og félags­legra þátta við fjár­fest­ingar sínar, auk þess sem lögð er áhersla á góða stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja sem fjár­fest er í. Samkvæmt því sem fram kemur á heima­síðu Birtu þykja regl­urnar því falla „almennt vel að hlut­verki og eðli líf­eyr­is­sjóða enda hafa þeir þýð­ing­ar­miklu sam­fé­lags­legu hlut­verki að gegna og almenn­ingur gerir kröfu um að þeir axli sam­fé­lags­lega ábyrgð.“

Í svari fram­kvæmda­stjóra Birtu við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að sjóð­ur­inn hafi ekki þær rann­sókn­ar­heim­ildir sem þarf til að kom­ast að nið­ur­stöðu í mál­inu. „Á meðan svona mál eru í rann­sókn er nálgun okkar gagn­vart skráðum fyr­ir­tækjum, jafn­ræði hlut­hafa í upp­lýs­inga­gjöf. Við gerum þannig ráð fyrir að félagið muni upp­lýsa mark­að­inn um málið og fylgja því jafn­ræð­is­sjón­ar­miði eftir því sem mál­inu vindur fram. Þótt Birta telj­ist til stærri hlut­hafa í Eim­skipum höfum við ekki greið­ari aðgang að upp­lýs­ingum en aðrir hlut­hafar. Það er því hlut­verk stjórnar Eimskipa að upp­lýsa um málið og verði ekki orðið við því þarf aug­ljós­lega að grípa til harð­ari aðgerða sem við höfum á þessu stigi ekki lagt mat á. Það mat mun byggja á fram­vindu máls­ins á næstu dögum og vikum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár