Bein útsending frá vitnisburði James Comey

Yfirheyrsla yfir James Comey, fyrr­verandi forstjóra FBI, hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Horfðu á beina útsendingu frá yfir­heyrsl­unni hér.

James Comey, fyrr­verandi forstjóri bandarísku alríkis­lögreglunnar FBI, kemur fyrir þingnefnd öldungar­deildar Banda­ríkjaþings í dag klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Hér að ofan er bein útsending frá yfirheyrslunni á YouTube.

Comey verður eiðsvarinn og svarar spurningum þingmanna um afskipti Donalds Trump, forseta Banda­ríkjanna, af rannsókn lögreglu­yfirvalda á Michael Flynn, fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafa í stjórn Trumps.

Comey birti í gær skriflega lýsingu á því sem henn kemur til með að ræða um í yfirheyrslu þingsins í dag. Þar kemur fram að Trump hafi haft bein afskipti af rannsókn FBI og farið fram á að hún yrði látin niður falla.

„Ég vona að þú get­ir séð þér fært að sleppa þessu og látið Flynn vera. Hann er góður ná­ung­i,“ seg­ir Comey að Trump hafi sagt. Einnig: „For­­set­inn sagð­i, „Ég þarf holl­ustu, ég býst við holl­­ust­u.“ Ég hreyfði mig ekki og tal­aði hvorki né breytti and­lits­­svipn­um mín­um á nokk­urn máta, í þeirri vand­ræð­al­egu þögn sem síðan fylgd­i.“

Nánar má lesa um skriflega lýsingu Comey hér á vefnum.

Comey segist hafa skrifað samvisku­samlega hjá sér ágrip af fundum sínum með forsetanum. Hann mun meðal annars ræða þau minnis­blöð í yfirheyrslunni.

Alvarlegar ásakanir

Allar vísbendingar benda til þess að Donald Trump hafi gerst sekur um að hindra framgang rétt­vísinnar. Frétta­skýrendur og álits­gjafar vestanhafs hafa tekið sterkt til orða þegar ásökunum er lýst og segja sumir Watergate-málið svokallaða sem kom upp á áttunda áratug síðustu aldar blikna í saman­burði.

Comey mun að öllum líkindum ekki geta sagt margt um rann­sóknina sjálfa eða þau tengsl sem alríkis­lögreglan rannsakar nú á milli kosninga­baráttu Donalds Trump og Rússa. Comey mun hins vegar gefa innsýn í samskipti sín við forsetann sem rak hann úr stöðu yfirmanns FBI.

Trump tvítar

Gert er ráð fyrir að Donald Trump muni fylgjast með yfirheyrslunni á skrif­stofu sinni og að hann muni tjá hug sinn á meðan yfirheyrslunni stendur. Hér má lesa Twitterskilaboð Trumps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár