Trump segist hafa verið búinn að ákveða að reka Comey fyrir löngu

Donald Trump Bandaríkja­forseti var í viðtali við NBC í gærkvöldi og fullyrti þar margt sem hefur vakið upp spurningar.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump Bandaríkja­forseti sagði í viðtali við NBC í gær að hann hefði verið búinn að ákveða að reka James Comey, yfirmann alríkis­lögreglunnar FBI, „fyrir löngu“ og að rökstutt álit frá dómsmála­ráðuneyti Jeff Sessions hefði ekki ráðið úrslitum.

Alríkis­lögreglan FBI segir að rannsókn á tengslum framboðs Trumps við Rússa, í aðdrag­anda forseta­kosninganna í fyrra, sé í fullum gangi. Skömmu áður en Comey var rekinn óskaði FBI eftir frekari fjár­veitingu til að sinna verkefnum sem tengdust rannsókn á tengslum Rússa við framboð Trumps.

Trump held­ur því fram að banda­ríska al­rík­is­lög­regl­an (FBI) sé ekki að rann­saka hann og hans mál­efni. FBI hefur ekki staðfest það hins vegar. Hann seg­ir að James Comey, fyrr­ver­andi yf­ir­maður FBI, sem Trump rak í vik­unni, hafi verið „at­hygl­is­sjúk­ur“.

Comey stýrði rann­sókn á af­skipt­um Rússa af banda­rísku for­seta­kosn­ing­un­um og hvort mögu­lega hafi verið tengsl á milli lyk­ilmanna í fram­boði Trumps og rúss­neskra yf­ir­valda meðan á kosn­inga­bar­átt­unni stóð.

Á meðal þeirra sem vitað er að áttu reglulega fundi með Rússum í aðdrag­anda kosninganna í fyrra voru Michael Flynn, sem hætti sem þjóðar­öryggis­ráðgjafi Trumps eftir 20 daga í embætti, og Jeff Sessions dómsmála­ráðherra. Hann hitti Sergey Kislyak, sendi­herra Rússa í Washington, í tvígang í fyrra, en eiðsvarinn frammi fyrir þingnefnd hafði hann haldið öðru fram.

Trump seg­ir að rann­sókn­in sé ekk­ert annað en sýnd­ar­mennska. Það er þó þvert á það sem Andrew McCabe, starafndi yfirmaður FBI, lét hafa eftir sér í gær, og sagði rann­sóknina vera mikilvæga og í gangi þessi misserin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár