Trump búinn að reka yfirmann FBI

Dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, Jeff Sessions, bað Donald Trump um að reka yfirmann FBI. Það hefur hann nú gert.

Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, mælti með því að yfirmaður FBI yrði rekinn. Sessions hefur sjálfur verið til rannsóknar hjá FBI.
Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, mælti með því að yfir­maður FBI yrði rek­inn. Sessions hefur sjálfur verið til rann­sóknar hjá FBI. Mynd: EPA.

James B. Comey hefur verið rekinn sem yfirmaður alríkis­lögreglunnar FBI. Þetta staðfesti Sean Spicer, talsmaður Hvíta hússins, í dag, að því er fram kemur á vef New York Times. Það var Donald J. Trump Bandaríkja­forseti sem rak hann eftir að hafa fengið ósk um það frá dómsmála­ráðherranum, Jeff Sessions.

Sessions er sjálfur til rann­sóknar af hálfu FBI vegna tengsla hans við Rúss í aðdrag­anda kosninganna í Banda­ríkjunum í nóvember í fyrra. Hann laug því að Banda­ríkjaþingi, eiðsvarinn, að hann hefði ekki átt í neinum samskiptum við Rússa í aðdrag­anda kosninga, en gögn sem leyni­þjónustan CIA og alríkis­lögreglan FBI bjuggu yfir, staðfestu að hann hefði fundað með sendi­herra Rússlands, Sergey Kislyak, í Washington í tvígang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár