Trump þrýsti á Comey um að hætta rannsókn og krafðist „hollustu“

Yfir­lýsing frá Comey hefur verið birt. Hann kemur fyrir þingnefnd öldunga­deildar Banda­ríkjaþings á morgun.

James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara nýverið.
James Comey var for­stjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara nýverið. Mynd: EPA

James Comey, fyrr­verandi forstjóri FBI, seg­ir að Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, hafa brýnt fyr­ir sér að hætta rann­sókn á þáver­andi þjóðarör­ygg­is­ráðgjafa sín­um, Michael Flynn, og þrýst á um að rannsókn á Rúss­lands­tengingum hans hætt. Flynn hætti sem þjóðar­öryggis­ráðgjafi eftir 20 daga í því starfi, þar sem hann hafði ekki upplýst Trump og Mike Pence, vara­forseta, um að hann hefði rætt viðskipta­þvinganir Banda­ríkjanna gagnvart Rússum á fundi hans með Sergey Kislyak, sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum.

„Ég vona að þú get­ir séð þér fært að sleppa þessu og látið Flynn vera. Hann er góður ná­ungi,“ seg­ir Comey að Trump hafi sagt, samkvæmt yfir­lýsingu sem birt hefur verið, en hún er eins konar skrifleg lýsing á því sem Comey ætlar að koma til skila í opinni yfirheyrslu fyrir njósna­nefnd öldungar­deildar Banda­ríkjaþings á morgun. „For­set­inn sagði, „Ég þarf holl­ustu, ég býst við holl­ustu.“ Ég hreyfði mig ekki og talaði hvorki né breytti and­lits­svipn­um mín­um á nokk­urn máta, í þeirri vand­ræðal­egu þögn sem síðan fylgdi,“ seg­ir Comey í yfir­lýsingunni.

Hann segist hafa lagt sig fram um það, að hald nákvæmum minnis­blöðum um fundi hans, sem hann skrifaði um leið og fundum þeirra tveggja lauk.

Comey segir að Trump sjálfur, hafi þrýst á um að það kæmi fram opinber­lega, að hann væri ekki til rann­sóknar vegna Rúss­lands­tenginga. Comey segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki verið það, á þeim tíma­punkti í rann­sókninni, þá hafi hann einungis sagt, að hann myndi fyrst og síðast fá heiðarleg svör frá honum við spurningum sem hann gæti svarað. 

Trump rak Comey úr starfi, eftir að hafa fengið rökstuðning þess efnis frá Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra, en hann er einn þeirra sem einnig er til rann­sóknar vegna tenginga við Rússa í aðdrag­anda kosninga í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár