Comey kemur fyrir þingnefnd í dag

Helstu atriðin úr vitnis­burði James Comey, fyrr­verandi forstjóri alríkis­lögreglunnar FBI, voru birt í gær, en Comey skilaði inn skrif­legum atriðum um samskipti sín og Bandaríkja­forseta í gær.

James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara nýverið.
James Comey var for­stjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara nýverið. Mynd: EPA

Rann­sóknarnefnd öldunga­deildar Banda­ríkjaþings birti í gærkvöldi yfir­lýsingu James Comey, fyrr­verandi forstjóra bandarísku alríkis­lögreglunnar FBI, sem hann hyggst gefa fyrir nefndinni á í dag. Yfirheyrslan hefst um klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Eins og fram kom á vef Kjarnans í gær, þá seg­ir Comey í yfir­lýsingunni - sem er eins og konar skrif­legur vitnis­burður hans um samskipti hans við Donald Trump - að Banda­ríkja­for­seti hafi brýnt fyr­ir sér að hætta rann­­sókn á þáver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa sín­um, Mich­ael Flynn, og þrýst á um að rann­sókn á Rúss­lands­teng­ingum hans hætt. Flynn hætti sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi eftir 20 daga í því starfi, þar sem hann hafði ekki upp­lýst Trump og Mike Pence, vara­for­seta, um að hann hefði rætt við­skipta­þving­anir Banda­ríkj­anna gagn­vart Rússum á fundi hans með Sergey Kis­lyak, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um.

„Ég vona að þú get­ir séð þér fært að sleppa þessu og látið Flynn vera. Hann er góður ná­ung­i,“ seg­ir Comey að Trump hafi sagt, sam­kvæmt yfir­lýs­ingunni. „For­­set­inn sagð­i, „Ég þarf holl­ustu, ég býst við holl­­ust­u.“ Ég hreyfði mig ekki og tal­aði hvorki né breytti and­lits­­svipn­um mín­um á nokk­urn máta, í þeirri vand­ræð­al­egu þögn sem síðan fylgd­i,“ seg­ir Comey í yfir­lýs­ing­unni.

Yfirheyrsla Comeys er stór viðburður í Banda­ríkjunum, en reiknað er með því að tugir milljóna manna muni horfa á beina útsendingu þegar hann mun svara spurningum nefndar­manna.

Comey segir að Trump sjálf­ur, hafi þrýst á um að það kæmi fram opin­ber­lega, að hann væri ekki til rann­sóknar vegna Rúss­lands­teng­inga.

Comey segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki verið það, á þeim tíma­punkti í rann­sókn­inni, þá hafi hann ein­ungis sagt, að hann myndi fyrst og síð­ast fá heið­ar­leg svör frá honum við spurn­ingum sem hann gæti svar­að.

Trump rak Comey úr starfi, eftir að hafa fengið rök­stuðn­ing þess efnis frá Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra, en hann er einn þeirra sem einnig er til rann­sóknar vegna teng­inga við Rússa í aðdrag­anda kosn­inga í fyrra.

Rann­sóknir FBI, leyni­þjónustunnar CIA og tveggja þing­nefnda Banda­ríkjaþings, eru enn í fullum gangi og ekki ljóst hvenær þeim mun ljúka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár