Christopher Wray nýr forstjóri FBI

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna útnefndi Christopher Wray sem nýjan forstjóra alríkis­lögreglu Banda­ríkjanna á twitter

Christopher Wray er til vinstri á myndinni.
Christopher Wray er til vinstri á mynd­inni. Mynd: EPA

Trump hefur skipað Christopher Wray sem nýjan formann Alríkisrögreglu Banda­ríkjanna. Þetta tilkynnti forseti banda­ríkjanna fyrr í dag á twitter.

Wray þykir öruggt val, en hann var aðstoðar­ríkis­saksóknari undir George W. Bush. Don­ald Trump rak James Comey, fyrr­verandi forstjóri FBI, eftir að hafa fengið minn­is­blað í hendur frá dóms­mála­ráðu­neyti Jeff Sessions, þar sem mælt var með því að hann yrði lát­inn fara. 

Was­hington Post greindi síðar frá því, að í minn­is­blaði Comey, af fundi hans með Trump, 14. febr­úar á þessu ári, kæmi fram að Trump hafi beðið hann um að hætta rann­sókn á fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjaf­anum Michael Flynn, og tengslum hans við Rússland, en hann hætti störfum eftir 20 daga í emb­ætti, 13. febr­ú­ar.

James Comey mun koma fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings og gefa skýrslu síðdegis á morgun, m.a. um samskipti sín við Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár