Heimild til að slíta félögum sett í lög 2016 – Fyrsta tilkynning send út 2022

Fyrir helgi sendi Skatturinn í fyrsta sinn út tilkynningar til 58 félaga sem hafa ekki skilað inn ársreikn­ingum þar sem boðuð eru slit á þeim. Lögin voru sett árið 2016 en ráðherra undir­ritaði ekki reglugerð sem virkjaði slita­ákvæðið fyrr í haust.

Ársreikninga­skrá Skattsins sendi á föstudag tilkynningu til 58 félaga sem hafa ekki skilað inn ársreikningi um að ef reikningi verði ekki skilað innan fjögurra vikna muni stofnunin nýta heimild til að láta slíta þeim. Í tilkynningunni segir að engir frekari frestir verði veittir og ef reikningar berist ekki mun krafa um skipti á búi viðkomandi félags verða send til héraðs­dóms.

Samkvæmt minnis­blaði um framkvæmd þessa sem Skatturinn hefur birt á heimasíðu sinni þá er tilkynning send til félaga sem hafa ekki skilað inn ársreikningi innan sex mánaða frá því að frestur til skila rann út.

Lög­­bund­inn frestur til að skila inn árs­­reikn­ingi er fyrir lok ágúst mánaðar hvert ár. ­Stærri félög fá þó lengri frest og eiga að skila fyrir lok sept­em­ber­mán­að­ar. Alls skil­uðu 56 pró­­sent þeirra 42.625 félaga sem eru skila­­skyld reikn­ingnum á réttum tíma á síðasta ári.

Félög fá átta mánuði til að skila reikningi eftir að frestur rennur út, og fá tilkynningu frá Skattinum um möguleg slit sex mánuðum eftir það. Því þurfa að vera liðnir 14 mánuðir frá því að skila­frestur rann út þar til að tilkynning um slit er send.

Því liggur fyrir að tilkynningarnar sem Skatturinn sendi út fyrir helgi séu vegna vanskila á eldri reikningum en vegna ársins 2020.

Lág sekt og heimild til slita sem var ekki virkjuð

Það hefur lengi verið vanda­­­mál að fá íslensk félög til að skila árs­­­reikn­ingum inn til Skatts­ins á réttum tíma. Árið 2007 höfðu ein­ungis 15,4 pró­­­sent félaga í land­inu sem áttu að skila inn árs­­­reikn­ingi gert það á réttum tíma.

Árið 2016 voru inn­­­­­leidd í lög við­­­ur­lög við því að skila ekki inn árs­­­reikn­ingi innan setts ramma. Ann­­­ars vegar átti að vera hægt að sekta félög um 600 þús­und krónur ef þau skil­uðu ekki innan átta mán­aða og hins vegar átti að vera hægt að slíta þeim ef árs­­­reikn­ingar hefðu enn ekki borist sex mán­uðum eftir að átta mán­aða frest­­­ur­inn rann út, eða 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lauk.

Fyrir flest félög er 600 þús­und króna sekt ekki erfið við­­ur­­­­eignar og því lá ljóst fyrir að hótun um slit á félagi myndi virka sem meiri hvati til skila en sekt­­­ar­greiðsl­­­an.

Kjarninn greindi frá því í ágúst að Skatt­ur­inn hefði svarað því til, eftir fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið, að heimildinni til að slíta félögum hefði aldrei verið beitt. Ástæðan væri sú að í lög­unum komi fram að ráð­herra eigi að setja „nán­ari fyr­ir­mæli um með­ferð slíkra mála hjá árs­reikn­inga­skrá í reglu­gerð. Sú reglu­gerð hafði ekki verið sett þrátt fyrir að rúmlega fimm ár væru liðinn frá því að lögin tóku gildi.

Þetta ákvæði þeirra var því dauður stafur í allan þann tíma.

Á sjötta ár liðið

Eftir umfjöllun Kjarnans um málið komst hreyfing á það og í september birti sá hluti atvinnuvega­ráðuneytisins, sem Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir stýrði á þeim tíma, drög að reglu­gerð­inni í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Ákvæðið varð virkt 18. októ­ber 2021, eftir að reglu­gerðin var loks gefin út.

Kjarn­inn greindi frá því 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að árs­­reikn­inga­­skrá hefði þá enn sem komið er ekki kraf­ist skipta neinu félagi sem hefði ekki skilað árs­­reikn­ingi innan lög­­­boð­ins frests.

Það hefur nú breyst, þegar á sjötta ár er liðið frá því að lögin tóku gildi.

Eitt stærsta fyrirtæki landsins skilaði ekki reikningum

Ástæða þess að Kjarn­inn spurð­ist fyrir um málið er að eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, Sam­herji Holding, hafði ekki skilað árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2019 þrátt fyrir að hafa átt að gera það á árinu 2020. Það ár fengu félög viðbótar­frest til að skila ársreikningi fram í byrjun október, vegna kórónu­veiru­faraldursins.

Til að átta sig á stærðar­gráðu fyrir­tækisins, sem heldur utan um erlenda starfsemi Samherja­samstæðunnar og eign hennar í Eimskip, þá var eigið fé þess, munurinn á eignum og skuldum, 61,3 millj­arða króna í lok árs 2020. Það hefur án efa aukist umtals­vert á síðasta ári, en eignar­hluturinn í Eimskip nánast tvöfaldaðist í virði á árinu 2021.

Á meðal þess sem er vistað inni í Sam­herja Holding er Namib­íu­starf­semi Sam­herja, sem er til umfangs­mik­illar rann­sóknar hér­lendis vegna meintra mútu­greiðslna, pen­inga­þvættis og skatta­snið­göng­u.

Samkvæmt öllu hefði 14 mánaða frestur Samherja Holding til að skila inn ársreikningi vegna ársins 2019 átt að renna út seint á síðasta ári, eftir að reglu­gerðin sem heimilaði slit félaga sem ekki skila varð virk.

Samherji Holding skilaði loks ársreikningum vegna áranna 2019 og 2020 þann 30. desember. Þeir voru undir­ritaðir með fyrirvara vegna óvissu „um mála­rekstur vegna fjár­hags­legra uppgjöra sem tengj­ast rekstr­inum í Namib­íu.“ Sá fyr­ir­vari var gerður bæði af stjórn Sam­herja Holding, sem sam­þykkti árs­reikn­ing­inn á aðal­fundi sínum í lok desember, og end­ur­skoð­anda félags­ins.

Hægt er að lesa ítarlega umfjöllun Kjarnans um ársreikningana hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár