Helstu eigendur Samherja Holding eru Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.
Helstu eig­endur Samherja Holding eru Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son. Mynd: Samsett

Ársreikningur Samherja Holding undirritaður með fyrirvara – Óvissa um fjárhagsleg uppgjör vegna Namibíumáls

Samherji Holding, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem hélt utan um Namib­íu­starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, hefur birt valdar upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingi sínum. Þar segir að reikn­ing­ur­inn sé und­ir­rit­aður með fyr­ir­vara end­ur­skoð­anda.

Í dag voru birtar valdar upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingi Samherji Holding, félags sem heldur utan um þorra erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, fyrir árið 2020 áheima­síðu Samherja. Félagið, sem er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, hefur þó ekki skilað árs­reikn­ingum fyrir árin 2019 og 2020 inn til árs­reikn­ing­ar­skráar Skatts­ins.

Samkvæmt lögum eiga félög með heim­il­is­festi á Íslandi að skila slíkum inn fyrir lok ágúst­mán­aðar á ári hverju. Því eru um 15 mán­uðir frá því að 2019-reikn­ingur Samherja Holding átti að ber­ast.

Á meðal þess sem er vistað inni í Samherja Holding er Namib­íu­starf­semi Samherja, sem er til umfangs­mik­illar rann­sóknar hér­lendis vegna meintra mútu­greiðslna, pen­inga­þvættis og skatta­snið­göngu.

Í til­kynn­ingu á heima­síðu Samherja vegna birt­ingar á upp­lýs­ing­unum segir að hagn­aður Samherja Holding hafi verið 4,3 millj­arðar króna á síð­asta ári, miðað við árs­loka­gengi evru. Árið 2019, þegar Namib­íu­málið kom upp, var hagn­að­ur­inn 218 millj­ónir króna.

Eignir Samherja Holding dróg­ust saman á síð­asta ári um 6,5 millj­arða króna og voru 91,3 millj­arðar króna í lok árs 2020. Ekki er útskýrt sér­stak­lega af hverju þetta gerð­ist en í til­kynn­ing­unni kemur fram að útgerð félags­ins í Namibíu hafi verið aflögð og flokk­ist nú sem slík í árs­reikn­ingnum.

Eigið fé, mun­ur­inn á eignum og skuldum, var 61,3 millj­arða króna fyrir ári síðan.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að fyr­ir­vari sé gerður við árs­reikn­ing­inn vegna óvissu „um mála­rekstur vegna fjár­hags­legra upp­gjöra sem tengj­ast rekstr­inum í Namibíu.“ Sá fyr­ir­vari er gerður bæði af stjórn Samherja Holding, sem sam­þykkti árs­reikn­ing­inn á aðal­fundi sínum í gær, og end­ur­skoð­anda félags­ins.

Skipt upp í tvennt

Á árinu 2018 gerð­ist það að Sam­herja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­­em­ber 2017.

Eftir það er þorri inn­­­­­­­lendrar starf­­­­sem­i Sam­herja og starf­­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­­sem­i og hluti af fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­starf­­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf.

Sam­herji Holding er að upp­i­­­stöðu í eigu Þor­­steins Más Bald­vins­sonar, Helgu S. Guð­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­konu hans og Krist­jáns Vil­helms­­son­­ar, útgerð­ar­stjóra Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar. Inni í þeim hluta starf­­sem­innar eru eign­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­­­ur­­­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­­­­­fest­inga­­­­fé­lagi á Ísland­i. Þar eru þó einnig íslenskir hags­mun­ir, meðal ann­­ars 34,22 pró­­sent hlutur í Eim­­skip, sem hefur rúm­­lega tvö­­fald­­ast í virði síð­­ast­liðið ár.

Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Bald­vin Þor­­steins­­son, sonur Þor­­steins Más og Helgu, hafi verið falið að leiða útgerð­­ar­­starf­­semi Sam­herja í Evr­­ópu, sem fer fram í gegnum Sam­herja Holding.

Inni í þeim hluta er líka fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­­­ur­­­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­­­festi á Kýp­­­ur. Þau félög héldu meðal ann­­­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­­­íu, þar sem sam­­­stæðan og stjórn­­­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­­­ast yfir ódýran kvóta.

Frestur til að skila inn ársreikningi löngu liðinn

Sam­herji Holding hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi til árs­reikn­inga­skrár Skatts­ins vegna áranna 2019 og 2020. Karl Eskil Páls­­son, upp­­lýs­inga­­full­­trúi Sam­herja, sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í sept­em­ber síð­ast­liðnum að vinna við árs­reikn­ing vegna árs­ins 2019 væri á loka­­metr­unum og hann yrði til­­­bú­inn „innan tíð­­ar“.

Ýmsar sam­verk­andi ástæður væru fyrir því að skil á reikn­ingn­um, sem átti sam­­kvæmt lögum að vera skilað inn til árs­­reikn­inga­­skrár fyrir lok ágúst í fyrra, hefðu taf­ist og Karl Eskill nefndi þar sér­­stak­­lega að Sam­herji Holding hafi tekið þá ákvörðun að skipta um end­­ur­­skoð­un­­ar­­fyr­ir­tæki. Það hafi þýtt tafir á gerð árs­­reikn­ings. „Aðrar ástæður eru létt­væg­­ari en skipta þó máli til dæmis ferða­tak­­mark­­anir vegna Covid-19, sum­­­ar­­leyfi og þess hátt­­ar.“

Í til­kynn­ing­unni á heima­síðu Samherja í dag eru þó aðrar ástæður gefnar. Þar segir að óvissa vegna Namib­íu­starf­sem­innar og fjár­hags­legra áhrifa hennar hafi „valdið þeim drætti sem orðið hefur á gerð árs­reikn­ing­anna en stjórnin taldi mik­il­vægt að freista þess að fá sem gleggstar upp­lýs­ingar um þessa þætti áður en gengið yrði frá frá reikn­ing­unum.“

Frestur fyr­ir­tækja af þeirri stærð­argráðu sem Sam­herji Holding er til að skila inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2020 rann út í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Ákvæði sem heim­ilar slit á félögum sem sinna ekki lög­­­bund­inni skila­­­skyldu á árs­­­reikn­ingum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarn­inn greindi frá því í haust að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðu­­­neyti sem stýrir mála­­­flokkn­um,, sá hluti atvinn­u­­­vega- og nýsköp­un­­­ar­ráðu­­­neyt­is­ins sem heyrir undir Þór­­­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­­­ur, hafi ekki gefið út reglu­­­gerð sem virkjar það.

Því hafði ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á árs­­­reikn­ingi að vettugi hafði fyrir vikið verið slit­ið.

Ákvæðið varð virkt 18. októ­ber 2021, eftir að reglu­gerðin var loks gefin út.

Kjarn­inn greindi frá því 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að árs­­reikn­inga­­skrá hefði þá enn sem komið er ekki kraf­ist skipta neinu félagi sem hefði ekki skilað árs­­reikn­ingi innan lög­­­boð­ins frests.

Vildu við­halda mik­il­vægum fjöl­skyldu­tengslum

Þann 15. maí 2020 birt­ist til­­kynn­ing á heima­­síðu Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar um að Þor­­steinn Már, Helga og Krist­ján væru að færa næstum allt eign­­ar­hald á Sam­herja hf. til barna sinna. Þau myndu hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eim­­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í Sam­herja Holding.

Í til­­kynn­ing­unni kom fram að Bald­vin og Katla Þor­steins­börn myndu eign­­ast 43 pró­­sent í Sam­herja hf. Sam­hliða var greint frá því að Dagný Linda, Hall­­­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín, börn Krist­jáns Vil­helms­­son­­ar, myndu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­­­sent hluta­fjár. Í til­­kynn­ing­unni sagði að með þessum hætti „vilja stofn­endur Sam­herja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­­­skyld­u­­­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­­­steinn í rekstr­in­­­um.“ Þar kom einnig fram að und­ir­­bún­­ingur breyt­ing­anna á eign­­ar­hald­inu hafi staðið und­an­farin tvö ár en áformin og fram­­kvæmd þeirra voru for­m­­lega kynnt í stjórn félags­­ins á miðju ári 2019.

Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja.

Í maí 2020, þegar Kjarn­inn leit­aði eftir upp­­lýs­ingum um með hvaða hætti fram­­sal hluta­bréfa for­eldra til barna hefði átt sér stað, feng­ust þau svör hjá Björgólfi Jóhanns­­syni, þá ann­­ars for­­stjóra Sam­herja, að ann­­ars vegar hefðu börnin fengið fyr­ir­fram­greiddan arf, og hins vegar væri um sölu milli félaga að ræða.

Ekki hafa feng­ist upp­­lýs­ingar hjá Sam­herja um virði þess hlutar sem til­­kynnt var um að færður hefði verið á milli kyn­slóða né hvernig til­­­færsl­unni var skipt milli fyr­ir­fram­greidds arfs og sölu.

Skulda for­eldrum sínum á fjórða tug millj­arða

Í árs­reikn­ing Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins, sem heldur utan um 43,48 pró­sent eign Þor­steins Más og Helgu í Sam­herja Holding ehf. fyrir árið 2019 kemur hins vegar fram að bók­færður eign­ar­hlutur þess í Sam­herja hf. hafi farið úr 21,8 millj­örðum króna í um 550 millj­ónir króna.

Á sama tíma fór vaxta­ber­andi kröfur á tengda aðila úr því að vera engar í að vera 26,9 millj­arðar króna.

Í árs­reikn­ingi Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins fyrir árið 2020 er hlut­ur­inn í íslenska Sam­herja kom­inn í krónur núll. Lang­tíma­kröfur á tengda aðila eru hins vegar bók­færðar á 214 millj­ónir evra, eða um 33,5 millj­arða króna. Á meðal þeirra sem telj­ast sem tengdir aðilar eru nánir fjöl­skyldu­með­lim­ir. Því er þarna um að ræða lán for­eldr­anna Þor­steins Más og Helgu til barna sinna, Bald­vins og Kötlu.

Félag barn­anna, K&B ehf., hagn­að­ist um 20,8 millj­­ónir evra, um 3,2 millj­­arða króna, á síð­­asta ári. Hrein eign félags­­ins nam um 44,7 millj­­ónum evra, um 6,9 millj­­örðum króna, um síð­­­ustu ára­­mót. Eignir félags­­ins voru bók­­færðar á tæp­­lega 40 millj­­arða króna en á móti þeim eignum eru skuldir upp á 33 millj­­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár