Félagið sem erfði tæpan helming í Samherja hagnaðist um 3,2 milljarða króna í fyrra

Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar eiga 43 pró­sent í Samherja hf. Þau fengu þann hlut sem fyr­ir­fram­greiddan arf og með því að kaupa eignir af for­eldrum sínum á árinu 2019. Eignir félags þeirra eru bók­færðar á tæp­lega 40 millj­arða króna.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja og sonur hans, Baldvin Þorsteinsson, er yfir Evrópuútgerð Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja og sonur hans, Baldvin Þor­steins­son, er yfir Evr­ópu­út­gerð Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

K&B ehf., félag sem er að mestu í eigu systk­in­anna Baldvins og Kötlu Þor­steins­barna, hagn­að­ist um 20,8 millj­ónir evra, um 3,2 millj­arða króna, á síð­asta ári. Hrein eign félags­ins nam um 44,7 millj­ónum evra, um 6,9 millj­örðum króna, um síð­ustu ára­mót. Eignir félags­ins voru bók­færðar á tæp­lega 40 millj­arða króna en á móti þeim eignum eru skuldir upp á tæpa 33 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi K&B ehf. sem sendur var inn til árs­reikn­inga­skrár í síð­ustu viku en birtur í gær.

K&B ehf. er stærsti ein­staki eig­andi Samherja hf., þess hluta Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem heldur á starf­semi hennar á Íslandi og Færeyjum, með 43 pró­sent eign­ar­hlut. Hlut­ur­inn í Samherja er eina eign félags­ins og hagn­aður félags­ins hlut­deild í hagn­aði útgerð­ar­ris­ans. Baldvin á 49 pró­sent hlut í K&B ehf. en Katla systir hans 48,9 pró­sent. Faðir þeirra, Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja, á 2,1 pró­sent hlut.

Tilkynnt var um það um miðjan maí í fyrra að eig­enda­skipti væru að eiga sér stað hjá Sam­herja. Þá birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans Helga S. Guð­munds­dóttir og útgerð­ar­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­son væru að færa stóran hluta af eign­ar­haldi á Sam­herja hf. til barna sinna.

Hall­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín Krist­jáns­börn, eiga sam­an­lagt með um 41,5 pró­sent hluta­fjár en ekk­ert þeirra meira en 8,5 pró­sent hlut hvert. Þar á eftir kemur félagið Bliki ehf. með 11,9 pró­­sent hlut. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­­­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­­­um. Þor­­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­­andi þess félags.

Þor­steinn Már, Kristján og Helga halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og á stórum hlut í Eim­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­ar­halds­fé­lagi, Sam­herja Holding ehf., frá árinu 2018 þegar sam­stæð­unni var skipt upp.

Fyrirframgreiddur arfur og sala

Í maí, þegar Kjarn­inn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um með hvaða hætti fram­sal hluta­bréfa for­eldra til barna hefði átt sér stað, feng­ust þau svör hjá Björgólfi Jóhanns­syni, þá ann­ars for­stjóra Sam­herja, að ann­ars vegar hefðu börnin fengið fyr­ir­fram­greiddan arf, og hins vegar væri um sölu milli félaga að ræða.

[adspot]Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar hjá Sam­herja um virði þess hlutar sem til­kynnt var um að færður hefði verið á milli kyn­slóða né hvernig til­færsl­unni var skipt milli fyr­ir­fram­greidds arfs og sölu. Engin skjöl hafa heldur verið send inn til fyr­ir­tækja­skrár vegna við­skipt­anna enn sem komið er. Einu upp­lýs­ing­arnar sem þar er að finna um K&B ehf., fyrir utan eign­ar­haldið á félag­inu og að það hafi verið stofnað í apríl 2019, er að hlutafé þess var aukið um 100 millj­ónir króna seint í sept­em­ber í fyrra.

Í árs­reikn­ingi K&B ehf. kemur fram að félagið hafi skuldað 212,5 millj­ónir evra, um 32,7 millj­arða króna, í lok síð­asta árs. Uppi­staðan er lang­tíma­lán sem félagið borgar 8,4 millj­ónir evra, um 1,3 millj­arða króna, af á ári.

Tilkynnt um eigendatilfærslu skömmu fyrir Kveiksþáttinn

Baldvin er með lög­heim­ili í Hollandi, þar sem hann býr og leiðir alþjóð­lega starf­semi Samherja. Þar af leið­andi er hann skil­greindur sem erlendur sam­kvæmt íslenskum lögum og því ber að til­kynna hana til stjórn­valda. Kjarninn greindi frá því í fyrra­sumar að fjár­fest­ing K&B ehf. í Sam­herja hafi verið til­kynnt til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins átta dögum áður en að Kveik­ur, Stund­in, Wikileaks og Al Jazeera opin­ber­uðu margra mán­aða rann­sókn­ar­vinnu sem sýndi fram á meintar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namib­íu.

Starfs­maður atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins hringdi tví­vegis í Ólaf Þór Hauks­son hér­aðs­sak­sókn­ara, ann­ars vegar 18. des­em­ber og hins vegar 20. des­em­ber 2019, til að gera honum við­vart um að ráðu­neyt­inu hefði borist til­kynn­ing um að erlendur aðili, Baldvin, hefði keypt hlut­inn í Samherja.

Í skjali um sam­skiptin kom fram að ástæða þess að haft var sam­band við við hér­aðs­sak­sókn­ara var að ráðu­neyt­inu væri „kunn­ugt um að það félag sem til­kynn­ingin við­kemur og aðal­eig­andi þess og for­stjóri eru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.“

Í til­kynn­ingu Samherja um að stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins væru að láta eign­ar­hluti renna til barna sinna kom fram að stjórn Samherja hefði fyrst verið til­kynnt um áformin sum­arið 2019.

Fyr­ir­tækið hefur hafnað því að tengsl væru á milli þess að til­kynnt væri um eig­enda­breyt­ing­arnar og umfjöll­unar um athæfi Sam­herja í Namib­íu. ­

Eigið fé samstæðunnar á annað hundrað milljarðar

Félög í sam­stæðu Samherja hf. eru í hópi umsvifa­mestu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins og bygg­ist rekstur sam­stæð­unnar fyrst og fremst á veiðum á bol­fiski og upp­sjáv­ar­fiski, land­vinnslu á bol­fiski, fisk­eldi auk mark­aðs- og sölu­starf­semi. Auk þess eiga þau ýmsar aðrar eignir, til dæmis hlut í smá­söluris­anum Högum.

Í árs­reikn­ingi Samherja hf. sem birtur var í síð­ustu viku kemur fram að hagn­aður félags­ins var 7,8 millj­arðar króna á árinu 2020. Eigið fé félags­ins var 78,8 millj­arðar króna í lok síð­asta árs.

Sam­herji Holding, hinn helm­ingur sam­stæð­unn­ar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árin 2019 og 2020. Sam­herj­a-­sam­stæðan átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok árs 2018. Hagn­aður Sam­herja, þegar bæði Sam­herji hf. og Sam­herji Holding voru talin sam­an, vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­örðum króna.

Hagn­aður Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar hafði numið yfir 112 millj­­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka árs 2018. Síðan þá hafa að minnsta kosti 17 millj­arðar króna bæst við vegna afkomu Samherja hf., en óljóst er hversu miklum hagn­aði Samherji Holding hefur skilað.

Samherji lítur á samfélagslega ábyrgð sem skyldu

Í nýjasta árs­reikn­ingi Samherja er líka gerð grein fyrir þeim ásök­unum sem bornar eru á Samherja og starfs­menn sam­stæð­unnar um alvar­leg lög­brot, meðal ann­ars spill­ingu og mútur sem eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Namibíu og á Íslandi.

[adspot]Þar segir enn fremur að sam­stæðan sé nú í yfir­grips­mik­illi end­ur­skoðun á stjórn­ar­háttum innan sam­stæð­unnar og muni á næst­unni kynna inn­leið­ingu á reglu­vörslu og hlít­ing­ar­kerfi sem gildi á um öll félög innan sam­stæð­unnar.

Í ófjár­hags­legri upp­lýs­inga­gjöf sem birt er aft­ast í árs­reikn­ing­unum er sér­stakur kafli um mann­rétt­indi þar sem segir að virð­ing fyrir starfs­fólki og mann­rétt­indum séu grund­vall­ar­at­riði í rekstri Samherja. „Skulu allir vera jafnir fyrir lögum og njóti mann­rétt­inda án til­lits til kyn­ferðis, kyn­hneigðar, trú­ar­bragða, skoð­ana, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­þáttar, lit­ar­háttar, efna­hags, ætt­ernis og stöðu að öðru leyti. Um þessar mundir er unnið að gerð sér­stakrar mann­rétt­inda­stefnu fyrir sam­stæðu Samherja. Engum skal haldið í nauð­ung­ar­vinnu eða barna­þrælkun og hafnar Samherji hvers kyns þræl­dómi, nauð­ung­ar­vinnu og man­sali.“

Á sama stað er sér­stakur kafli um sam­fé­lags­á­byrgð og -þátt­töku sam­stæð­unnar þar sem segir meðal ann­ars að Samherji lítur „ekki ein­ungis á sam­fé­lags­lega ábyrgð sem skyldu heldur einnig sem tæki­færi til að bæta vel­ferð þess sam­fé­lags sem rekstur sam­stæð­unnar er á hverjum stað. Felur sam­fé­lags­þátt­taka Samherja meðal ann­ars í sér að styðja við sam­fé­lögin á hverjum stað, hvort sem er í formi styrkja, atvinnu­sköpun eða sam­vinnu við aðra atvinnu­rek­endur á við­kom­andi svæði [ ... ] Samherji hefur und­ir­ritað sam­fé­lags­stefnu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og vinnur nú að gerð sam­fé­lags­skýrslu Samherja þar sem sam­fé­lags­á­byrgð og -þátt­töku Samherja verður frekar lýst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár