Ekki búið að slíta neinu félagi vegna vanskila á ársreikningum

Ákvæði sem gerir Skattinum kleift að slíta félögum sem skila ekki inn ársreikningi sínum innan lögbundins frest er loksins orðið virkt, rúmum fimm árum eftir að lögin voru sett. Engu félagi hefur þó verið slitið.

Þeir sem velja að skrifa ekki undir og birta ársreikning félaga sinna hætta nú á að Skatturinn slíti þeim félögum.
Þeir sem velja að skrifa ekki undir og birta árs­reikn­ing félaga sinna hætta nú á að Skatt­ur­inn slíti þeim félögum. Mynd: Andrea Pacquadio/Pexels

Ákvæði sem gerir Skattinum kleift að slíta félögum sem skila ekki inn ársreikningi sínum innan lögbundins frest er loksins orðið virkt, rúmum fimm árum eftir að lögin voru sett. Engu félagi hefur þó verið slitið.

Ársreikninga­skrá hefur enn sem komið er ekki krafist skipta neinu félagi sem hefur ekki skilað ársreikningi innan lögboðins, frests þrátt fyrir að reglugerð sem virkjar ákvæði laga þess efnis hafi verið gefin út 18. október síðastliðinn.

Ákvæði sem heim­ilar slit á félögum sem sinna ekki lög­bund­inni skila­skyldu á árs­reikn­ingum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarn­inn greindi frá því í haust að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðu­neyti sem stýrir mála­flokkn­um,, sá hluti atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem heyrir undir Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­ur, hafi ekki gefið út reglu­gerð sem virkjar það.

Því hafði ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á árs­reikn­ingi að vettugi hafði fyrir vikið verið slit­ið.

Lög­bund­inn frestur til að skila inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2020 rann út í lok ágúst. Alls skil­uðu 56 pró­sent þeirra 42.625 félaga sem eru skila­skyld reikn­ingnum á réttum tíma. Stærri félög fengu þó lengri frest og áttu að skila fyrir lok september­mánaðar.

Ein umsögn barst

Í kjölfar umfjöllunar Kjarnans voru birt drög að reglugerð í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem heim­ilar árs­reikn­inga­skrá skatts­ins að slíta félögum sem hafa ekki skilað árs­reikn­ingum 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýk­ur.

Drögin voru til umsagnar til 20. september og einungis ein umsögn barst, frá Sam­bandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Þar kom fram að sam­bandið gerði ekki athuga­semdir við reglu­gerð­ina en hvatti til „þess að ráð­herra und­ir­riti reglu­gerð­ina sem fyrst svo ekki verði frek­ari tafir á mögu­leikum árs­reikn­inga­skrár til að krefj­ast slita á félögum er ekki hafa skilað inn árs­reikn­ing­i.“

Eftir að umsagnar­frestur rann út skrifaði ráðherra undir reglu­gerðina og hún var svo auglýst í stjórnar­tíðindum 18. október. Eftir þá auglýsingu tók hún gildi.

Hægt að sekta félög um 600 þús­und krónur

Það hefur lengi verið vanda­­mál að fá íslensk félög til að skila árs­­reikn­ingum inn til Skatts­ins á réttum tíma. Sam­­kvæmt lögum á að skila slíkum átta mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýk­­ur, en í flestum til­­­fellum rennur sá frestur út 1. sept­­em­ber á ári hverju. Árið 2007 höfðu ein­ungis 15,4 pró­­sent félaga í land­inu sem áttu að skila inn árs­­reikn­ingi gert það á réttum tíma.

Árið 2016 voru inn­­­leidd í lög við­­ur­lög við því að skila ekki inn árs­­reikn­ingi á réttum tíma. Ann­­ars vegar átti að vera hægt að sekta félög um 600 þús­und krónur ef þau skil­uðu ekki innan átta mán­aða og hins vegar átti að vera hægt að slíta þeim ef árs­­reikn­ingar hefðu enn ekki borist sex mán­uðum eftir að átta mán­aða frest­­ur­inn rann út, eða 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lauk.

Fyrir flest félög er 600 þús­und króna sekt ekki erfið við­ur­­­eignar og því lá ljóst fyrir að hótun um slit á félagi myndi virka sem meiri hvati til skila en sekt­­ar­greiðsl­­an.

Fá frest eftir að frest­­ur­inn er lið­inn

Í reglu­gerðinni kemur fram að þegar 14 mán­aða frest­­ur­inn er lið­inn muni árs­­reikn­inga­­skrá senda til­­kynn­ingu til við­kom­andi félags, þar sem veittur verður fjög­­urra vikna frestur til þess að skila árs­­reikn­ingi eða eftir atvikum sam­­stæð­u­­reikn­ingi sem upp­­­fyllir kröfur laga. Ekki verða veittir frek­­ari frestir af hálfu árs­­reikn­inga­­skrár.

Ef þessi loka­frestur er virtur að vettugi mun árs­­reikn­inga­­skrá senda hér­­aðs­­dómi beiðni um að félag verði tekið til skipta.

Dóm­­ari mun svo meta fram­lagða kröfu og taka ákvörðun um með­­­ferð henn­­ar. „Ef stjórn félags eða fram­­kvæmda­­stjóri mætir til fyrstu fyrirtöku getur dóm­­ari orðið við beiðni félags um allt að tveggja mán­aða frest á með­­­ferð kröfunnar[...]Ef full­nægj­andi árs­­reikn­ingi og sam­­stæð­u­­reikn­ingi ef við á, er skilað til árs­­reikn­inga­­skrár eftir að krafa um skipti hefur komið fram en áður en úrskurður um skipti er kveð­inn upp, aft­­ur­­kallar árs­­reikn­inga­­skrá kröfu um skipti á félagi. Skil­yrði aft­­ur­köll­unar kröfu um skipti, er að félag hafi greitt allan kostnað vegna skipta, sem og álagða sekt vegna van­rækslu á réttum skilum árs­­reikn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár