Rúmlega helmingur félaga skilaði ársreikningi fyrir árið 2020 á réttum tíma

Loka­skila­dagur árs­reikn­inga var 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Félög hafa í auknum mæli skilað árs­reikn­ingum á réttum tíma síðan við­ur­lög voru hert árið 2016 en von er á reglu­gerð sem heim­ilar slit félaga sem ekki skila árs­reikn­ingi.

Aðalstöðvar Skattsins eru við Laugaveg 166 í Reykjavík.
Aðal­stöðvar Skatts­ins eru við Laugaveg 166 í Reykja­vík. Mynd: Skatturinn

Alls höfðu 56 pró­sent félaga skilað inn árs­reikn­ingi fyrir reikn­ings­árið 2020 fyrir mið­nætti 31. ágúst síð­ast­lið­inn en það var loka­skila­dagur árs­reikn­inga fyrir það ár. Samkvæmt skrif­legu svari frá Skatt­inum við fyr­ir­spurn Kjarnans höfðu 23.863 félög skilað inn árs­reikn­ingi fyrir mið­nætti 31. ágúst síð­ast­lið­inn en alls voru 42.625 félög skráð á lista yfir skila­skyld félög fyrir reikn­ings­árið 2020. Á mið­nætti sunnu­dag­inn 5. sept­em­ber, þ.e. í gær­kvöldi, höfðu 24.485 félög skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2020 til árs­reikn­inga­skrár.

Hlutfall þeirra félaga sem skil­uðu árs­reikn­ingi á réttum tíma er því eins og áður segir 56 pró­sent. Hlut­fallið batnar á milli ára en það var 53,8 pró­sent í fyrra. Samkvæmt svari skatts­ins voru skilin í ár og í fyrra lak­ari en árið þar á undan og má það að ein­hverju leyti rekja til áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Viðurlög bættu skil

Þrátt fyrir að hlut­fall þeirra félaga sem skila árs­reikn­ingi á réttum tíma sé ekki nema um helm­ingur þá hefur hlut­fallið batnað mikið á und­an­förnum árum. Til að mynda skil­uðu 15,4 pró­sent skila­skyldra félaga árs­reikn­ingum fyrir 1. sept­em­ber árið 2007 en þá voru rúm­lega 30 þús­und skila­skyld félög í land­inu. Þegar árið var á enda runnið höfðu 60 pró­sent félaga skilað árs­reikn­ingi sem þýðir að fjögur af hverjum tíu félögum ákváðu heldur að greiða sekt en að skila inn árs­reikn­ingum sínum á réttum tíma og sum félög skil­uðu þeim ein­fald­lega ekki.

Ástæðuna fyrir auknum skilum má ekki síst rekja til þess að árið 2016 voru við­ur­lög við því að skila árs­reikn­ingi ekki á réttum tíma hert veru­lega. Til­gangur við­ur­lag­anna, til við­bótar við bætt skil, var að sporna gegn kenni­tölu­flakki og auka gagn­sæi.

Árið 2016 skil­aði tæp­lega helm­ingur félaga inn árs­reikn­ingi á réttum tíma og 87 pró­sent þeirra gerði það fyrir árs­lok 2016. Til sam­an­burðar skil­aði um þriðj­ungur félaga árs­reikn­ingi á réttum tíma ári áður.

Reglugerð sem heimilar slit á leið í samráðsgátt

Við­ur­lögin sem um ræðir fel­ast meðal ann­ars í stjórn­valds­sekt upp á 600 þús­und krónur. Þar að auki var árs­reikn­inga­skrá veitt heim­ild til þess að slíta félögum sem ekki skila árs­reikn­ingum innan sex mán­aða eftir að upp­haf­legur frestur rennur út, eða alls 14 mán­uðum eftir að rekstr­ar­ári lýkur. [links]

Sú heim­ild hefur aldrei verið nýtt vegna þess að ráð­herra hefur ekki sett reglu­gerð með fyr­ir­mælum um með­ferð slíkra skila.

Málefni árs­reikn­inga­skrár heyra undir atvinnu­vega og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið en Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, stýrir þeim hluta ráðu­neyt­is­ins sem fer með þau mál­efni. Samkvæmt nýlegu svari frá ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans er reglu­gerðin á loka­metr­unum og búist er við því að drögin fari í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í þess­ari viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár