Ársreikningur Samherja Holding fyrir árið 2019 tilbúinn „innan tíðar“

Eitt stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi segir helstu ástæðu þess að það hafi ekki skilað inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2019 vera að það hafi skipt um end­ur­skoð­endur. Þá hafi ferða­tak­mark­anir vegna COVID-19 og sum­ar­leyfi einnig tafið fyrir.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Vinna við árs­reikn­ing Samherja Holding ehf. vegna árs­ins 2019 er á loka­metr­unum og hann verður til­bú­inn „innan tíðar“. Þetta segir Karl Eskil Pálsson, upp­lýs­inga­full­trúi Samherja, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Hann segir ýmsar sam­verk­andi ástæður hafa verið fyrir því að skil á reikn­ingnum, sem átti sam­kvæmt lögum að vera skilað inn til árs­reikn­inga­skrár fyrir lok ágúst í fyrra, og nefnir þar sér­stak­lega að Samherji Holding hafi tekið þá ákvörðun að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki. Það hafi þýtt tafir á gerð árs­reikn­ings. „Aðrar ástæður eru létt­væg­ari en skipta þó máli til dæmis ferða­tak­mark­anir vegna Covid-19, sum­ar­leyfi og þess háttar.“

Kjarninn spurði einnig hvort stjórn­valds­sekt hefði verið lögð á félagið vegna van­skila á árs­reikn­ingi og ef svo væri, hversu há sú sekt hefði verið. Þeirri spurn­ingu var ekki svarað.

Lög­bund­inn frestur til að skila inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2020 rann út um síð­ustu mán­aða­mót. Alls skil­uðu 56 pró­sent þeirra 42.625 félaga sem eru skila­skyld reikn­ingnum á réttum tíma. Samherji Holding hefur heldur ekki skilað inn reikn­ingi vegna árs­ins 2020.

Mega von bráðar slíta félögum

Heimild er í lögum frá árinu 2016 til að leggja 600 þús­und króna sekt á öll félög sem skila ekki inn árs­reikn­ingi innan átta mán­aða frá lokum reikn­ings­árs. Þar sem flest félög miða reikn­ingsár við alm­an­aksár rennur sá frestur út í lok ágúst í flestum til­vikum.

[adspot]Frá 2016 hefur einnig verið heim­ild í lögum til að slíta félögum sem skila ekki árs­reikn­ingi innan 14 mán­aða frá lokum reikn­ings­árs. Í til­felli Samherja Holding hefði sú heim­ild átt að virkj­ast í byrjun mars síð­ast­lið­inn.

Kjarninn greindi nýverið frá því að heim­ild­inni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðu­neyti sem stýrir mála­flokknum,, sá hluti atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem heyrir undir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, hefði ekki gefið út reglu­gerð sem virkjar það.

Því hefur ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á árs­reikn­ingi að vettugi hefur fyrir vikið verið slitið.

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið birti svo, í kjöl­far umfjöll­unar Kjarnans, drög að reglu­gerð í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í byrjun þess­arar viku sem heim­ilar árs­reikn­inga­skrá skatts­ins að slíta félögum sem hafa ekki skilað árs­reikn­ingum 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýkur. Hún verður til umsagnar til 20. sept­em­ber og mun að óbreyttu virkja ákvæðið eftir það.

Risafyrirtæki í risarannsókn

Samherji Holding er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins. Eigið fé Samherja Holding var rúm­lega 58 millj­arðar króna í lok árs 2018, sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi sem félagið hefur birt. Félagið heldur utan um þorra erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, en umfangs­mikil rann­sókn hófst á henni á árinu 2019, eftir opin­berun fjöl­miðla á starfs­háttum Samherja í Namibíu. Grunur er um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Málið er til rann­sóknar hér­lendis hjá bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatta­yf­ir­völdum auk þess sem ákært hefur verið í því í Namibíu.

Á árinu 2018 gerð­ist það að Samherja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­em­ber 2017.

[links]Eftir það er þorri inn­­­lendrar starf­­sem­i Samherja og starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­sem­i og hluti af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf.

Samherji Holding er að uppi­stöðu í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, Helgu S. Guð­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, og Krist­jáns Vil­helms­sonar. Inni í þeim hluta starf­sem­innar eru eign­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­ur­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­fest­inga­­fé­lagi á Ísland­i. Þar eru þó einnig íslenskir hags­munir, meðal ann­ars 34,22 pró­sent hlutur í Eimskip, sem hefur rúm­lega tvö­fald­ast í virði síð­ast­liðið ár.

Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, hafi verið falið að leiða útgerð­ar­starf­semi Samherja í Evrópu, sem fer fram í gegnum Samherja Holding.

Inni í þeim hluta er líka fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­ur­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­festi á Kýp­ur. Þau félög héldu meðal ann­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­íu, þar sem sam­stæðan og stjórn­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta.

Börnin eignuðust innlendu starfsemina

Samherji greindi frá því að heima­síðu sinni í maí í fyrra að 86,5 pró­sent hlutur í Samherja hf., hinum helm­ingi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, hefði verið færður frá Þor­steini Má, Helgu og Krist­jáns til barna þeirra. Eftir þá til­færslu eru stærstu hlut­hafar Samherja hf. Bald­vin og Katla Þor­steins­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 43,0 pró­sent hlut í Sam­herja og Dagný Linda, Hall­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín Krist­jáns­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­sent hluta­fjár.

Í til­kynn­ingu á vef Samherja sagði að með þessum hætti „vilja stofn­endur Sam­herja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­skyldu­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­steinn í rekstr­in­um.“

Árs­reikn­ingi Samherja hf. vegna árs­ins 2019 var skilað til árs­reikn­inga­skráar í fyrra­haust.

KPMG afhenti gögn um bókhaldið

KPMG var end­ur­skoð­andi Samherja Holding árum saman, og raunar Sam­herj­a­sam­stæð­unnar allrar. Í fyrra­haust var greint frá því að Samherji hefði ákveðið að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki og fara með við­skipti sín til BDO ehf., lítt þekkts end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækis. Stundin fjall­aði um þessi vista­skipti í lok októ­ber og byrjun nóv­em­ber í fyrra.

Kjarninn greindi frá því í byrjun febr­úar 2021 að KPMG hafi verið gert að láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Sam­herja á árunum 2013 og 2014.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð sinn um þetta í byrjun des­em­ber. Dóm­ur­inn féllst á kröfur hér­aðs­sak­sókn­ara um að KPMG yrði skyldað til að láta gögnin af hendi og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum félags­ins yrði sömu­leiðis gert skylt að veita emb­ætt­inu þær upp­lýs­ingar sem þeir búa yfir.

Stjórn­endur Samherja voru ekki ánægðir með þessa nið­ur­stöðu og sögðu vinnu­brögð sak­sókn­ara og hér­aðs­dóm­ara í mál­inu vera „ótrú­leg“.

Fyr­ir­tækið sagði í yfir­lýs­ingu að með úrskurð­inum hafi ekki ein­ungis lög­bund­inni þagn­ar­skyldu verið aflétt af end­ur­skoð­endum KPMG, heldur einnig rof­inn trún­aður lög­manna, enda hafi gögn sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fékk með úrskurð­inum ver­ið „í vörslum bæði end­ur­skoð­enda og lög­manna hjá KPMG og dótt­ur­fé­lög­um.“

Í kjöl­farið kærði KPMG, dótt­ur­fé­lag þess og end­ur­skoð­andi Samherja sem starfar hjá KPMG úrskurð­inn til Lands­réttar sem féllst á aðfinnslur þeirra í febr­úar síð­ast­liðnum, ógilti úrskurð­inn og vís­aði mál­inu aftur heim í hérað.

Í mars kvað hér­aðs­dóm­ari upp nýjan úrskurð þar sem gagna­öfl­unin var sögð lög­mæt. Samherji reyndi á að fara fram á að gögn­unum yrði eytt en því máli var vísað frá fyrr í þessum mán­uði vegna aðild­ar­skorts, enda Samherji ekki eig­andi gagn­anna heldur KPMG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár