Úrskurður um að afhenda héraðssaksóknara gögn frá endurskoðanda Samherja ómerktur

Lands­réttur hefur ómerkt úrskurð um að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara eigi að fá gögn varð­andi bók­hald og reikn­ing­s­kil allra félaga Samherja frá KPMG, fyrr­ver­andi end­ur­skoð­anda félags­ins, og gert hér­aðs­dómi að taka málið aftur fyrir.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er einn þeirra sex sem eru með stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara á viðskiptaháttum fyrirtækisins.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er einn þeirra sex sem eru með stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á við­skipta­háttum fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Samherji

Sú máls­með­ferð hér­aðs­dóms, í máli þar sem hér­aðs­sak­sókn­ari fór fram á að fá afhent gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra fé­laga Sam­herja á ár­un­um 2011 til 2020, að boða ekki sókn­ar­að­ila til þing­halds var í and­stöðu við fyr­ir­mæli laga um að sá sem geri kröfu um rann­sókn­ar­að­gerð skuli boð­aður til þing­halds­ins.

Því lágu ekki fyrir hér­aðs­dómi nauð­syn­leg gögn til að tekin yrði afstaða til afhend­ingu gagn­anna. Hér­aðs­dóm­ar­inn í mál­inu hefði átt að krefja hér­aðs­sak­sókn­ara um þessi gögn áður en hann tók kröf­una til úrskurðar, í því skyni að ganga úr skugga um hvort laga­skil­yrði væru upp­fyllt. „Samkvæmt fram­an­rit­uðu var með­ferð máls­ins í hér­aði svo áfátt að óhjá­kvæmi­legt er að ómerkja hinn kærða úrskurð og leggja fyrir hér­aðs­dóm­ara að taka málið til með­ferðar að nýju.“

Þetta kemur fram í úrskurði Lands­réttar sem birtur er á vef mbl.is í dag í kæru­máli sem fyrr­ver­andi end­ur­skoð­endur Samherja, KPMG, höfð­uðu gegn hér­aðs­sak­sókn­ara vegna afhend­ingu gagn­anna.

Í grein­ar­gerð sókn­ar­að­ila segir að „sækj­andi máls­ins hafi sent kröfu sína til vakt­haf­andi dóm­ara sem við­hengi með tölvu­bréfi 3. des­em­ber 2020. Í nið­ur­lagi kröf­unnar hafi verið tekið fram að atvik máls­ins sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi gögnum yrðu nánar reifuð fyrir dóm­inum við fyr­ir­töku ef þess yrði óskað. Eftir send­ingu kröf­unnar hafi dóm­ari haft sam­band við sækj­and­ann í síma og spurst nánar fyrir um saka­málið og atriði varð­andi kröf­una. Eins og þing­bók máls­ins beri með sér hafi síðan farið svo að dóm­ari tók kröf­una fyrir og kvað upp úrskurð án þess að sækj­and­inn væri kvaddur til fyr­ir­töku. Í grein­ar­gerð lætur sókn­ar­að­ili þess getið að hefði hann verið kvaddur til þing­halds hefðu rann­sókn­ar­gögn verið látin liggja frammi með venju­legum hætti.”

Sögðu vinnubrögðin vera „ótrúleg“

KPMG var end­ur­skoð­andi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar allrar árum saman. Í fyrra­haust var greint frá því að Samherji hefði ákveðið að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki og fara með við­skipti sín til BDO ehf., lítt þekkts end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækis. Stundin fjall­aði um þessi vista­skipti í lok októ­ber og byrjun nóv­em­ber í fyrra.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í byrjun febr­úar 2021 að KPMG hafi verið gert að láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Sam­herja á árunum 2013 og 2014.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð sinn um þetta í byrjun des­em­ber. Dóm­ur­inn féllst á kröfur hér­aðs­sak­sókn­ara um að KPMG yrði skyldað til að láta gögnin af hendi og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum félags­ins yrði sömu­leiðis gert skylt að veita emb­ætt­inu þær upp­lýs­ingar sem þeir búa yfir.

Stjórn­endur Samherja voru ekki ánægðir með þessa nið­ur­stöðu og sögðu vinnu­brögð sak­sókn­ara og hér­aðs­dóm­ara í mál­inu vera „ótrú­leg“.

Fyr­ir­tækið sagði í yfir­lýs­ingu að með úrskurð­inum hafi ekki ein­ungis lög­bund­inni þagn­ar­skyldu verið aflétt af end­ur­skoð­endum KPMG, heldur einnig rof­inn trún­aður lög­manna, enda hafi gögn sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fékk með úrskurð­inum ver­ið „í vörslum bæði end­ur­skoð­enda og lög­manna hjá KPMG og dótt­ur­fé­lög­um.“

Sögðust vera að vernda rannsóknarhagsmuni

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fór með kröfu sína til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur og var hún sett fram án þess að KPMG væri látið vita fyr­ir­fram, en það var að sögn emb­ætt­is­ins til þess að vernda rann­sókn­ar­hags­muni.

[links]Sam­herji gagn­rýndi að dóm­ar­inn hafi talið sig bæran til þess að taka ákvörðun um þetta án sönn­un­ar­gagna. Og reyndi að fá úrskurð­inn ógildan í Lands­rétti, en kærunni var vísað frá vegna aðild­ar­skorts.

Það sem Sam­herji var að kvarta yfir er að dóm­ar­inn í hér­aðs­dómi, Ingi­björg Þor­steins­dótt­ir, hafi ekki skoðað sér­stak­lega þau rann­sókn­ar­gögn sem lágu til grund­vallar kröfu um gögn og upp­lýs­ingar frá KPMG og að rang­lega hafi verið greint frá því í úrskurði og þing­bók að slík gögn hefðu legið frammi við upp­kvaðn­ingu úrskurð­ar­ins.

Í kjöl­farið kærði KPMG, dótt­ur­fé­lag þess og end­ur­skoð­andi Samherja sem starfar hjá KPMG úrskurð­inn til Lands­réttar sem féllst á aðfinnslur þeirra í dag, ógilti úrskurð­inn og vís­aði mál­inu aftur heim í hérað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár