Samherji segir vinnubrögð saksóknara og dómara í héraðsdómi „ótrúleg“

Samherji hefur kvartað til nefndar um dóm­ara­störf og nefndar um eft­ir­lit með störfum lög­reglu vegna verk­lags í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, er hér­aðs­sak­sókn­ari fékk gögn og upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið frá KPMG með dóms­úr­skurði.

Samherji gagnrýnir verklag héraðdómara og saksóknara hjá embætti héraðssaksóknara á vef sínum í dag.
Samherji gagn­rýnir verk­lag hér­að­dóm­ara og sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara á vef sínum í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji hefur kvartað til nefndar um dóm­ara­störf vegna vinnu­bragða dóm­ara í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, sem Lands­réttur sagði nýlega „aðfinnslu­vert“ að hefði ekki krafið sak­sókn­ara um rann­sókn­ar­gögn til stuðn­ings kröfu sinni um að fá gögn frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG í byrjun des­em­ber. Eins hefur fyr­ir­tækið kvartað til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu vegna „fram­ferðis“ sak­sókn­ara í mál­inu.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Samherja í dag. Eins og Kjarninn sagði frá á laug­ar­dag fékk Hér­aðs­dómur Reykja­víkur heim­ild til þess að sækja gögn og upp­lýs­ingar í þágu rann­sóknar á Sam­herj­a­sam­stæð­unni til end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG. Þessi heim­ild var veitt með dóms­úr­skurði 3. des­em­ber.[links]

Samherji segir í yfir­lýs­ingu sinni að rang­lega hafi verið vísað til umræddra gagna sem bók­halds­gagna í fjöl­miðlum og segir fyr­ir­tækið að um sé að ræða „svokölluð end­ur­skoð­un­ar­gögn sem end­ur­skoð­endum er skylt að geyma, lögum sam­kvæmt, í sjö ár hið minnsta.“

Fyr­ir­tækið segir að með úrskurð­inum hafi ekki ein­ungis lög­bund­inni þagn­ar­skyldu verið aflétt af end­ur­skoð­endum KPMG, heldur einnig rof­inn trún­aður lög­manna, enda hafi gögn sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fékk með úrskurð­inum verið „í vörslum bæði end­ur­skoð­enda og lög­manna hjá KPMG og dótt­ur­fé­lögum.“

[adspot]

Samherji segir í yfir­lýs­ingu sinni í dag fyrst hafa fengið vit­neskju um það að gögnin hefðu verið sótt til KPMG í jan­ú­ar­mán­uði. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ari fór með kröfu sína til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur og var hún sett fram án þess að KPMG væri látið vita fyr­ir­fram, en það var að sögn emb­ætt­is­ins til þess að vernda rann­sókn­ar­hags­muni. Samherji gagn­rýnir í yfir­lýs­ingu sinni að dóm­ar­inn hafi talið sig bæran til þess að taka ákvörðun um þetta án sönn­un­ar­gagna.

Það sem Samherji er að kvarta yfir er að dóm­ar­inn í hér­aðs­dómi, Ingi­björg Þor­steins­dóttir, hafi ekki skoðað sér­stak­lega þau rann­sókn­ar­gögn sem lágu til grund­vallar kröfu um gögn og upp­lýs­ingar frá KPMG og að rang­lega hafi verið greint frá því í úrskurði og þing­bók að slík gögn hefðu legið frammi við upp­kvaðn­ingu úrskurð­ar­ins.

„Í því skyni að ganga úr skugga um hvort laga­skil­yrði væru upp­fyllt fyrir því að fall­ast á kröfu sókn­ar­að­ila hefði hér­aðs­dóm­ara verið rétt að krefja sókn­ar­að­ila um þessi gögn áður en hann tók kröf­una til úrskurðar. Er aðfinnslu­vert að svo var ekki gert,“ segir um þetta í úrskurði Lands­réttar.

Lands­réttur vís­aði kæru Samherja vegna máls­ins frá á grund­velli aðild­ar­skorts. Hæsti­réttur stað­festi þá nið­ur­stöðu í gær, 9. febr­úar og minnt­ist ekki sér­stak­lega á aðfinnslur Lands­réttar í sinni umfjöllun um málið.

Samherji segir að vinnu­brögðin sem Lands­réttur setti út á hljóti að kalla á við­brögð frá hags­muna­sam­tökum bæði end­ur­skoð­enda og lög­manna og jafn­framt hjá rík­is­sak­sókn­ara, sem hafi lög­bundið eft­ir­lits­hlut­verk um fram­kvæmd ákæru­valds hjá lög­reglu­stjórum og hér­aðs­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár