Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, og Þorsteinn Már Baldvinsson hittust nokkrum sinnum. Sá fyrrnefndi hefur verið ákærður í Namibíu og sá síðarnefndi er með stöðu sakbornings í rannsókn á Íslandi.
Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Þor­steinn Már Bald­vins­son hitt­ust nokkrum sinnum. Sá fyrr­nefndi hefur verið ákærður í Namibíu og sá síð­ar­nefndi er með stöðu sak­born­ings í rann­sókn á Íslandi. Mynd: Skjáskot

Skattkröfur namibískra stjórnvalda á hendur Samherja Holding um þrír milljarðar króna

Í nýbirtum árs­reikn­ingi Samherja Holding kemur fram að yfir­völd í Namibíu hafi stofnað til nokk­urra skatta- og ann­arra lög­fræði­legra krafna á hendur sam­stæð­unni.

Stjórn­völd í Namibíu hafa stofnað til nokk­urra skatta- og ann­arra lög­fræði­legra krafna á hendur namibískum dótt­ur­fé­lögum Samherja Holding. Þar á meðal sé mögu­legt end­ur­mat á skatt­greiðslum upp á 318 milljón Namib­íu­dali, alls 20,2 millj­ónir evra, sem eru um þrír millj­arðar króna á núvirði. Nið­ur­stöðu þess og tengdan máls­kostnað sé ekki hægt að áætla með nægi­legri vissu, en til­tekið er að stjórn­endur Samherja Holding hafi mót­mælt þessum kröfum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­reikn­ingi Samherja Holding vegna árs­ins 2020 sem skilað var inn til Skatts­ins 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn og var gerður aðgengi­legur almenn­ingi í gær, fimmtu­dag­inn 6. jan­úar. Í árs­reikn­ingnum er farið yfir þann mála­rekstur sem stofnað hefur verið til vegna starf­semi Samherja Holding í Namibíu og þær kröfur sem þegar eru komnar fram vegna hennar.

Greiddu mörg hundruð milljónir til færeyskra skattyfirvalda

Þá er þar greint frá því að Samherji hf., syst­ur­fé­lag Samherja Holding, hafi greitt fyrir hönd Sp/f Tind­hólms, dótt­ur­fé­lags Samherja Holding, sam­tals um 17 millj­ónir danskra króna, um 335 millj­ónir króna á núvirði, til fær­eyskra skatt­yf­ir­valda vegna óvissu um gildi skatt­frelsis fyrir ákveðna áhafn­ar­með­limi. Málið kom upp í mars í fyrra þegar fyrri hluti heim­ild­ar­myndar um umsvif Sam­herja í Fær­eyjum var sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu. Hún var unnin í sam­starfi við Kveik og Wikileaks.

Þar kom fram að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Sam­herja, sem gerður var út í Namib­íu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu Spf Tind­holmur, sem Sam­herji stofn­aði þar í landi árið 2011. Gögn sýndu að hann hafi auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Sam­herja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Sam­herja í Namib­íu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Sam­herji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

Skatt­yf­ir­völd í Færeyjum hafa til­kynnt dótt­ur­fé­lagið SpF Tindhólm til lög­reglu. Í árs­reikn­ingi Samherja Holding segir að óljóst sé hvort eða hvernig fær­eysk skatta­yf­ir­völd og lög­regla muni fylgja mál­inu eftir.

Rannsókn stendur yfir í Namibíu og á Íslandi

Í reikn­ingnum er til­tekið að rann­sókn á meintum lög­brotum Samherja Holding og starfs­manna sam­stæð­unnar sem tengj­ast meðal ann­ars starf­sem­inni í Namibíu standi yfir hjá yfir­völdum í Namibíu og á Íslandi, en að ekki hefur verið höfðað mál á hendur félag­inu. Í árs­reikn­ingnum segir: „Félagið hefur mót­mælt öllum ásök­unum um lög­brot og gert grein fyrir sjón­ar­miðum sínum opin­ber­lega.“

Í Namibíu er rekið umfangs­mikið saka­mál vegna meintra mútu­greiðslna, svika, spill­ing­ar, pen­inga­þvættis og skattaund­an­skota í tengslum við kvóta­við­skipti Sam­herja í land­inu. Það snýr að að mestu að namibískum áhrifa­mönnum sem hafa flestir setið í gæslu­varð­haldi allt frá því málið kom upp á yfir­borðið í umfjöll­unum Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Al Jazeera og fleiri miðla í nóv­em­ber 2019, sem unnar voru með aðkomu WikiLeaks, sem birti frum­gögn máls­ins. Auk þess hefur rík­is­sak­sókn­ari Namibíu sagt að hún ætli sér að ákæra þrjá íslenska rík­is­borg­ara sem stýrðu félögum fyrir hönd Samherja, en ekki hefur tek­ist að birta þeim ákærur og eng­inn fram­sals­samn­ingur er í gildi milli Namibíu og Íslands.

Fyrir liggur að á Íslandi eru átta manns hið minnsta með rétt­ar­stöðu sak­born­ing við rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á meintu pen­inga­þvætti, mútu­greiðslum og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, en allir hinir annað hvort starfa fyrir sam­stæð­una eða hafa gert það. Kjarn­inn greindi frá því í októ­ber að rann­sókn á meintum skatta­laga­brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hefði færst yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara skömmu áður.

Bankar, birgjar og viðskiptavinir haldið tryggð

Í árs­reikn­ingi Samherja Holding er sagt að fjallað hafi verið ítar­lega um hvað fór úrskeiðis í rekstr­inum í Namibíu og hvers vegna. „Gripið hefur verið til víð­tækra ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir að slík atvik geti hent á ný. Mik­il­vægir hags­muna­að­ilar sem félagið á í sam­skiptum við, bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við félagið.“

Starf­semi dótt­ur­fé­laga sam­stæð­unnar í Namibíu var lögð niður í árs­lok 2019 og í árs­reikn­ingnum segir að lögð hafi verið áhersla á að dótt­ur­fé­lög Samherja í land­inu muni upp­fylla skyldur sínar gagn­vart namibískum yfir­völdum.

Samt sem áður er gerður fyr­ir­vari við und­ir­ritun árs­reikn­ing­inn bæði úr hendi stjórnar og for­stjóra Samherja Holding og end­ur­skoð­anda sam­stæð­unnar. Fyr­ir­var­inn er gerður vegna þess að enn sé óvissa um áhrif mála­rekst­urs í Namibíu á starf­semi sam­stæð­unnar og að ekki hagi tek­ist með full­nægj­andi hætti að sann­reyna skuld­bind­ingar Hermono sam­stæð­unnar, sem fór með rekst­ur­inn Í Namibíu fyrir hönd Samherja Holding.

Í áritun end­ur­skoð­anda segir að starf­semi Hermono sam­stæð­unnar sé flokkuð sem aflögð starf­semi í efna­hags- og rekstr­ar­reikn­ingi sam­stæð­unnar. „Við gátum ekki aflað nægj­an­legra og við­eig­andi end­ur­skoð­un­ar­gagna til að stað­festa þær fjár­hæðir sem fram koma í aflagðri starf­semi en tap aflagðrar starf­semi var 8.592 þús­und evrur, eignir í aflagðri starf­semi voru 16.391 þús­und evrur og skuldir vegna aflagðrar starf­semi voru 10.515 þús­und evrur. Enn­fremur ríkir óvissa um áhrif ásak­ana og rann­sókna á starf­semi sam­stæð­unnar í Namibíu á skuld­bind­ingar Hermono sam­stæð­unnar.“

Ekki hafi reynst unnt að bregð­ast við því í end­ur­skoð­un­inni. Þar af leið­andi var ekki lagt mat á rétt­mæti ofan­greindra fjár­hæða.

Söluandvirði Heinaste geymt á sameiginlegum reikningi

Hluti af eignum aflagðrar starf­semi var skipið Heinaste, en skipið var selt í nóv­em­ber 2020 til þriðja aðila fyrir 18 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sem eru á núvirði rúm­lega 2,3 millj­arðar króna. Þriðj­ungur sölu­verðs­ins er ógreiddur en kemur til greiðslu á árunum 2022 til 2023. „Sá hluti sem hefur verið greiddur, sam­kvæmt sér­stöku sam­komu­lagi við namibísk stjórn­völd, er geymdur á sam­eig­in­legum reikn­ingi með rík­is­sjóði Namibíu, þar til nið­ur­stöður dóms­máls í Namibíu liggja fyrir. Það er því óljóst hvenær and­virði söl­unnar verður til­tækt til notk­unar fyrir sam­stæð­una.“

Skipið Heinaste. Mynd: MarineTraffic
Skipið Heinaste. Mynd: MarineTraffic

Heinaste var kyrr­sett síðla árs 2019 og lá við bryggju í Walvis Bay í Namibíu að kröfu namibískra yfir­valda í rúmt ár. Þeirri kyrr­setn­ingu var aflétt í nóv­em­ber 2020 og það í kjöl­farið selt til namibíska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Tunacor Fis­heries. Martha Imalwa, rík­is­sak­sókn­ari í Namibíu, sagði við við vefritið Repu­blikein að þessu til­efni að það hefði ekki verið hennar ákvörðun að aflétta kyrr­setn­ingu Heinaste, heldur lög­regl­unn­ar, sem var með skipið kyrr­sett á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­sem­i. Það hafi bæði verið kostn­að­ar­samt fyrir namibíska ríkið að halda verk­smiðju­tog­ar­anum við bryggju í Walvis Bay og einnig hafi þetta verð­mæta atvinnu­tæki verið að drabb­ast niður við hafn­ar­kant­inn í stað þess að nýt­ast við að sækja fisk á namibísk fiski­mið.

Skiluðu ársreikningum löngu eftir að lögbundinn frestur var útrunninn

Sam­kvæmt lögum eiga félög með heim­il­is­festi á Íslandi að skila árs­reikn­ingum inn fyrir lok ágúst­mán­aðar á ári hverju. Samherji Holding, sem er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins með eigið fé upp á 61,3 millj­arða króna í lok árs 2020, skil­aði hins vegar ekki árs­reikn­ingum fyrir árið 2019 og 2020 til Skatts­ins fyrr en 30. des­em­ber 2021. Sama dag voru birtar valdar upp­lýs­ingar úr reikn­ing­unum á heima­síðu syst­ur­fé­lags­ins Samherja hf.

Í til­kynn­ing­unni á heima­síðu Sam­herja sama dag og reikn­ing­unum var skilað inn sagði að óvissa vegna Namib­íu­starf­sem­innar og fjár­hags­legra áhrifa hennar hafi „valdið þeim drætti sem orðið hefur á gerð árs­reikn­ing­anna en stjórnin taldi mik­il­vægt að freista þess að fá sem gleggstar upp­lýs­ingar um þessa þætti áður en gengið yrði frá frá reikn­ing­un­um.“

Ákvæði sem heim­ilar slit á félögum sem sinna ekki lög­­­­bund­inni skila­­­­skyldu á árs­­­­reikn­ingum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarn­inn greindi frá því í haust að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðu­­­­neyti sem stýrir mála­­­­flokkn­um,, sá hluti atvinn­u­­­­vega- og nýsköp­un­­­­ar­ráðu­­­­neyt­is­ins sem heyrir undir Þór­­­­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­­­­ur, hafi ekki gefið út reglu­­­­gerð sem virkjar það.

Því hafði ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á árs­­­­reikn­ingi að vettugi hafði fyrir vikið verið slit­ið.

Ákvæðið varð virkt 18. októ­ber 2021, eftir að reglu­­gerðin var loks gefin út.

Kjarn­inn greindi frá því 10. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn að árs­­­reikn­inga­­­skrá hefði þá enn sem komið er ekki kraf­ist skipta neinu félagi sem hefði ekki skilað árs­­­reikn­ingi innan lög­­­­­boð­ins frests.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár