Reglugerð sem heimilar slit á félögum sem skila ekki ársreikningi á lokametrunum

Þegar lögum um árs­reikn­inga var breytt árið 2016 fékk Skatt­ur­inn heim­ild til að slíta félögum sem skil­uðu ekki árs­reikn­ingum. Fimm árum síðar hefur heim­ild­inni aldrei verið beitt vegna þess að ráð­herra hefur ekki sett reglu­gerð. Nú stendur það til.

Það er Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir sem mun gefa út reglugerðina.
Það er Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir sem mun gefa út reglu­gerð­ina. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega­ráðu­neytið segir að það hafi unnið að reglu­gerð í sam­starfi við árs­reikn­inga­skrá um nokk­urt skeið svo ákvæði laga sem heim­ilar að félögum sem skila ekki árs­reikn­ingum 14 mán­uðum eftir að rekstr­ar­ári líkur verði slitið geti virkj­ast.

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að drög að reglu­gerð­inni séu á loka­metr­unum og að búist sé við að þau fari í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í næstu viku, lík­leg­ast á mánu­dag.

Árið 2016 voru við­ur­lög við því að skila árs­reikn­ingum seint eða alls ekki hert umtals­vert með laga­breyt­ingu. Til­gang­ur­inn var að bæta skil en einnig að sporna gegn kenni­tölu­flakki og auka gagn­sæi.

Samkvæmt lög­unum um árs­reikn­inga á að skila inn slíkum innan átta mán­aða frá því að rekstr­ar­ári lýkur. Það þýðir að flest félög, sem miða við alm­an­aks­árið í rekstri sínum, þurfa að skila árs­reikn­ingi fyrir lok ágúst­mán­aðar á hverju ári. Geri þau það ekki getur Skatt­ur­inn lagt á félögin sekt. Hún er þó afar lág, 600 þús­und krónur, og lítið mál fyrir fyr­ir­tæki sem vilja ekki sýna inn á rekstur sinn að greiða hana.

Hin við­ur­lögin sem laga­breyt­ingin heim­il­aði eru þyngri og heim­ila árs­reikn­inga­skrá að slíta félögum sem ekki skila árs­reikn­ingum innan sex mán­aða eftir að upp­haf­legi frest­ur­inn rennur út, eða alls 14 mán­uðum eftir að rekstr­ar­ári líkur.

Aldrei beitt ákvæðinu

Þrátt fyrir að fjöl­mörg félög hafi ekki skilað árs­reikn­ingum innan þess 14 mán­aða ramma sem þau þurfa frá lokum rekstr­ar­árs til að forð­ast upp­lausn á þeim fimm árum sem liðin eru frá því að lögin voru sett, þá hefur Skatt­ur­inn aldrei beitt ákvæð­inu.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að Skatt­ur­inn hefði svarað því til, eftir fyr­ir­spurn Kjarnans um málið, að ástæðan sé sú að í lög­unum komi fram að ráð­herra eigi að setja „nán­ari fyr­ir­mæli um með­ferð slíkra mála hjá árs­reikn­inga­skrá í reglu­gerð. Sú reglu­gerð hefur ekki verið sett.

Málefni árs­reikn­inga­skrár heyra undir atvinnu­vega­ráðu­neytið. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir stýrir þeim hluta ráðu­neyt­is­ins sem fer með þau mál­efni. Nú stendur til að birta drög að reglu­gerð­inni í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og von­ast er til að það verði gert í næstu viku.

Risavaxið fyrirtæki grunað um efnahagsbrot skilar ekki ársreikningum

Ástæða þess að Kjarninn spurð­ist fyrir um málið er að eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, Samherji Holding, hefur ekki skilað árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2019 þrátt fyrir að hafa átt að gera það á síð­asta ári. Samkvæmt lögum um árs­reikn­inga­skrá hefði heim­ild skatta­yf­ir­valda til að slíta félag­inu vegna van­skila á árs­reikn­ingi að hafa virkj­ast í lok febr­úar síð­ast­lið­ins.

[links]Eigið fé Samherja Holding var rúm­lega 58 millj­arðar króna í lok árs 2018, sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi sem félagið hefur birt. Félagið heldur utan um þorra erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, en umfangs­mikil rann­sókn hófst á henni á árinu 2019, eftir opin­berun fjöl­miðla á starfs­háttum Samherja í Namibíu. Grunur er um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Málið er til rann­sóknar hér­lendis hjá bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatta­yf­ir­völdum auk þess sem ákært hefur verið í því í Namibíu.

Kjarninn óskaði skýr­ingum frá for­svars­mönnum Samherja Holding um ástæður þess að fyr­ir­tækið hefði ekki skilað inn árs­reikn­ingnum, líkt og lög gera ráð fyrir, í upp­hafi árs. Í svari þeirra sagði að enn væri unnið að gerð reikn­ings­ins, og að sú vinna hefði taf­ist af ýmsum ástæðum. „Árs­reikn­ingi 2019 fyrir Samherja Holding ehf. verður skilað þegar hann er til­bú­inn, sem verður innan ekki langs tíma.“

Í júní hafði reikn­ingnum enn ekki verið skilað og því sendi Kjarninn aðra fyr­ir­spurn um málið til Samherja Holding. Henni var ekki svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár