„Það eru allir með í eyrunum, allir horfandi niður“

Fannar Freyr Haraldsson hefur notað takkasíma í tvö ár og hefur ekki langað að skipta aftur yfir í snjall­símann. „Mér leið eins og þetta væri að hefta mína getu til að framkvæma hluti – eins og ég gæti ekki gert neitt nema ég væri með eitthvað sem væri að draga athygli mína í burtu,“ segir hann.

Minni tengsl
Minni tengsl Fannar Freyr telur að fólk sé í auknum mæli að fá nóg af snjall­símum. Mynd: Golli

Fannar Freyr Haraldsson er 24 ára myndlistar­nemi og hefur gengið um með takkasíma í tvö ár. Hann segir fólk nota snjall­síma til að flýja eigin hugsanir og finnst tækin hafa sundrandi áhrif á samfélagið. „Þú ferð út og þú sérð bara að það eru allir með í eyrunum, allir horfandi niður.“

Snjall­símar fara, að sögn Fannars, mjög í taugarnar á honum og hann hafði íhugað að hætta notkun þeirra lengi. 

„Ég var alltaf með eitthvað í eyrunum og mér fannst ég byrjaður að vera dálítið geðveikur á því að vera með þetta í vasanum. Þannig ég ákvað að prófa að breyta. Mig hefur ekki langað að fara aftur í snjall­símann,“ segir hann.

Upplifði létti

Það var samtal við sálfræðing sem fékk hann til að ríða á vaðið og skipta yfir í takkasíma. „Þetta truflaði mig, minnir mig, í eina eða tvær vikur að vera ekki með …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hjartanlega sammála þessari ágætu grein.
    Einn af fáum sem úttalar sig um þetta áhald.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjallsímar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár