Fólki hætti til að sjá tæknibreytingar sem stærri byltingar en þær eru

Kjartan Ólafsson, rannsókna­lektor og sérfræðingur í miðla­notkun ungs fólks, segir engan almennilegan vísinda­legan grundvöll fyrir því að tala um fíkn þegar tækni­notkun er annars vegar. Hann telur að alla jafna eigi fólk heilbrigt samband við snjall­símann.

Rannsakar miðlanotkun
Rann­sakar miðla­notkun Kjartan segir til­hneig­ingu til að gera tækni ábyrga fyrir hlutum sem hún beri ef til vill ekki ábyrgð á. Mynd: Auðunn Níelsson

Kjartan Ólafsson, rannsókna­lektor við HÍ og sérfræðingur í miðla­notkun ungs fólks, segir að fólki hætti stundum til að sjá tilkomu snjall­síma sem meiri byltingu en hún sé í reynd. Hverri nýrri tækni­þróun fylgi ótti – til dæmis prent­tækni, útvarpi og sjónvarpi.

„Þegar sjón­varpið kom til sögunnar þá voru rosa áhyggjur af því. Hvaða áhrif það hefði að hafa svona mikinn aðgang að fréttum og afþreyingu. Svo kom internetið. Þetta er alltaf að breytast. Okkur hættir til að sjá þetta sem meiri breytingu á hverjum tíma en það svo reynist vera.“

Auðvitað sé aukin tækni­notkun ekki án sinna galla. „En mér finnst engin ástæða til þess að horfa á þessar tækni­lausnir sem annaðhvort góðar eða slæmar. Þær hafa ákveðna eigin­leika. Það er hægt að nýta þær í ákveðnum tilgangi.“ 

Ekki endilega óverðugt að horfa á Youtube

Kjartan segir hugmyndina um fíkn í tengslum við tækni­notkun mjög umdeilda. …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Þór Ólafsson skrifaði
    Auðvitað eru öpp ekki fíkniefni, en sum öpp (s.s. margir samfélagsmiðlar) virkja efni í heilanum sem veldur fíkn, dópamín.

    Þetta kom nú bara fram í vísindagrein sem var birt í virtasta vísindatímariti heims í fyrra Science, svo þessi gaur er ekki mikið að fylgjast með (hér er linkur á skýringarmynd á facebook síðu Science):
    https://www.facebook.com/photo.php?fbid=796127799045858&id=100059459352979&set=a.269578968367413
    0
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      Allt skemmtilegt sem við gerum virkjar dópamín. Eigum við þá að hætta því öllu?
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjallsímar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár