Vill lifa lífinu – í stað þess að horfa á aðra gera það

Hin 25 ára Ólafía Sigurðar­dóttir vill frekar nýta snjall­símann sem vinnutól og hefur því verið að ganga með samloku­síma nánast allt þetta ár. „Ég finn svo skýrt að ég vilji ekki vera í símanum. Mig langar að eyða tímanum og lífinu mínu í eitthvað annað.“

Hluti af þér
Hluti af þér Ólafíu finnst þró­unin vera í þá átt­ina að sím­inn verði hluti af fólki. Mynd: Golli

„Ég var komin með svo mikið ógeð á aðgenginu sem aðrir höfðu að mér. Og því að vera að lifa lífinu til þess að sýna öðrum það,“ segir hin 25 ára gamla Ólafía Sigurðar­dóttir, sem hefur síðustu mánuði verið að endur­skilgreina samband sitt við snjall­símann. 

Í desember fór Ólafía að ganga um með samloku­síma og skildi snjall­símann eftir heima eða notaði hann aðeins til að spila tónlist ef hún fór með hann út úr húsi.

„Ég var að reyna að nota hann meira sem vinnutól, þá til að sinna stjörnu­spekinni og Instagramminu í tengslum við það. En ég var ekkert inni á mínu,“ skýrir Ólafía, sem er stjörnu­spekingur auk þess að starfa í sundlaug.

Þegar blaða­maður náði tali af Ólafíu hafði hún nýlega flutt í íbúð sem er ekki með þráðlaust net. Hún hafði því skipt aftur yfir í að nota snjall­símann. „Bara tíma­bundið samt,“ bætir hún …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjallsímar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár