Ekkert internet heima og notar takkasíma: „Ég er alsæll án þessa alls“

Bjarki Snær Ólafsson hefur sagt skilið við snjall­símann og nettengingu heima við. Hann segist hafa upplifað frelsi við að vingast við þögnina og þykir ekki freistandi tilhugsun að snúa til baka.

Sáttur
Sáttur „Ég held það myndi koma fólki á óvart hvað jafn­vel að vera ekki með inter­net heima hjá sér er ekki vanda­mál. Þetta er ekki vanda­mál nema þú sért háður afþr­ey­ingu.“ Mynd: Golli

Bjarki Snær Ólafsson gengur um með takkasíma og hefur gert það í að verða sex ár. Fyrir þremur árum losaði hann sig líka við internetið heima hjá sér. „Hjá mér hefur ekki verið löngun að fara aftur í snjall­síma. Ekki nein. Ég er alsæll án þessa alls.“

Bjarki, sem er 29 ára og starfar á leikskóla, er ekki með útvarp heima hjá sér, en á þó sjónvarp. „Engin afþreying. Nema ég les og mála og spila á gítar.“

Er á samfélagsmiðlum og með snjallsíma í útlöndum

Bjarki á reyndar snjall­síma sem hann notar ekki nema bara í útlöndum. „Það er eiginlega nauðsynlegt til að eiga þægilega upplifun í útlöndum,“ skýrir hann. Þá notar hann internetið enn, en nálgast það á bóka­safninu og heima hjá foreldrum sínum. „Ég er á Facebook og ég er með Instagram fyrir málverkin mín.“

Spurður hvað honum finnist um samfélags­miðla segir Bjarki …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjallsímar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár