Navalny handtekinn aftur í kjölfar mótmæla

Aleksei Navalny, höfuð­andstæðingur ríkis­stjórnar Pútíns í Rússlandi, var hand­tekinn fyrir utan heimilið sitt vegna skipu­lagn­ingu á yfir­standandi mótmælum gegn ríkis­stjórninni

Lögreglumenn skárust í leikinn og handtólu fjölda mótmælenda í Moskvu í dag.
Lög­reglu­menn skár­ust í leik­inn og hand­tólu fjölda mót­mæl­enda í Moskvu í dag. Mynd: EPA

Aleksei Navanly, höfuð­andstæðingur ríkis­stjórnar Vladimir Pútín í Rússlandi, var hand­tekinn á heimilinu sínu í kjölfar þess að hann boðaði til fjölda­mótmæla í dag, á þjóð­hátíðardegi Rússa. Lögreglan hefur handtekið meira en 100 manns vegna mótmælanna nú þegar.

Þann fyrsta júní boðaði Navalny til mótmæla í dag í þætti á Youtube-síðunni sinni þar sem tilgangurinn væri að sýna styrk stjórnar­andstöðunnar og stuðning við forseta­framboð hans árið 2018. Mótmælin voru boðuð í 200 borgum og bæjum víðs vegar um landið. Dagurinn í dag var ekki valinn fyrir tilviljun, en hann er Dagur Rússlands, þjóð­hátíðar­dagur Rússa.

Mótmælin voru vel sótt, en talið er að samtals hafi margir tugir þúsunda safnast saman víðs vegar um Rússland. Samkvæmt frétta­veitunni RadioFreeEurope hafa að minnsta kosti 100 verið hand­teknir fyrir aðild sína að mótmælunum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Navalny hefur komist í kast við rússnesk yfirvöld, en hann var einnig hand­tekinn í kjölfar mótmæla sem hann stofnaði til í apríl á þessu ári. Einnig hefur hann tvisvar verið dæmdur fyrir fjárdrátt í mála­ferlum sem Mann­réttinda­dómstóll Evrópu hefur gert athuga­semdir við. Ekki hefur verið sótt um leyfi hjá yfir­völdum fyrir mótmælunum og eru þau því ólögleg samkvæmt rússneskum lögum.

Navalny og yfirvöld í Kreml hafa eldað grátt silfur saman í nokkurn tíma. Fyrr á þessu ári afhjúpaði hann spillingu forsætis­ráðherrans, Dmitry Medvedev, með Youtube-myndbandi þar sem hann sýndi m.a. lúxus­eignir ráðherrans með myndefni úr drónum. Stjórn­völd hafa svarað með þungum dómum á tveimur mótmælendum og áróðurs­myndböndum gegn Navalny sem sýnd hafa verið í háskólum.

Kona Aleksei, Yulia Navalny, sagði frá því á twitter-aðgangnum sínum að mótmælin eigi að halda áfram óbreytt þrátt fyrir handtöku mannsins síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár