Kremlarklönin - valdabarátta á bak við tjöldin í Rússlandi

Rússland hefur verið meira í fréttum hér­lendis en venju­lega und­an­farið, vegna inn­flutn­ings­banns og við­skipta­þving­ana. Fyrir tæpum tveimur árum síðan birt­ist eft­ir­far­andi frétta­skýr­ing í útgáfu veftíma­rits Kjarnans og Kjarninn ákvað að rifja hana upp í til­efni af Rúss­lands­um­ræð­unum. Rússnesk stjórn­mál eru flókin og marg­þætt. Ýmislegt hefur gerst síðan frétta­skýr­ingin var skrifuð en segja má að umrædd klíku­stjórn­mál og deilur milli ólíkra klana hafi enn frekar komið upp á yfir­borðið síðan.

Und­an­farna mánuði hefur Vladimír Pútín Rússlands­for­seti sýnt til­burði til þess að herða tök sín enn frekar á rússnesku samfélagi. Meðal ástæðna þess eru fjölmenn mótmæli gegn honum og stjórnvöldum. Raun­veru­leg stjórnar­and­staða er komin upp á yfir­borðið og við því ætla stjórnvöld að bregð­ast af hörku.

Á sama tíma og þetta á sér stað fer fram valda­barátta sem sumir lýsa sem stríði milli klíkanna í kringum for­set­ann. Frétta­skýrendur þykj­ast í það minnsta margir sjá að sitt­hvað skrýtið eigi sér nú stað á bak við tjöldin í Kreml.

Mál stjórnar­and­stæð­ings­ins Alexei Navalny er besta dæmið um það, en hann var hand­tek­inn og dæmdur í fimm ára fang­elsi í sumar. Eftir mikil mótmæli var honum sleppt úr haldi innan við sólarhring eftir að dómur var kveð­inn upp yfir honum. Honum var einnig leyft að bjóða sig fram til borg­ar­stjóra í Moskvu, á meðan áfrýjun á málinu var til með­ferðar fyrir dómstólum. Hann tap­aði kosn­ing­unum, eins og búist var við, en hlaut tæp­lega þrjátíu prósent atkvæða. Það telst stórsigur fyrir stjórnar­and­stæð­ing. Fyrr í þessum mánuði komst áfrýjun­ardómstóll að þeirri nið­ur­stöðu að Navalny væri sekur um þjófnað en dómur­inn yfir honum var skil­orðs­bund­inn. Það þýðir að hann er frjáls ferða sinna en má ekki bjóða sig fram í kjörið emb­ætti.

Flestir eru sammála um að stjórnvöld hafi haft mikið um ein­kenni­lega fram­vindu málsins að segja, og er hún talin til merkis um breyt­ingar á baráttunni milli valdahópa.

[caption id="attachment_37131" align="alignnone" width="1024"] Sergei Ivanov, starfs­manna­stjóri Pútíns, er sam­starfs­maður Pútíns til fjölda ára, allt frá því að Pútín réði Ivanov til örygg­is­lög­regl­unnar FSB.[/caption]

Hverjar eru klíkurnar?


Á bak við tjöldin í Kreml takast á flóknir hópar valda­manna, sem hafa áhrif á Pútín for­seta með ýmsum hætti. Hóparnir eru oft upp­nefndir klön og margir hafa reynt að skil­greina hópana. Flestir eru sammála um til­vist að minnsta kosti tveggja valda­klíka en sumir telja þær allt að tíu. Mikill hluti stjórnmála í Rússlandi myndi flokk­ast sem óform­leg stjórnmál og fer fram bak við luktar dyr en ekki í þing­inu. Hlutir eru ákveðnir á reglu­legum en óform­legum fundum með for­set­anum, sem engar fund­ar­gerðir eða önnur sönnun­argögn eru til um. Aðeins hluti ríkis­stjórnar­innar situr fundi af þessu tagi, auk þeirra sem eru í innsta hring starfsfólks for­set­ans. Klönin svokölluðu koma að mörgu leyti í stað hefð­bund­inna stjórnmálaflokka, sem hafa veika stöðu.

Valda­meiri hópur­inn er yfir­leitt nefndur siloviki, sem gæti á íslensku útlagst sem völd eða styrkur. Hópur­inn dregur nafn sitt af því að lang­flestir þeirra sem honum til­heyra störfuðu í leyni­þjónust­unni, lögregl­unni eða hernum eins og for­set­inn sjálfur. Þessi hópur manna var far­inn að hafa áhrif á meðan Boris Jeltsín var for­seti en völdin juk­ust til muna í fyrri for­setatíð Pútíns. Undir stjórn Dimitrís Medvedev dró aðeins úr fjölda þeirra í stjórnun­ar­stöðum en þeir hafa sótt í sig veðrið á ný eftir að Pútín hóf þriðja kjörtímabil sitt. Þessi hópur ber ábyrgð á því að risa­stór auð­linda­fyr­ir­tæki, sem voru einka­vædd í tíð Jeltsíns, voru aftur færð í eigu ríkis­ins. Ólig­arkar Jeltsíns voru hraktir á brott og menn úr siloviki-hópnum stjórna nú flestum fyr­ir­tækj­anna. Siloviki-menn vekja ótta margra, enda hafa þeir alla burði til að not­færa sér leyni­þjónust­una og aðra slíka inn­viði samfélags­ins sér til framdráttar, og þá gegn keppi­nautum sínum.

Hinn hópur­inn er kall­aður frjálslyndur, þótt hann telj­ist það ekki á vest­rænan mæli­kvarða. Uppi­staðan í þessum hópi er lögfræð­ingar, hag­fræð­ingar og emb­ætt­is­menn sem margir hverjir eru frá Sankti Péturs­borg og þekkja for­set­ann þaðan. Dimitrí Medvedev, for­sæt­isráðherra og fyrr­ver­andi for­seti, til­heyrir þessum hópi manna. Hópur­inn er hlynnt­ari alþjóðavæð­ingu, opnu mark­aðs­hag­kerfi og einka­væð­ingu upp að vissu marki.

[caption id="attachment_37129" align="alignnone" width="1024"] Dimitri Medvedev for­sæt­is­ráð­herra og Viktor Ivanov, yfir­maður fíkni­efna­mála. Þeir til­heyra hvor sinni klíkunni í stjórn lands­ins. MYND: EPA[/caption]

Áframhaldandi barátta um yfirráð


Hafa ber í huga að þessir tveir hópar breyt­ast ört og eru langt frá því að vera samrýmdir og ein­huga. Þrátt fyrir að þeir berj­ist um völdin eru þeir ekki gjörólíkir. Það sem þá greinir helst á um eru efna­hags­legir þættir. Báðir hóparnir eru fylgj­andi mjög sterku ríki, sem sýnir jafn­vel ein­ræð­istil­burði og hefur sterkan leið­toga.

Leið­tog­inn Pútín er það sem sam­einar þá og veitir þeim völdin, og hann er yfir flokka­drætt­ina haf­inn. Báðir hóparnir þarfn­ast hans og hann þarfn­ast þeirra beggja og hefur reynt að halda nokk­urs konar jafn­vægi á milli þeirra.

Und­an­farið hefur for­set­inn þó verið tal­inn hall­ast enn meira að siloviki-mönnum. Það skýrist að ein­hverju leyti af mótmæl­unum og til­raunum til að stemma stigu við þeim og annarri and­stöðu gegn honum. Þá hefur fjöldi ríkra þing­manna hætt störfum á árinu, eftir að nýjar reglur um takmörkun á eignum þeirra erlendis voru sam­þykktar. Sú ráðstöfun hefur opin­ber­lega verið sögð til að stöðva spill­ingu, sem enn er gríðar­leg í rússneskum stjórnmálum, en sérfræð­ingar segja margir að hún sé í raun hluti af til­raunum for­set­ans til að herða tök sín og draga úr tengslum við útlönd.

Staða for­sæt­isráðherr­ans Med­vedevs hefur einnig veikst mikið frá því að hann þurfti að víkja sem for­seti fyrir Pútín. Ráðgjafar sem hann réði til for­seta­emb­ætt­is­ins hafa verið látnir hætta og yfir­heyrðir vegna meintra lögbrota. Margir skipta klíkunum tveimur upp í þá sem eru með og á móti Medvedev, og völd and­stæð­inga hans hafa auk­ist und­an­farið.

Áfram­hald­andi mótmæli og hávær­ari and­staða gegn stjórnvöldum mun aðeins halda áfram að auka á spenn­una milli valda­klíkanna í Rússlandi. Það gæti þó liðið langur tími þar til spennan kemst enn meira upp á yfir­borðið, ef það ger­ist, enda enn fjögur og hálft ár eftir af kjörtímabili Pútíns. Ekki er langt síðan hann gaf í skyn að hann hygð­ist bjóða sig fram til fjórða kjörtímabils­ins og þá gæti hann verið for­seti Rússlands allt til ársins 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár