Ungt fólk mótmælir spillingu í Rússlandi

Nýverið tóku tug­þús­undir Rússa þátt í mót­mælum gegn spill­ingu. Mótmælin voru við­brögð við mynd­bandi sem sýndi víð­feðmt spill­ing­ar­net for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands. For­stöðu­maður sam­tak­anna, sem er líka for­seta­fram­bjóð­andi, hefur verið hand­tek­inn.

Alexei Navalny, sem er forsetaframbjóðandi, hefur verið handtekinn í kjölfar birtingar á myndbandinu.
Alexei Navalny, sem er for­seta­fram­bjóð­andi, hefur verið hand­tek­inn í kjöl­far birt­ingar á mynd­band­inu. Mynd: EPA

Í byrjun mars birtu sam­tökin Anti-Corruption Foundation nið­ur­stöður skýrslu sinnar í YouTube-mynd­bandi sem útskýrir í smá­at­riðum hvernig for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands og leið­togi hins ráð­andi Yedinaya Rossiya-flokks (e. United Russia), Dmitry Medvedev, hefur sett saman net af fyr­ir­tækjum og stofn­unum til þess að geta tekið við fjár­styrkjum frá helstu auð­mönnum lands­ins, hinum svoköll­uðu olí­görkum, og notað pen­ing­ana til að kaupa lysti­snekkjur, vín­ekrur og fast­eignir bæði innan og utan Rúss­lands. Samtökin upp­götv­uðu netið með því að rann­saka gögn sem var lekið af hakk­ara­sam­tök­unum Anonymous International og þá einna helst kvittun fyrir hlaupa­skóm sem Medvedev hafði látið kaupa fyrir sig.

Alexei Navalny er for­stöðu­maður Anti-Corruption Foundation og einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður stjórn­ar­and­stöð­unnar í Rúss­landi. Hann nýtur sér­stak­lega mik­illa vin­sælda meðal ungs fólks og not­ast að mestu við sam­fé­lags­miðla til að tala máli sínu enda eru flestir hefð­bundnir fjöl­miðlar í Rúss­landi, og þá sér­stak­lega sjón­varps­stöðvar í land­inu, undir sterkum áhrifum stjórn­valda. Í kjöl­far birt­ingu skýrsl­unnar og mynd­bands­ins, ásamt vin­sældum ann­ars mynd­bands sem sýnir sam­skipti skóla­stjóra við nem­endur í borg­inni Bryansk sem virð­ast leiðir á stjórn­ar­háttum núver­andi rík­is­stjórnar, til­kynnti Navalny að sunnu­dag­ur­inn síð­ast­lið­inn væri dagur aðgerða gegn spill­ingu í Rúss­landi.

Um sex­tíu þús­und manns mót­mæltu á götum úti – ekki ein­ungis í Moskvu, heldur einnig í borgum á víð og dreif um landið á borð við Vla­di­vostok, Novosi­birsk og Krasn­odar sem eru almennt taldar íhalds­sam­ari og hlynnt­ari stjórn­völdum en höf­uð­borgin – þrátt fyrir að ekki hafi verið sótt um form­leg leyfi til að halda mót­mælin. Fjöl­margir mót­mæl­endur voru hand­teknir, þar á meðal Navalny sem hlaut sekt og 15 daga fang­els­is­dóm fyrir hlut­deild sína í mót­mæl­unum.

Áhyggjuefni fyrir stjórnvöld

Þó að mót­mælin hafi verið gegn spill­ingu en ekki endi­lega gegn stjórn­völdum, eða fyrir auknu lýð­ræði í land­inu, ætti það að valda rík­is­stjórn Pútín áhyggjum að einum manni hafi verið kleift að efna til fjölda­mót­mæla ungs fólks, sem hefur alist upp með rík­is­stjórnir Pútíns og Yedinaya Rossiya-flokks­ins, á skömmum tíma með notkun sam­fé­lags­miðla sem stjórn­völd hafa tak­mark­aða stjórn á.

[adspot]

Eins og ungt fólk um allan heim nota ungir Rússar netið til að fá fréttir og upp­lýs­ingar en sjón­varps­notkun þeirra er mjög tak­mörkuð. Þegar Pútín var fyrst svar­inn inn í emb­ætti árið 2000 not­uðu ein­ungis um 2% Rússa netið reglu­lega en í dag er sú tala um 70%, og nálægt 100% meðal ungs fólks. Mótmælin gefa í skyn að stór hluti ungs fólks í Rúss­landi vilji breyt­ingar af ein­hverju tagi og hefur rík­is­stjórn Pútíns því mikið verk að vinna til að koma til móts við þær vænt­ingar enda hefur valda­tíð Pútíns ein­kennst af áherslu á stöð­ug­leika. Hinn póli­tíski veru­leiki í Rúss­landi í dag er frá­brugð­inn þeim sem ein­kenndi landið í kjöl­far falls Sov­ét­ríkj­anna og virð­ist vera að Navalny snerti taug meðal ungs fólks sem er orðið leitt á því sem fyrir þeim virð­ist vera spillt kerfi sem veiti tak­mark­aða fram­tíð­ar­sýn.

Ungur maður á uppleið

Það ber að nefna að hluti af ætlun Navalny með mót­mæl­unum er að styrkja fram­boð sitt til for­seta Rúss­lands í kosn­ingum sem eiga að fara fram á næsta ári. Ólíklegt verður að segj­ast að Pútín verði ekki end­ur­kjörin, sam­kvæmt nýlegri skoð­ana­könnun hins frjálsa rann­sókn­ar­set­urs Levada Center nýtur Pútín stuðn­ings 84% lands­manna, en sam­an­borið við mót­mæli í Rúss­landi í aðdrag­anda síð­ustu for­seta­kosn­inga árið 2012 virð­ist vera ákveðið kyn­slóða­rof að þró­ast meðal rúss­neskra kjós­enda.

Navalny hefur lagt mikla áherslu á að höfða til ungra kjós­enda út um allt Rússland og þannig skapað tengsl á milli stjórn­ar­and­stöðu­hópa í höf­uð­borg­inni og gras­rót­ar­innar í öðrum borgum og á lands­byggð­inni. Óvíst er hins vegar hvort rúss­neskir dóm­stólar munu leyfa Navalny að bjóða sig fram eftir því sem hann á yfir höfði sér fimm ára skil­orðs­bund­inn dóm fyrir fjár­svik; hann hlaut dóm­inn eftir að mál gegn honum var tekið upp á ný eftir að fyrr­ver­andi úrskurður gegn honum var felldur niður af hæsta­rétti lands­ins og lýst sem ólög­legum af Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu. Ef Navalny verður ekki leyft að bjóða sig fram er ekki ólík­legt að það muni styrkja hugs­an­legt fram­boð hans til for­seta árið 2024 en þá mun Pútín, sam­kvæmt núver­andi stjórn­ar­skrá, ekki geta boðið sig fram aftur til end­ur­kjörs.

Samkvæmt Levada Center vita ein­ungis 47% af Rússum í dag hver Navalny er en honum er meinað að koma fram í sjón­varpi og er hann að miklu leyti álit­inn með tor­tryggni af eldri kjós­endum. Eftir því sem lýð­fræðin og notkun sam­fé­lags­miðla vinna með Navalny gætu kosn­ing­arnar 2024 verið raun­hæf­ari mögu­leiki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár