Væntanlegur forsetaframbjóðandi dæmdur í annað sinn

Alexei Navalny, stjórn­ar­and­stöðu­leið­togi í Rúss­landi, var í gær dæmdur í fimm ára skil­orðs­bundið fang­elsi í annað sinn í sama máli. Navalny ætlar að bjóða sig fram til for­seta árið 2018 sama hvað.

Rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Alexei Navalny var í gær dæmdur sekur um fjár­drátt og dæmdur í fimm ára skil­orðs­bundið fang­elsi.

Ef dóm­ur­inn stendur þýðir það að Navalny getur ekki boðið sig fram til for­seta Rúss­lands árið 2018, eins og hann hafði áformað. Hann hefur hins vegar heitið því að áfrýja og halda áfram sama hvað ger­ist í rétt­ar­salnum. Hann sagði greini­legt að dóm­ur­inn yfir honum væru skila­boð frá stjórn­völdum í Kreml um að hann, fólkið í kringum hann og þeir Rússar sem eru sam­mála honum séu talin of hættu­leg til að hægt sé að hleypa honum í kosn­inga­bar­átt­una. „Þessum dómi verður snúið. Ég er í fullum rétti sam­kvæmt stjórn­ar­skránni að taka þátt í kosn­ingum, og ég mun gera það. Ég mun halda áfram að vera full­trúi hags­muna fólks sem vill að Rússland verði venju­legt, heið­ar­legt, ekki spillt ríki,“ sagði hann í rétt­ar­salnum í gær.

Rétt­ar­höldin eru af mörgum talin til­raun til þess eins að þagga niður í Navalny og koma í veg fyrir að hann bjóði sig fram, enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem hann er dæmdur í mál­inu. Navalny er sak­aður um að hafa skipu­lagt stuld á miklu magni af timbri frá rík­is­reknu fyr­ir­tæki, KirovLes. Frá því að rann­sókn á mál­inu hófst í lok árs 2011 var henni margoft hætt vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum, en svo tekið upp að nýju. Hann var fyrst sak­felldur árið 2013 í sama máli, og dæmdur í fimm ára fang­elsi. Eftir mikil mót­mæli var honum sleppt úr haldi innan við sól­ar­hring eftir að dómur var kveð­inn upp yfir hon­um. Honum var einnig leyft að bjóða sig fram til borg­ar­stjóra í Moskvu, á meðan áfrýjun á mál­inu var til með­ferðar fyrir dóm­stól­um. Hann tap­aði kosn­ing­un­um, eins og búist var við, en hlaut tæp­lega þrját­íu pró­sent atkvæða. Það telst stór­sigur fyrir stjórn­ar­and­stæð­ing. Áfrýj­un­ar­dóm­stóll komst að þeirri nið­ur­stöðu að Navalny væri sekur en dóm­ur­inn yfir honum var skil­orðs­bund­inn.

Málið var tekið fyrir aftur eftir að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu gerði athuga­semdir við máls­með­ferð­ina í fyrra. Lögmaður Navalny sagði við blaða­menn í gær að dóm­ur­inn í gær hefði ekki gert neitt til að svara gagn­rýni mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Nið­ur­staðan hafi byggt á sömu sönn­un­ar­gögnum og síð­ast og sami dómur kveð­inn upp. Navalny birti dóm­inn frá því fyrir þremur árum síðan í gær í bútum á Twitter til að sýna fram á að nið­ur­staðan væri nákvæm­lega sú sama, orð fyrir orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár