Fékk 2,7 milljóna króna sekt fyrir margháttuð og alvarleg brot á peningaþvættislögum

Annmarkar voru á flestum þáttum starfsemi gjaldeyris­skipta­miðstöðvar sem hóf starfsemi snemma árs 2020. Fyrir­tækið stundaði meðal annars áfram viðskipti við aðila eftir að peningaþvættis­eftirlitið hafði sent tilkynningu um grun­samleg viðskipti þeirra.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands birti samkomulag um sátt við FX Iceland í liðinni viku.
Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands birti sam­komu­lag um sátt við FX Iceland í lið­inni viku. Mynd: Seðlabanki Íslands

Fjármála­eftirlit Seðla­banka Íslands hefur sektað fyrir­tækið FX Iceland ehf., sem rekur gjaldeyrisskiptastöð, um 2,7 milljónir króna fyrir marg­háttuð og alvarleg brot á lögum um aðgerðir gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem samþykkt voru á Alþingi í desember 2018 og tóku gildi í byrjun árs 2019. Samkvæmt lögunum hefur eftir­litið heimild til að leggja stjórnvalds­sektir á fyrirtæki sem brjóta gegn lögunum frá 500 þúsund krónum að 500 milljóna króna.

Athugun Fjármála­eftirlitsins á starfsemi fyrir­tækisins leiddi í ljós víðtæka veikleika sem fólu í sér alvarleg brot gegn grundvallar­þáttum í vörnum gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Aftur á móti horfði Fjármála­eftirlitið til þess að umfang starfsemi málsaðila var lítið og að málsaðili var nýbúinn að hljóta skráningu sem gjaldeyrisskiptastöð þegar kórónu­veiru­faraldurinn hófst. Til lækkunar á sektar­fjárhæð horfði Fjármála­eftirlitið horft til þess að um væri að ræða fyrsta brot málsaðila, að málsaðili sýndi samstarfs­vilja við meðferð málsins sem fólst í því að gera að fyrra bragði áætlun um úrbætur og upplýsa um framgang þeirra. Þá leit Fjármála­eftirlitið við ákvörðun sektar­fjárhæðir til fjárhags­stöðu málsaðila.

Málinu var lokið með samkomu­lagi um sátt milli FX Iceland og Fjármála­eftirlitsins sem birt var á vef Seðla­bankans í síðustu viku.

Eigendur FX Iceland, sem fékk starfs­leyfi um mitt ár 2019 og opnaði gjaldeyrisskiptastöð sína á Hafnar­torgi snemma árs 2020, eru Berg­sveinn Sampsted, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri hjá Valitor, og Hrönn Sveins­dóttir, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri fjármála- og rekstrar­sviðs Sýnar. Þau eru hjón.

FX Iceland var með 22 milljónir króna í rekstrar­tekjur á árinu 2020 og tapaði alls 1,1 milljón króna.

Viðvarandi viðskiptasamband

Málið á rætur sínar að rekja til þess að Fjármála­eftirlitið réðst í vettvangs­rannsókn hjá fyrir­tækinu í nóvember 2020. Markmiðið var að kanna hvort FX Iceland væri að starfa í samræmi við áðurnefnd lög.

Í samkomu­laginu sem birt var í liðinni viku kemur fram að á meðal þess sem eftir­litið gerði í vettvangs­rann­sókninni var að taka úrtak 20 stærstu viðskipta­manna málsaðila. „Í ljós komu annmarkar sem snéru að aðgerðum málsaðila gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Voru annmarkar taldir vera á flestum þáttum sem teknir voru til skoðunar, m.a. áhættu­mati málsaðila á rekstri sínum og viðskiptum, framkvæmd áreiðanleika­kannana, reglu­bundnu eftirliti, verk­ferlum, tilkynningum til skrif­stofu fjármála­greininga lögreglu (SFL) og varð­veislu gagna.“

Á meðal þess sem kemur fram í skjalinu er að við yfirferð gagna um 20 stærstu viðskipta­menn málsaðila hafi komið í ljós að alls 14 viðskipta­menn hafi stundað viðskipti umfram 15 þúsund evrur. „Í áhættu­mati málsaðila kom fram að m.a. skyldi framkvæma aukna áreiðanleika­könnun þegar viðskipta­maður stundaði viðskipti með 15.000 evrur í einstökum viðskiptum eða samanlagt. Þá reyndist málsaðili hafa stundað viðskipti við tvo viðskipta­menn eftir að Skrif­stofa fjármála­greininga lögreglu, sem sinnir eftirliti með peninga­þvætti, sendi tilkynningu um grun­samleg viðskipti vegna þeirra. „Málsaðili framkvæmdi ekki aukna áreiðanleika­könnun í framan­greindum tilvikum, þ.e. hvorki í þeim tilvikum þar sem viðskipta­menn stunduðu viðskipti fyrir 15.000 evrur eða meira né í þeim tilvikum sem málsaðili stundaði viðskipti við viðskipta­menn eftir að hafa sent tilkynningu um grun­samleg viðskipti þeirra.“

Upplýsingar um 20 stærstu viðskipta­menn málsaðila leiddu í ljós að í öllum tilvikum var um viðvarandi viðskipta­samband að ræða þar sem sömu einstaklingarnir komu ítrekað með háar fjárhæðir án þess að málsaðili óskaði frekari upplýsinga eða stað­festinga þeim tengdum.

Þá kom einnig fram í vettvangs­rann­sókninni að FX Iceland óskaði ekki eftir því að viðskipta­menn sem stunduðu viðskipti að jafnvirði 150 evrur eða minna gerðu grein fyrir sér með nafni eða persónu­skilríkjum. Í kerfum fyrir­tækisins voru slíkir viðskipta­menn merktir sem „walk-in” og frekari upplýsingar um þá ekki skráðar.

Ísland lenti á gráum lista vegna ónógra peningaþvættisvarna

FATF, alþjóð­legur fjár­­­mála­að­gerða­hópur ríkja um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögn­un hryðju­verka, setti Ísland á gráan lista sam­tak­anna í októ­ber árið 2019, meðal ann­ars vegna þess að þau töldu skort vera á upp­lýs­ingum um eign­ar­hald íslenskra félaga. Sam­tökin gáfu eft­ir­liti hér á landi með pen­inga­þvætti fall­einkunn í kjöl­far úttektar sem þau gerðu á Íslandi, en sú nið­ur­staða lá fyrir vorið 2018.

Alls var gerð athuga­semd við 51 atriði í laga- og reglu­gerð­ar­um­hverfi Íslands og því hvernig við fram­fylgjum eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

FATF ákvað að fjar­lægja Ísland af gráa listanum í október 2020 eftir að marg­háttaðar úrbætur voru gerðar í vörnum gegn þeim mál­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár