Árið þar sem áhyggjur af peningaþvætti flutu upp á yfirborðið á Íslandi

Árið 2019 var árið þegar Íslend­ingar fóru að hafa veru­legar áhyggjur af því að hér gæti mögu­lega verið stundað umfangs­mikið pen­inga­þvætti. Ástæðan var sú að allar hefð­bundnar varnir lands­ins við slíkri óværu voru í ólagi.

26. október 2018: Eftirlit Íslendinga með peningaþvætti fær falleinkunn

Árum saman starf­aði einn maður á pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu Íslands. Alþjóð­legur fram­kvæmda­hópur hefur gert marg­hátt­aðar athuga­semdir við eft­ir­lit með pen­inga­þvætti hér­lendis og kraf­ist úrbóta. Lítið sem ekk­ert frum­kvæði var í að rann­saka mögu­legt pen­inga­þvætti á fjár­magns­haft­ar­ár­unum. Búið er að setja Íslandi úrslita­kosti. Úrbætur þurfa að vera gerðar fyrir mitt næsta ár.

6. janúar 2019: Umfjöllun leiddi til aukningar á tilkynningum um peningaþvætti

Alls mót­tók pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa hér­aðs­sak­sókn­ara 655 til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti á árinu 2016. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2018 urðu þær rúm­lega 800 tals­ins.

8. mars 2019: Varnarlaus gagnvart peningaþvætti árum saman

Ísland er í kappi við tím­ann að sýna alþjóð­legum sam­tökum að landið sinni almenni­legu eft­ir­liti gagn­vart pen­inga­þvætti, eftir að hafa fengið fall­ein­kunn í úttekt í fyrra. Vanda­málið er ekki nýtt af nál­inni. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði úttektir á íslenskum bönkum árið 2007 þar sem voru gerðar alvar­legar athuga­semdir við fram­kvæmd eft­ir­lits með þvætti. Þeim var ekki fylgt eftir „vegna starfs­manna­skorts og sér­stakra aðstæðna á fjár­mála­mark­aði.“

31. maí 2019: FME gerði fjölmargar athugasemdir við aðgerðir Arion banka gegn peningaþvætti

Athugun FME á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti leiddi í ljós fjöl­margar brotala­mir að mati eft­ir­lits­ins. Nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir í jan­úar en var ekki birt fyrr en á mið­viku­dag. Arion banki seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum.

12. júní 2019: Lögmenn vildu að lögmenn hefðu eftirlit með lögmönnum

Lög­manna­fé­lag Íslands taldi eðli­legt að eft­ir­lit með því hvort að lög­menn væru að fara eftir nýjum lögum sem tengj­ast pen­inga­þvætt­is­vörnum væri í höndum þess, en ekki Rík­is­skatt­stjóra líkt og frum­varpið gerði ráð fyrir.

9. ágúst 2019: FME upplýsir ekki um hvort það sé að skoða varnir þriggja banka gegn peningaþvætti

Þrjár athug­anir standa yfir á á vegum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á aðgerðum eft­ir­lits­skyldra aðila gegn pen­inga­þvætti. Eft­ir­litið svarar því ekki hvort verið sé að athuga Lands­bank­ann, Íslands­banka og Kviku, en það hefur þegar opin­berað nið­ur­stöðu sína á athugun á Arion banka. Sú athugun leiddi í ljós fjöl­margar brotala­mir.

27. ágúst 2019: Ísland áfram í aukinni eftirfylgni vegna peningaþvættisvarna

Loka­út­gáfa skýrslu um pen­inga­þvætt­is­varnir Íslands, vegna athug­unar sem alþjóð­leg sam­tök hafa unnið að frá því í fyrra­vor, mun verða birt fyrstu vik­una í sept­em­ber. Á meðal þess sem fram kemur í henni er að Ísland verður áfram í „auk­inni eft­ir­fylgni“ hjá sam­tök­unum.

29. ágúst 2019: FME fékk „hvassa brýningu“ vegna peningaþvættisvarna

Þegar Fin­ancial Act­ion Task Force (FAT­F), alþjóð­leg sam­tök gegn pen­inga­þvætti, felldi áfell­is­dóm yfir lög­gjöf og eft­ir­liti Íslend­inga með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í fyrra­vor fékk „Fjár­mála­eft­ir­litið og ýmsir aðrir hvassa brýn­ingu um að taka til hend­inni og verða við úrbóta­kröfum alþjóða­sam­fé­lags­ins.“

9. september 2019: Ísland hefur uppfyllt 70 prósent tilmæla FATF að öllu eða mestu leyti

Ísland var enn í eft­ir­fylgni vegna varna sinna gegn pen­inga­þvætti. Miklar úrbætur höfðu orðið síð­ast­liðið ár vegna hót­ana um að setja Ísland á lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki og varn­irnar styrktar.

18. september 2019: Takmarka þarf notkun á reiðufé í spilakössum til að stöðva peningaþvætti

Í aðgerð­ar­á­ætlun gegn pen­inga­þvætti er lagt til að lögum verði breytt þannig að nafn­lausir spil­arar í spila­kössum geti ekki sett háar fjár­hæðir í þá, tekið þær síðan út sem vinn­inga og látið leggja þær inn á sig sem lög­lega vinn­inga.

19. september 2019: Seðlabankann skorti þekkingu á hættumerkjum við peningaþvætti

Mikil áhætta á pen­inga­þvætti fylgdi fjár­magns­höftum á Íslandi og þeim leiðum sem valdar voru til að losa um þau. Seðla­banki Íslands þarf að grípa til marg­hátt­aðra aðgerða til að draga úr þeirri áhættu, nú nokkrum árum eftir að höftum var að mestu aflétt. Meðal ann­ars á að breyta lögum til að afnema þagn­ar­skyldu vegna gjald­eyr­is­eft­ir­lits.

21. september 2019: Þjálfa þarf peningahund til að berjast gegn peningaþvætti

Embætti toll­stjóra skortir bæði þekk­ingu og úrræði til að geta almenni­lega haft eft­ir­lit með smygli á reiðufé til Íslands. Á meðal þeirra úrræða sem lagt er til að ráð­ist verði í er að þjálfa pen­inga­hund.

22. september 2019: Ómögulegt að fá heildstæða mynd af gjaldeyriskaupum útlendings

Sami útlend­ing­ur­inn getur átt í umtals­verðum við­skiptum með gjald­eyri á Íslandi án þess að slíkt flagg­ist. Ástæðan er sú að allir erlendir kaup­endur á gjald­eyri eru skráðir undir sömu kenni­töl­unni hjá fjár­mála­stofn­unum. Kenni­tölu „ótil­greinds útlend­ings“.

28. september 2019: Skortur á áhættuvitund á meðal lögmanna

Fjöldi lög­manna virð­ist ekki vera með­vit­aður um með hvaða hætti þjón­usta þeirra getur verið mis­notuð til að þvætta pen­inga. Sú ógn sem staf­aði af of litlu eft­ir­liti með starf­semi þeirra var metin mikil.

30. september 2019: Rannsóknir sýna stórfelld skattsvik í 64 Panamamálum

Búið er að vísa 64 málum sem tengj­ast Panama­skjöl­unum til hér­aðs­sak­sókn­ara til refsi­með­ferðar. Alls er rann­sókn lokið í 96 málum sem tengj­ast skjöl­unum og sjö mál er enn í ferli. Und­an­dregnir skatt­stofnar í þeim málum sem búið er að rann­saka eru 16,4 millj­arðar króna. Þorri fjár­mun­anna var falin í skatta­skjólum.

17. október 2019: Segir Bandaríkin og Bretland vilja Ísland á lista yfir ósamvinnuþýð ríki

Það mun skýr­ast í lok viku hvort Íslandi muni takast að forð­ast það að lenda á lista með ríkjum með vafa­samt stjórn­ar­far vegna lélegra varna lands­ins gegn pen­inga­þvætti. Nánast ekk­ert var í lagi hér­lendis í þeim vörnum ára­tugum saman.

17. október 2019: Leiðari: Ríkið sem vildi ekki sjá peningaþvættið heima hjá sér

„Það var hægt að fara á eftir þeim pen­ingum sem komið var undan hér­lend­is, en það var ákveðið að gera það ekki. Það var hægt að grípa þá þegar þeir flæddu aftur inn í íslenskt efna­hags­líf, en það var ákveðið að gera það ekki. Það var hægt að laga aug­ljósar brotala­mir víða í íslenska kerf­inu, en það var ákveðið að gera það ekki.“

18. október 2019: Ísland á gráa listann vegna peningaþvættis

Ísland hefur verið sett á gráa lista FATF ásamt Mongólíu og Simbabve. Aðgerðir sem ráð­ist hefur verið í síð­ast­liðið eitt og hálft ár reynd­ust ekki nægj­an­legar.

21. október 2019: Leiðari: Það er ekki ósmekklegt að segja satt

„Til að eyða þessum vafa blasir við að ráð­ast þarf í opin­bera rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Það þarf að gera það á grund­velli laga um rann­sókn­ar­nefndir Alþingis og opin­bera þá sem fengu að nýta sér leið­ina. Leið sem, að mati Seðla­bank­ans sjálfs, gætti ekki jafn­­ræð­is, stuðl­aði að nei­­kvæðum áhrifum á eigna­­skipt­ingu, opn­aði mög­u­­lega á pen­inga­þvætti, og gerði „óæski­­legum auð­­mönn­um“ kleift að flytja hingað fé úr skatta­­skjól­­um. Og svo fram­­veg­­is. Það væri í raun ósmekk­legt að gera það ekki.“

24. október 2019: Leiðari: Seðlabankinn sem villtist af leið

„En það sem liggur fyrir er að það veit eng­inn fyrir víst hvað gerð­ist, vegna þess að eng­inn fylgd­ist almenni­lega með því og eng­inn hefur rann­sakað það af neinu viti. Rök­studdur grunur er um að þessi leið, sem aug­ljós­lega gat nýst til pen­inga­þvættis sökum skil­mála og eft­ir­lits­leys­is, hafi verið nýtt í þeim til­gangi en engin leið er til að sanna það nema að hún verði að fullu rann­sök­uð.“

24. október 2019: Höfðu meiri áhuga á að kaupa riffla fyrir sérsveit en að rannsaka efnahagsbrot

Menn sem lærðu allt sem þeir vita um lög­gæslu með því að horfa á amer­íska lög­reglu­þætti hafa skiln­ing á því að sér­sveitir þurfa riffla en skilja ekki að það þurfi vits­muna­lega þekk­ingu til að takast á við efna­hags­brot, segir sak­sókn­ari.

27. október 2019: Af hverju er Ísland á gráa listanum?

Ísland rataði fyrr í þessum mán­uði á svo­kall­aðan gráan lista vegna ónógra varna gegn pen­inga­þvætti. Ráðamenn hafa lýst mik­illi van­þóknun á því að Ísland hafi verið sett á list­ann og ítrekað full­yrt að hér hafi eft­ir­lit að mestu verið með við­un­andi móti, auk þess sem brugð­ist hafi verið við ábend­ingum. En hvernig má þá vera að fram­sækna lýð­ræð­is­ríkið Ísland geti ratað á svona lista, og í þann félags­skap sem þar er að finna, eitt ríkja innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins?

31. október 2019: Össur fékk fyrirspurn um veru Íslands á gráa listanum í miðjum viðræðum um fjármögnun

For­stjóri Össurar segir það mjög alvar­legt að Ísland sé á gráum lista sam­taka sem hafi eft­ir­lit með pen­inga­þvætt­is­vörnum. Það hafi ekki áhrif á fjár­mögnun fyr­ir­tæk­is­ins sem hann stýrir vegna þess að það fjár­magni sig í gegnum erlend dótt­ur­fé­lög.

31. október 2019: Óvissa um hvaða áhrif vera Íslands á gráa listanum mun hafa

Það kann að vera að ein­hverjir gagn­að­ilar fyr­ir­tækja á íslandi vilji fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun vegna þess að Ísland er á gráum lista FATF þó svo að sam­tökin kalli ekki sér­stak­lega eftir því.

8. nóvember 2019: Ísland á bannlista á Kýpur vegna peningaþvættisógna

Íslenskir við­skipta­vinir banka á Kýpur hafa ekki getað milli­fært fjár­muni af reikn­ingum þar inn á reikn­inga hér­lendis. Vandamál á Íslandi að fjár­mála­fyr­ir­tæki kanni ekki bak­grunn við­skipta­vini sína nægi­lega vel.

8. nóvember 2019: Grunur um að hundruðum milljóna hafi verið skotið undan í máli tengt fjárfestingarleiðinni

Í nán­ustu fram­tíð verður tekin ákvörðun um hvort að ráð­ist verði í refsi­með­ferð í máli tengt fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur rann­sakað um nokk­urt skeið.

11. nóvember 2019: AGS segir að það þurfi kerfisbreytingar til að koma íslensku „vaxtarvélinni“ í gang

Íslensk stjórn­völd og vinnu­mark­aður brugð­ust hratt og rétt við þeim áföllum sem urðu í efna­hags­líf­inu í ár. Til lengri tíma þarf hins vegar að búa til nýjar atvinnu­stoðir undir íslenska efna­hags­lífið til að draga úr áhættu og tryggja hag­vöxt.

14. nóvember 2019: Farið fram á að rannsóknarnefnd verði skipuð um fjárfestingarleiðina

Þrír stjórn­mála­flokkar leggja til að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Hún á að greina hvaðan þeir tugir millj­arðar króna sem færðir voru inn í landið í gegnum hana komu og opin­bera hverjir fengu að nýta sér leið­ina. Þá á nefndin sér­stak­lega að skoða hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi verið notuð til pen­inga­þvættis.

16. nóvember 2019: Rannsókn Alþingis á fjárfestingarleiðinni gæti náð yfir Samherja

Samherji flutti rúm­lega tvo millj­arða króna í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Þeir pen­ingar komu frá félagi sam­stæð­unnar á Kýpur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Samherja í Namibíu.

5. desember 2019: Fá þrjá mánuði til að upplýsa um raunverulega eigendur

Árum saman hefur það verið látið við­gang­ast á Íslandi að yfir­völd hafa ekki fengið að vita hverjir séu raun­veru­legir eig­endur félaga sem hér stunda atvinnu­starf­semi. Nú stendur til að flýta breyt­ingum á þeirri stöðu.

7. desember 2019: Leiðari: Það hagnast enginn á ógagnsæi nema sá sem hefur eitthvað að fela

„Von­andi ber okkur nú gæfa til að koma öllum þessum málum í lag í eitt skipti fyrir öll. Það hagn­ast nefni­lega eng­inn á ógagn­sæi nema sá sem hefur eitt­hvað að fela. Reglur sam­fé­lags­ins eiga ekki að vera sniðnar að hans þörf­um, heldur allra hinna.“

9. desember 2019: Birta niðurstöðu athugana á peningaþvættisvörnum ríkisbanka fyrir jól

Fjár­mála­eft­ir­litið mun birta nið­ur­stöðu athug­ana á pen­inga­þvætt­is­vörnum Lands­bank­ans og Íslands­banka, sem báðir eru í rík­i­s­eigu, og Kviku banka, sem er einka­banki, á næstu tveimur vikum. Áður hefur eft­ir­litið birt nið­ur­stöðu Arion banka. Í þeirri athugun opin­ber­uð­ust fjöl­margar brotala­mir.

12. desember 2019: Dugar ekki til að koma Íslandi af gráa listanum

Það að flýta þeim fresti sem íslensk félög hafa til að skrá raun­veru­lega eig­endur sína mun ekki eitt og sér duga til að koma Íslandi af gráum lista vegna ónógra pen­inga­þvætt­is­varna.

23. desember 2019: Varnir Kviku gegn peningaþvætti í lagi árið 2017 en í ólagi árið 2019

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur fram­kvæmt tvær athug­anir á pen­inga­þvætt­is­vörnum Kviku banka frá árinu 2017. Í þeirri fyrri var nið­ur­staðan að bank­inn hefði stað­ist prófið. Í þeirri nýju féll hann á því.

26. desember 2019: Bankarnir bentu aldrei á neina alvöru viðskiptavini

Á árunum fyrir hrun, þegar framin voru stór­felld efna­hags­brot í banka­kerf­inu og víðar, var Helgi Magnús Gunn­ars­son yfir efna­hags­brota­deild lands­ins. Hann segir að pen­inga­þvætt­is­til­kynn­ingar hafi flestar borist frá gjald­kerum vegna pilta í fíkni­efna­við­skiptum en að bank­arnir hafi aldrei sent ábend­ingar um stóru við­skipta­vin­ina sem voru að flytja millj­arða milli staða. Þá bendir hann á að það ráði eng­inn utan­að­kom­andi sér­fræð­inga til að finna sann­leik­ann um sig, enda ekki rök­rétt að leggja sönn­un­ar­gögn fram gegn sjálfum sér.

3. janúar 2020: Peningaþvættisvarnir stóðust prófið fyrir nokkrum árum en féllu á því í fyrra

Fjár­mála­eft­ir­litið fram­kvæmdi athugun á pen­inga­þvætt­is­vörnum allra við­skipta­banka fyrir nokkrum árum. Nið­ur­stöður voru birtar 2016 og 2017. Þær sögðu að staðan væri í lagi. Í fyrra voru birtar nýjar nið­ur­stöður, eftir nýjar athug­anir. Þar komu fram marg­vís­legar brotala­mir, sér­stak­lega um að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur félaga eða fjár­muna hafi almennt verið metnar með sjálf­stæðum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið undanfarið ár