Mynd: Seðlabanki Íslands.

Farið fram á að rannsóknarnefnd verði skipuð um fjárfestingarleiðina

Þrír stjórn­mála­flokkar leggja til að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Hún á að greina hvaðan þeir tugir millj­arðar króna sem færðir voru inn í landið í gegnum hana komu og opin­bera hverjir fengu að nýta sér leið­ina.

Allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar hafa sam­eig­in­lega lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipuð verði þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd af Alþingi til að rann­saka hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Í til­lög­unni er farið fram á að nefndin geri grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf. Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Nefndin, verði til­lagan sam­þykkt, á að skila nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. októ­ber 2020. Fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar er Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Alls eru 17 þing­menn skrif­aðir fyrir henni.

Rétt að óháður aðili rannsaki, ekki bara Seðlabankinn sjálfur

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi verið gagn­rýnd af ýmsum ástæðum, en telja verði sér­stak­lega mik­il­vægt í ljósi umræðu um aflandseignir og skattaund­an­skot á síð­ustu miss­erum að leit­ast verði við að rann­saka og fjalla um hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi stuðlað að því að fjár­magn vegna skattaund­an­skota, sem geymt var í skjóli á aflandseyjum, hafi verið fært til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina með afslætti. Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi hafi til að mynda komið fram að ekki væri hægt að úti­loka að í ein­hverjum til­vikum hafi ekki verið farið í einu og öllu að ákvæðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.

Þar er enn fremur vísað í skýrslu sem Seðla­banki Íslands lét sjálfur vinna um fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar og ann­arra gjald­eyr­is­út­boða á árunum 2011 og 2015, og birt var í ágúst síð­ast­liðnum og sagt að í þeirri skýrslu kunni ein­hver svör að liggja við þeim spurn­ingum sem skipun rann­sókn­ar­nefndar á að svara. „Í ljósi þeirra gríð­ar­legu miklu fjár­muna og áhrifa sem fjár­fest­inga­leiðin hefur haft á íslenskt efna­hags­líf er að mati flutn­ings­manna rétt­ast að óháður aðili fjalli um fram­kvæmd útboð­anna frekar en sá aðili sem rann­sóknin mun snúa að.“

206 milljarðar króna

Fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið Seðla­­­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­­­ar­­­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­­­hengju, krón­u­­­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­­­stæð­­­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­­­­­­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­­­­­­ast út úr íslenska hag­­­­­­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­­­­­­­­­­­búnir að koma til Íslands og fjár­­­­­­­­­­­festa fyrir hann. Seðla­­­­­­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­­­­­­­­­­­göng­u­að­ila sem gerði við­­­­­­skiptin mög­u­­­­­­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­­­­­­sala og neyt­endur sam­­­­­­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið­inni frá því í febr­­­­­­úar 2012 til febr­­­­­­úar 2015, þegar síð­­­­­­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar, sem sam­svarar um 206 millj­­­­­­örðum króna.

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­­­­bank­ans, líkt og venju­­­­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­kost­­­­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Afslátt­­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­­arðar króna.

Í skýrslu sem Seðla­banki Íslands birti um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í sumar kom fram aflands­fé­lög frá lág­skatta­svæðum hefðu flutt inn 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum leið­ina. Eðli­legt væri, í ljósi sög­unn­ar, að gagn­rýna að það hefði verið ger­legt að ferja fjár­muni frá slíkum svæðum í gegnum hana.

Samherji á meðal þeirra sem nýttu sér leiðina

Þótt stjórn­völd hafi ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina hingað til þá hafa fjöl­miðlar getað upp­lýst um félög í eigu aðila sem það gerð­u. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­­munds­­sona, Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, Jóns Ólafs­­son­­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­­spyrn­u­­manns­ins Gylfa Þórs Sig­­urðs­­son­­ar, Ólafs Ólafs­­son­­ar, Hjör­­leifs Jak­obs­­son­­ar, Ármanns Þor­­valds­­son­­ar, Kjart­ans Gunn­­ar­s­­son­­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­er­s­­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­­ar.

Á meðal ann­arra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina var til að mynda félag í eigu Samherja, sem hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farna daga. Um er að ræða félagið Esju Seafood á Kýpur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Samherja í Namibíu. Esja Seafood lán­aði öðru félagið Samherja, Kaldbaki, um tvo millj­arða króna árið 2012 í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Í Stund­inni á þriðju­dag var greint frá því að Kald­bakur hafi meðal ann­ars lánað enn öðru félagi Samherja, Katta­nefi ehf., 300 millj­ónir króna til að fjár­festa í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Það félag var svo selt til Ramses II ehf., félags í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, árið 2017, á 325 millj­ónir króna. Samherji lán­aði Ramses II fyrir kaup­unum.

Rannsókn vegna undanskota á lokastigi

Kjarninn greindi frá því í lok síð­ustu viku að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi um nokk­urt skeið haft eitt mál tengt ein­stak­lingi sem nýtti sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands til form­legrar rann­sókn­ar. Með­ferð þess máls er langt komin og ákvörðun um refsi­með­ferð verður tekin á næstu dögum eða örfáu vik­um. Í því máli er grunur um und­an­skot fjár­magnstekna er nemur á þriðja hund­rað millj­óna króna.

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri sagði þá við Kjarnann að emb­ættið hafi alls aflað gagna í um tíu málum ein­stak­linga eftir að það fékk afhent gögn um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina sem leiddi til hinnar form­legu rann­sóknar á mál­inu sem nú er beðið ákvörð­unar um refsi­með­ferð í.

Að sögn Bryn­dísar er emb­ætti rík­is­skatt­stjóri líka með umrædd gögn um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. „Til að koma í veg fyrir tví­verknað sam­mælt­ust emb­ættin um að þau yrðu skoðuð frekar undir for­merkjum eft­ir­lits. Ef við þá skoðun vaknar grunur um skatt­svik ber að til­kynna skatt­rann­sókn­ar­stjóra þar um sem tekur ákvörðun um fram­hald máls­ins. Það hefur að minnsta kosti ekki enn verið gert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingaleiðin

Mest lesið undanfarið ár