Mynd: Sebastien Decoret

Fá þrjá mánuði til að upplýsa um raunverulega eigendur

Árum saman hefur það verið látið við­gang­ast á Íslandi að yfir­völd hafa ekki fengið að vita hverjir séu raun­veru­legir eig­endur félaga sem hér stunda atvinnu­starf­semi. Nú stendur til að flýta breyt­ingum á þeirri stöðu.

Efnahags- og við­skipta­nefnd hefur lagt fram nýtt frum­varp sem flýtir því að allir lög­að­ilar sem stunda ein­hvers­konar atvinnu­rekstur á Íslandi þurfa að upp­lýsa um, og skrá, hverjir raun­veru­legir eig­endur þeirra séu. Nefndin leggur til að frestur til að upp­lýsa um raun­veru­legt eign­ar­hald verði styttur frá 1. júní 2020 til 1. mars 2020. Verði frum­varpið sam­þykkt munu félög því hafa tæpa þrjá mán­uði til að upp­lýsa yfir­völd um hverjir eigi þau í raun og veru.

Þegar er í gildi kvaðir um að upp­lýsa um raun­veru­lega eig­endur þegar nýtt félag er stofnað. Þær hafa verið í gildi frá 30. ágúst síð­ast­liðnum og frá 1. des­em­ber hefur verið hægt að senda upp­lýs­ingar um hverjir þeir eru með raf­rænum hætti til rík­is­skatt­stjóra.

Upp­haf­lega stóð til að gefa öðrum félögum, þ.e. þeim sem þegar eru í rekstri, frest til 1. des­em­ber 2019 til að koma upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur til emb­ættis rík­is­skatt­stjóra. hefði sá frestur haldið ætti rík­is­skatt­stjóri því að vera kom­inn með allar upp­lýs­ingar um eig­endur félaga sem starfa á Íslandi, ef allir fylgdu lög­unum.

Efnahags- og við­skipta­nefnd ákvað hins vegar að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu um að lengja frest­inn þegar málið var í með­förum henn­ar. Nú hefur sama nefnd lagt fram nýju breyt­ing­ar­til­lögu um að stytta hann aftur.

Í milli­tíð­inni hefur það nefni­lega gerst að alþjóð­legur vinnu­hópur um um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, Financial Action Task Force (FATF), hefur sett Ísland á gráan lista fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum sam­tak­anna um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætti á Íslandi. Ein af athuga­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Íslandi.

Hægt að komast upp með að fela eignarhald

Ein helsta vörn gegn pen­inga­þvætti er að þekkja við­skipta­vini sína. Raunar er það for­senda þess að t.d. fjár­mála­fyr­ir­tæki megi taka að sér nýja við­skipta­vini, að fyr­ir­liggi hverjir þeir raun­veru­lega séu og hver upp­runi fjár­muna þeirra er.

Á Íslandi hefur verið hægt að kom­ast upp með það að fela eign­ar­hald félaga, með ýmsum leið­um. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­ar­halds­fé­lög eða rekstr­ar­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­um. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raun­veru­legur eig­andi félaga er.

Hér á landi hefur slíkt eft­ir­lit aðal­lega verið á hendi banka. Í kjöl­far þess að FATF gerði úttekt á Íslandi, og skil­aði þeirri nið­ur­stöðu vorið 2018 að eft­ir­lit Íslands með pen­inga­þvætti fengi fall­ein­kunn, þá hóf Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) að gera athug­anir á íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og getu þeirra til að verj­ast pen­inga­þvætti. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur að minnsta kosti verið fram­kvæmd athugun hjá fjórum stærstu bönkum lands­ins: Arion banka, Íslands­banka, Lands­bank­anum og Kviku banka. FME hefur ekki viljað segja nákvæm­lega hvaða fyr­ir­tæki hafa verið tekin til skoð­unar en sagði þó í skrif­legu svari til Kjarnans í lok ágúst að það hefði fram­kvæmt tæp­lega 20 athug­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­ar­innar frá árinu 2017 og þá stæðu yfir þrjár slíkar athug­anir.

Arion þekkti ekki raunverulega eigendur

Enn sem komið er hefur FME ein­ungis birt nið­ur­stöðu athug­unar sinnar á einum banka, Arion banka. Hún var birt 29. maí síð­ast­lið­inn, rúmum fjórum mán­uðum eftir að nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir. Það var gert að beiðni Arion banka sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en nið­ur­staðan yrði gerð opin­ber. Bankinn seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum. FME hefur ekki viljað svara því hvaða tímara­mma Arion banka var settur til að koma á úrbótum.

FME hefur einungis birt niðurstöður sínar um Arion banka.
FME hefur ein­ungis birt nið­ur­stöður sínar um Arion banka.

Í athugun FME á Arion banka kom meðal ann­ars fram að bank­inn hefði hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­ir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vin­ar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi FME að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

Hægt að sekta þá sem gerast brotlegir

Upp­haf­legt frum­varp­ til að taka á þess­ari stöðu, sem er til staðar vegna skorts á upp­lýs­ingum um raun­veru­legt eign­ar­hald félaga, varð að lögum 13. júní síð­ast­lið­inn. Til­gangur þess var ann­ars vegar að inn­leiða tvær Evr­óputil­skip­anir og hins vegar til að bregð­ast við athuga­semdum FATF.

Sam­kvæmt nýju lög­unum um raun­veru­lega eig­endur þá er hægt að refsa þeim sem ekki fylgja þeim. Ef eig­endur félaga upp­lýsa ekki um hver hinn raun­veru­legi eig­andi er, með fram­vísun þeirra gagna sem lögin kalla á, þá getur rík­is­skatt­stjóri lagt á tvenns konar sektir á við­kom­and­i.

Ann­ars vegar er um dag­sektir að ræða. Þær geta numið frá tíu þús­und krónum og allt að 500 þús­und krónum á dag. Heim­ilt er að ákvæða umfang þeirra sem hlut­fall af til­teknu stærðum í rekstri við­kom­and­i. Við ákvörðun um fjár­hæð dag­sekta er heim­ilt að taka til­lit til eðlis van­rækslu eða brots og fjár­hags­legs styrk­leika við­kom­andi aðila. Dag­sekt­irnar sem verða ákvarð­aðar eru aðfar­ar­hæf­ar.

Hins vegar er um stjórn­valds­sektir að ræða. Þær er hægt að leggja á þá sem veita ekki upp­lýs­ingar eða veita rang­ar/vill­andi upp­lýs­ing­ar. Þegar brot á lög­unum er framið í starf­semi lög­að­ila, og í þágu hans, má leggja stjórn­valds­sekt á lög­að­il­ann án til­lits til þess hvort sök verður sönnuð á fyr­ir­svars­mann eða starfs­mann lög­að­ila. „Sektir sem lagðar eru á ein­stak­linga geta numið frá 100 þús. kr. til 5 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lög­að­ila geta numið frá 500 þús. kr. til 80 millj. kr. en geta þó verið hærri eða allt að 10 pró­sent af heild­ar­veltu sam­kvæmt síð­asta sam­þykkta árs­reikn­ingi lög­að­il­ans eða 10 pró­sent af síð­asta sam­þykkta sam­stæðu­reikn­ingi ef lög­að­ili er hluti af sam­stæð­u,“ segir í lög­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár