Ísland á bannlista á Kýpur vegna peningaþvættisógna

Íslenskir við­skipta­vinir banka á Kýpur hafa ekki getað milli­fært fjár­muni af reikn­ingum þar inn á reikn­inga hér­lendis. Vandamál á Íslandi að fjár­mála­fyr­ir­tæki kanni ekki bak­grunn við­skipta­vini sína nægi­lega vel.

Ísland hefur verið sett á lista þró­un­ar­banka Kýpur (Cyprus Develop­ment Bank eða CDB) yfir lönd sem ekki er heim­ilt að opna á milli­færslur af neinum toga. Íslenskum við­skipta­vinum bank­ans var nýverið neitað um milli­færslu umtals­verðrar fjár­hæðar á banka­reikn­inga hér­lendis vegna breyt­ingar á reglum um þá við­skipta­vini sem bank­inn sam­þykkir sem sína, og tók gildi í nóv­em­ber. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir einnig að mik­illa gagna hafi verið kraf­ist frá CDB af þeim Íslend­ingum sem viljað hafa milli­færa fjár­muni frá bank­anum und­an­farnar vikur og vott­ana frá „mörg­um aðilum til þess upp­fylla þau skil­yrði sem bank­inn krefst núorðið“. Frá því að nóv­em­ber hófst hafi milli­færsl­urnar verið stöðv­aðar að öllu leyti.

Ísland sett á gráan lista og úttekt sýndi brotalamir

Ísland var sett á gráan lista Financial Action Task Force (FATF) 18. októ­ber síð­ast­lið­inn vegna ónógra varna gegn pen­inga­þvætti. Kýpur eru ekki aðili að sam­tök­unum en það þýðir þó ekki að vera Íslend­ingar geti ekki orðið fyrir áhrifum í banka­við­skiptum þar í landi. 

[adspot]Eitt stærsta vanda­málið sem verið hefur við lýði í fjár­mála­við­skiptum hér­lendis, sem snýr að ónógum vörnum gegn pen­inga­þvætti, er að fjár­mála­fyr­ir­tæki hafa ekki þekkt við­skipta­vini sína nægi­lega vel. Þ.e. þeir hafa ekki fram­kvæmt við­un­andi úttektir á bak­grunni við­skipta­vina sinna þegar þeir hefja við­skipti og á því hvort að upp­runi fjár­muna sé sá sem sagt er að hann sé.

Það kom til að mynda vel í ljós þegar Fjár­mála­eft­ir­litið­hóf að gera úttektir á á vörnum bankað haustið 2018. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­semdir við brotala­mir hjá bank­anum í jan­úar 2019. Í athugun eft­ir­lits­ins á Arion banka kom meðal ann­ars fram að bank­inn hefði ekki metið með sjálf­­stæðum hætti hvort upp­­lýs­ingar um raun­veru­­lega eig­endur við­­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­­lýs­ingar hafi ekki verið upp­­­færðar með reglu­­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­­ir. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur ekki viljað upp­lýsa, né hefur það birt nið­ur­stöður úr, hvaða aðrar fjár­mála­stofn­anir sam­bæri­legar úttektir hafa verið gerðar hjá.

9. ágúst síð­ast­lið­inn greindi Kjarninn frá því að eft­ir­litið vild ekki svara því hvort yfir standi athugun á aðgerðum Lands­bank­ans, Íslands­banka og Kviku banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Það sagð­ist þó hafa fram­kvæmt tæp­lega 20 athug­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­ar­innar frá árinu 2017 og þá stæðu yfir þrjár slíkar athug­anir. 

Össur fékk fyrirspurn

Þótt að FATF hafi ekki kallað eftir því sér­stak­lega að sér­stakar og umfangs­meiri áreið­an­leikakann­anir yrðu fram­kvæmdar á íslenskum við­skipta­vinum alþjóð­lega á meðan að Ísland væri á gráa list­anum þá er vera Íslands á honum mik­ill orð­spors­hnekkir, og getur leitt til þess að fyr­ir­tæki taki slíkt upp sjálf. Það hefur CDB á Kýpur nú gert.

[links]Það er í takti við það sem Áslaug Jós­eps­dótt­ir, sér­fræð­ingur á skrif­stofu almanna- og réttar­ör­yggis dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, sagði að gæti gerst þegar hún ræddi þessi mál á fundi sem Sam­tök versl­unar og þjón­ustu, Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar og Sam­tök iðn­að­ar­ins stóðu fyrir í lok októ­ber um pen­inga­þvætt­i.

Sama dag hafði Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Öss­ur­ar, sagt við Kjarnann að fyr­ir­tækið hefði fengið fyr­ir­spurn um veru Íslands á gráa list­anum þegar það var í við­ræðum um fjár­mögnun skömmu áður. Vera Íslands á list­anum hefði þó ekki áhrif á starf­semi eða fjár­mögnun Öss­urar þar sem að hún fari fram í gegnum erlend dótt­ur­fé­lög. Það væri hins vegar mjög alvar­legt mál að Ísland sé á lista sem þess­um að mati Jóns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár