Mynd: Úr safni

FME upplýsir ekki um hvort það sé að skoða varnir þriggja banka gegn peningaþvætti

Þrjár athug­anir standa yfir á á vegum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á aðgerðum eft­ir­lits­skyldra aðila gegn pen­inga­þvætti. Eft­ir­litið svarar því ekki hvort verið sé að athuga Lands­bank­ann, Íslands­banka og Kviku.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) vill ekki svara því hvort yfir standi athugun á aðgerðum Lands­bank­ans, Íslands­banka og Kviku banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Það seg­ist þó hafa fram­kvæmt tæp­lega 20 athug­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­ar­innar frá árinu 2017 og nú standi yfir þrjár slíkar athug­anir. Það kunni að vera að gagn­sæ­istil­kynn­ingar verði birtar vegna þeirra athug­ana innan tíðar.

Kjarninn greindi frá því 31. maí síð­ast­lið­inn að FME hefði fram­kvæmt athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­semdir við brotala­mir hjá bank­anum í jan­úar 2019.

Nið­ur­staða athug­unar FME á Arion banka var birt 29. maí síð­ast­lið­inn, rúmum fjórum mán­uðum eftir að nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir. Það var gert að beiðni Arion banka sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en nið­ur­staðan yrði gerð opin­ber. Bankinn seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum. FME vill ekki svara því hvaða tímara­mma Arion banka var settur til að koma á úrbótum.

Í athugun FME á Arion banka kom meðal ann­ars fram að bank­inn hefði hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­ir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vin­ar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi FME að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

Slakar varnir og kröfur um úrbætur

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um slakar varnir Íslend­inga gegn pen­inga­þvætti und­an­farin miss­eri. Í byrjun jan­úar greindi Kjarn­inn frá því að í fyrra­vor hafi Ísland fengið aðvör­un. Annað hvort myndu stjórn­völd þar taka sig til og inn­leiða almenni­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista alþjóð­legu sam­tak­anna Financial Action Task ­Force (FATF) um ósam­vinnu­þýð ríki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Í ljósi þess að nið­ur­staða athug­unar FME á Arion banka hafði verið birt, og að í henni hafi komið fram að bank­inn hafi ekki haldið uppi full­nægj­andi vörnum gegn pen­inga­þvætti, þá sendi Kjarninn fyr­ir­spurn til FME og spurði hvort verið væri að skoða stöðu pen­inga­þvætt­is­varna hjá öðrum íslenskum bönkum. Líkt og áður sagði þá vill eft­ir­litið ekki svara því til hvort slíkar athug­anir standi yfir né hvað þær hafi leitt í ljós.

Í svari FME við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að eft­ir­litið hafi, í ljósi þeirra úrbótakrafna sem settar voru fram af hendi FATF, lagt auk­inn þunga í verk­efni tengd vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka á und­an­förnum árum. „Í því sam­bandi hefur verið fram­kvæmt áhættu­mat á öllum til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum og hefur eft­ir­lit verið við­haft í sam­ræmi við það mat, fræðsla hefur verið efld til muna (með fræðslu­efni og fræðslu­fundum) auk þess sem fjöldi og gæði athug­ana hafa auk­ist.“

Frá árinu 2017 og til dags­ins í dag hafi verið fram­kvæmdar tæp­lega 20 athug­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­ar­innar. „Þá standa nú yfir þrjár athug­anir en í sam­ræmi við heim­ildir í lögum og gagn­sæ­is­stefnu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kann stofn­unin innan tíðar að birta gagn­sæ­istil­kynn­ingar vegna þeirra athug­ana. Fleiri athug­anir eru einnig fyr­ir­hug­aðar á næstum mán­uðum. Þær athug­anir sem hafa verið fram­kvæmdar og standa nú yfir hafa tekið mið af þeim athuga­semdum sem FATF gerði í skýrslu sinni.“

Skýrslan ýtti við málum hérlendis

Skýrsla FATF ýtti veru­lega við málum hér­lend­is. Það þurfti að bregð­ast við þessum athuga­semdum hratt, auk þess sem fyrir lá að fjórða ­pen­inga­þvætt­is­til­skipun ­Evr­ópu­sam­bands­ins yrði tekin upp í samn­ingnum um Evr­ópska efna­hags­svæðið (EES) í des­em­ber 2018.

Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráð­herra var því settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­skipta­nefnd 12. des­em­ber og síð­ari tvær umræður kláraðar dag­inn án ann­arra ræðu­halda en Brynjars Níels­son­ar, sem mælti fyrir nefnd­ar­á­liti um málið sem full­trúar alla flokka skrif­uðu und­ir.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gildi þann 1. jan­úar 2019.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði að nauð­syn­legt yrði að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á gild­andi lögum þar sem gera þarf veru­legar úrbætur á lög­unum til að upp­fylla þær lág­marks­kröfur sem gerðar eru á alþjóða­vett­vangi.

Enn á eftir að koma í ljós hvort að hertar aðgerðir Íslend­inga muni duga FATF. Þrátt fyrir að sá frestur sem gefin hafði verið fyrir úrbætur hafi runnið út í júní þá hefur ekk­ert verið gefið upp um hvort úrbætur Íslands hafi verið nægj­an­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár