Óvissa um hvaða áhrif vera Íslands á gráa listanum mun hafa

Það kann að vera að ein­hverjir gagn­að­ilar fyr­ir­tækja á íslandi vilji fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun vegna þess að Ísland er á gráum lista FATF þó svo að sam­tökin kalli ekki sér­stak­lega eftir því.

Áslaug Jós­eps­dóttir, sér­fræð­ingur á skrif­stofu almanna- og réttar­ör­yggis dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, segir að það kunni að vera að ein­hverjir gagn­að­ilar fyr­ir­tækja á Íslandi muni vilja fram­kvæma auknar áreið­an­leikakann­anir á íslenskum aðilum eftir að Íslands var sett á gráan lista Financial Action Task Force (FATF) vegna ónógra varna gegn pen­inga­þvætti. Samtökin hafi þó ekki kallað sér­stak­lega eftir því að slíkar áreið­an­leikakann­anir séu fram­kvæmdar á meðan að Ísland er á list­anum.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi sem Samtök versl­unar og þjón­ustu, Samtök ferða­þjón­ust­unnar og Samtök iðn­að­ar­ins stóðu fyrir í dag um pen­inga­þvætti.

Áslaug, sem var einn fjög­urra sér­fræð­inga sem hélt erindi, sagði að íslensk stjórn­völd hafi verið í sam­bandi við stjórn­völd í Serbíu, sem var á list­anum í rúmt ár en losn­aði af honum í júní síð­ast­liðnum. „Þeirra upp­lýs­ingar voru að þeir sáu lítil mæl­an­leg áhrif. Þetta er vissu­lega orð­spors­á­hætta og í ein­hverjum til­vikum þá lentu serbnesk fyr­ir­tæki í því að gagn­að­ila þeirra fram­kvæmdu aukna áreið­an­leika­könnun. Það kann að vera að ein­hverjir gagn­að­ilar fyr­ir­tækja á íslandi vilji fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun þó svo að FATF kalli ekki eftir því.“

Frekari upplýsingum skilað í nóvember

Ísland var sett á gráa list­ann þann 18. októ­ber síð­ast­lið­inn, eða fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Áslaug sagði í erindi sínu að stjórn­völd hefðu ekki orðið var við nei­kvæð áhrif enn sem komið er, en að bæði Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið vakti þá stöðu dag­lega.

[adspot]Stjórn­völd séu auk þess að vinna mark­visst að því upp­fylla þau skil­yrði sem FATF taldi að væru útistand­andi þannig að pen­inga­þvætt­is­varnir okkar væru full­nægj­andi og að þeim upp­lýs­ingum yrði skilað til FATF í nóv­em­ber.

Auk Áslaugar fluttu Eiríkur Ragn­ars­son og Birkir Guð­laugs­son, lög­fræð­ingar hjá Rík­is­skatt­stjóra, og Guðrún Ögmunds­dóttir, for­stöðu­maður á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika hjá Seðla­bank­anum, erindi á fund­inum.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Össur hf. hafi fengið fyr­ir­spurn um veru Íslands á gráa list­anum þegar það var í við­ræðum um fjár­mögnun nýver­ið. Vera Íslands á list­anum hafi þó ekki áhrif á starf­semi eða fjár­mögnun Öss­urar þar sem að hún fari fram í gegnum erlend dótt­ur­fé­lög. Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar sagði það hins vegar vera mjög alvar­legt mál að Ísland sé á lista sem þess­um.

Gerð athuga­semd við 51 atriði

Í apríl 2018 skil­aði FATF, alþjóð­leg sam­tök sem hafa það hlut­verk að móta aðgerðir til að hindra að fjár­mála­kerfið sé mis­notað í þeim til­gangi að koma illa fengnu fé aftur í umferð, skýrslu um Ísland. Með því að ger­ast aðili að sam­tök­unum þá skuld­batt Ísland sig til að und­ir­gang­ast og inn­leiða þau skil­yrði sem sam­tökin telja að þurfi að upp­fyll­ast.

Í skýrslu FATF fékk pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit Íslend­inga fall­ein­kunn. Alls var gerð athuga­semd við 51 atriði í laga- og reglu­gerð­ar­um­hverfi Íslands og því hvernig við fram­fylgjum eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

[adspot]Á meðal þess sem þar kom fram var að íslensk stjórn­völd litu ekki á rann­sóknir á pen­inga­þvætti sem for­gangs­mál. Þeir litlu fjár­munir sem settir voru í að koma upp um, rann­saka og sak­sækja pen­inga­þvætti voru þar lyk­il­at­riði. Afleið­ingin var meðal ann­ars sú að tak­mark­aðar skrán­ingar höfðu verið á grun­sam­legum til­færslum á fé utan þess sem stóru við­skipta­bank­arnir og hand­fylli ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja fram­kvæma. Þá skorti einnig á að að upp­lýs­ingum um hreyf­ingar á fé og eignum væri deilt með við­eig­andi stofn­unum í öðrum lönd­um.

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­leg­ar, og Ísland færi á jafn­vel á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Íslenska ríkið brást við með alls­herj­ar­átaki. Ný heild­ar­lög um varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka voru sam­þykkt og fjöldi ann­arra laga og reglu­gerða voru upp­færð. Þá voru auknir fjár­munir settir í manna­ráðn­ingar og kaup á kerfum til að bæta það sem FATF hafði sett út á. En það dugði ekki til og Ísland var, líkt og áður sagði, sett á gráan lista og í aukna eft­ir­fylgni, 18. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár