Grunur um að hundruðum milljóna hafi verið skotið undan í máli tengt fjárfestingarleiðinni

Á næstu dögum eða örfáu vikum verður tekin ákvörðun um hvort að ráð­ist verði í refsi­með­ferð í máli tengt fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur rann­sakað um nokk­urt skeið.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur um nokk­urt skeið haft eitt mál tengt ein­stak­lingi sem nýtti sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands til form­legrar rann­sóknar. Meðferð þess máls er langt komin og ákvörðun um refsi­með­ferð verður tekin á næstu dögum eða örfáu vikum. Í því máli er grunur um und­an­skot fjár­magnstekna er nemur á þriðja hund­rað millj­óna króna.

Þetta segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri i svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hún segir enn fremur að emb­ættið hafi alls aflað gagna í um tíu málum ein­stak­linga eftir að það fékk afhent gögn um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina sem leiddi til hinnar form­legu rann­sóknar á mál­inu sem nú er beðið ákvörð­unar um refsi­með­ferð í.

Að sögn Bryn­dísar er emb­ætti rík­is­skatt­stjóri líka með umrædd gögn um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. „Til að koma í veg fyrir tví­verknað sam­mælt­ust emb­ættin um að þau yrðu skoðuð frekar undir for­merkjum eft­ir­lits. Ef við þá skoðun vaknar grunur um skatt­svik ber að til­kynna skatt­rann­sókn­ar­stjóra þar um sem tekur ákvörðun um fram­hald máls­ins. Það hefur að minnsta kosti ekki enn verið gert.“

[adspot]Umrædd gögn voru afhent emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í apríl 2016. Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra keypti sum­arið 2015 á 37 millj­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­lingar fór fjár­fest­inga­leið­ina var einnig í skatta­skjóls­gögn­un­um. Þeir ein­stak­lingar nýtt sér umrædda leið á árunum 2012 til 2015.

Tugir milljarða ferjaðir inn í landið

Fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­leið Seðla­­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­­ar­­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­­hengju, krón­u­­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­­stæð­­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­­­­­stæð­­­­­ara gengi.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­­­­­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­­­­­ast út úr íslenska hag­­­­­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­­­­­­­­­búnir að koma til Íslands og fjár­­­­­­­­­festa fyrir hann. Seðla­­­­­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­­­­­­­­­göng­u­að­ila sem gerði við­­­­­skiptin mög­u­­­­­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­­­­­sala og neyt­endur sam­­­­­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­leið­inni frá því í febr­­­­­úar 2012 til febr­­­­­úar 2015, þegar síð­­­­­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leið­­­­­ar­inn­­­­­ar, sem sam­svarar um 206 millj­­­­­örðum króna.

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­­­bank­ans, líkt og venju­­­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­kost­­­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

794 inn­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leiðar Seðla­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

[adspot]Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­kvæmt skil­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leið­­­­­ar­inn­­­­­ar. Afslátt­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­arðar króna.

Í skýrslu sem Seðla­banki Íslands birti um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í sumar kom fram aflands­fé­lög frá lág­skatta­svæðum hefðu flutt inn 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum leið­ina. Eðlilegt væri, í ljósi sög­unnar, að gagn­rýna að það hefði verið ger­legt að ferja fjár­muni frá slíkum svæðum í gegnum hana.

Engar tilkynningar sendar vegna peningaþvættis

Kjarninn greindi frá því í jan­úar 2017 að Seðla­bank­inn hefði litið svo á að það væri fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna sem sinntu hlut­verki milli­liða að ganga úr skugga um að þeir fjár­munir sem not­aðir voru til að kaupa krónur í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina væru fengnir með lög­legum hætti, að af þeim hefðu verið greiddir skattar og að þeir væru ekki með réttu eign ann­arra, t.d. kröfu­hafa við­kom­andi. Engar til­kynn­ingar vegna pen­inga­þvættis bár­ust til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu vegna fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.

Allt eft­ir­lit Íslend­inga með pen­inga­þvætti fékk raunar fall­ein­kunn hjá alþjóð­legu sam­tök­unum Financial Action Task ­Force (FATF) í fyrra og þrátt fyrir miklar úrbætur frá því að sú úttekt lá fyrir end­aði Ísland á gráum lista sam­tak­anna, sem þykir mik­ill alþjóð­legur orð­spors­hnekkir og getur valdið íslenskum fyr­ir­tækjum í alþjóð­legri starf­semi umtals­verðum vand­ræðum vegna við­bótar áreið­an­leikakann­anna sem við­skipta­vinir þeirra kunna að vilja fram­kvæma á þeim vegna þessa.

[links]Fjár­mála­eft­ir­litið hefur frá þeim tíma fram­kvæmd athug­anir á því hvernig fjár­mála­fyr­ir­tæki hafi staðið sig í vörnum gegn pen­inga­þvætti. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur birt nið­ur­stöðu úr einni athugun, á stöðu mála hjá Arion banka. Sú nið­ur­staða, sem lá fyrir í jan­úar síð­ast­liðnum, var á þá leið að fjöl­margar brotala­mir væru á þeim vörnum hjá bank­anum. Meðal ann­ars hefði bank­inn ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi.

Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, skrif­aði nýverið grein í Kjarnann þar sem hann sagði meðal ann­ars að það væri ekki úti­lokað„að eitt­hvað illa fengið fé hafi sloppið í gegnum nál­ar­auga fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar þótt ekk­ert hafi hingað til bent til þess að það hafi verið algengt.“ Tilefnið var að verj­ast þeim grun­semdum að mögu­lega hafi fjár­fest­ing­ar­leiðin nýst til að þvætta illa fengið fé, til dæmis afrakstur skattsvika. Ef emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra ákærir í því máli sem nú bíður ákvörð­unar um refsi­með­ferð liggur ljóst fyrir að leiðin nýtt­ist til slíks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár