Mynd: Pexels.com

Engar tilkynningar vegna peningaþvættis í gegnum fjárfestingarleið

Allir við­skipta­bank­arnir fjórir litu svo á að það hefði verið í þeirra verka­hring að stað­festa áreið­an­leika við­skipta­manna sinna sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Þeir segj­ast allir hafa kannað þá fjár­festa úr við­skipta­manna­hópi sínum sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina með til­liti til laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þrír bank­anna, Íslands­banki, Arion banki og Lands­bank­inn, vilja hins vegar ekki svara því hvort þau hafi sent ein­hverjar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu (Financial Intelligence Unit) vegna gruns um að ein­hverjir úr við­skipta­manna­hópi þeirra hafi þvættað pen­inga með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Einn banki, Kvika banki, seg­ist hins vegar ekki hafa sent neinar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu vegna þessa. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan heyrir undir það, segir að eftir því sem næst verður kom­ist þá hafi ekki borist neinar til­kynn­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum vegna fjár­festa sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Innlendir komu með 35 prósent af 200 milljörðum

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna. f þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­bank­ans, líkt og venju­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­arðar króna.

794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna. 

Kom illa fengið fé inn í landið í gegnum leiðina?

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­úar, er fjallað um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og því meðal ann­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­magn­inu frá aflands­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­lýs­inga um fjár­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­taka í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans er ekki til stað­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­bank­ans þegar um grun­sam­legar fjár­magnstil­færslur er að ræða. Æski­legt má telja að sam­starf væri um miðlun upp­lýs­inga á milli þess­ara stofn­ana.“

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Seðla­banka Íslands um málið í kjöl­farið. Í svari hanssegir bank­inn að hann hafi ekki sent neinar til­kynn­ingar vegna gruns um pen­inga­þvætti þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið hans á meðan hún var opin á árunum 2012-2015. Alls komu 206 millj­arðar króna til lands­ins í gegnum leið­ina og virð­is­aukn­ing þeirra sem hana nýttu var tæp­lega 50 millj­arðar króna. Seðla­bank­inn sagð­ist enn fremur ekki haft neinar laga­heim­ildir til að velja eða hafna þátt­tak­endum sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni á grund­velli þess frá hvaða land­svæði þeir komu, hvort sem það var aflands­svæði eða ekki.

Samkvæmt svari Seðla­bank­ans áttu þau fjár­mála­fyr­ir­tæki sem voru milli­liðir þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina átt að kanna hvort um mögu­legt pen­inga­þvætti væri að ræða. Seðla­bank­inn sjálfur hefði engum skyldum að genga í því til­liti.

Þrír bankar upplýsa ekki um tilkynningar

Kjarninn beindi því fyr­ir­spurn til við­skipta­bank­anna fjög­urra um hvernig eft­ir­liti með við­skipta­mönnum þeirra sem tók þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni, og eftir atvikum til­kynn­ingum til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu, væri háttað.

Fjárfestingarleið Seðlabankans stóð yfir í þrjú ár og það komu rúmlega 200 milljarðar króna til landsins í gegnum hana. Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans stóð yfir í þrjú ár og það komu rúm­lega 200 millj­arðar króna til lands­ins í gegnum hana. Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri.

Íslands­banki segir í svari sínu að bank­inn kanni alla við­skipta­vini sína með til­liti til laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og „stað­festi það við Seðla­bank­ann með því að hafa milli­göngu um ein­stök við­skipti.“ Bankinn vill ekki svara því til hvort hann hafi sent ein­vverjar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu en segir að hann sendi alltaf „slíkar til­kynn­ingar ef grunur vaknar um að fjár­magns­færslur séu tengdar slíkri starf­semi.“

Arion banki segir að hann fram­kvæmi áreið­an­leika­könnun á öllum sínum við­skipta­vinum í sam­ræmi við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Í svari bank­ans er stað­fest að slík könnun hafi farið fram á þeim við­skipta­mönnum sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans. Arion banki telur sig hins vegar óheim­ilt að upp­lýsa um hvort til­kynn­ingar hafi verið sendar til lög­reglu.

Lands­bank­inn seg­ist hafa gert áreið­an­leika­könnun á þeim við­skipta­vinum Lands­bank­ans sem fóru þessa leið eins og lög gera ráð fyrir. „Ef grunur leikur á lög­brotum er það til­kynnt til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara. Lands­bank­inn veitir ekki upp­lýs­ingar um hvort grunur hafi vaknað um lög­brot eða hversu margar til­kynn­ingar bank­inn hefur sent vegna slíks gruns.“

Kvika segir að bank­inn stað­festi áreið­an­leika við­skipta­manna sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni og að hann hafi verið kann­aður hjá þeim við­skipta­mönnum sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni. Kvika er eini bank­inn sem svarar því hvort að hann hafi sent ein­hverja til­kynn­ingu til Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu vegna gruns um pen­inga­þvættis við­skipta­manna hans. Svarið er ein­falt: nei.

Engar tilkynningar borist

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan heyrði áður undir rík­is­lög­reglu­stjóra. Hún flutt­ist yfir til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara á miðju ári 2015 og sú starf­semi rann síðar inn í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara þegar það var stofnað ára­mótin 2015-2016. Útboð eftir fjár­fest­ing­ar­leið­inni fóru fram frá febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar skrif­stofan heyrði enn undir rík­is­lög­reglu­stjóra.

Í svari Ólafs Þórs Hauks­sonar hér­aðs­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að einn starfs­maður hafi flust yfir með pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unni frá rík­is­lög­reglu­stjóra á sínum tíma. Sá starfs­maður hefur nú látið af störfum. „ Á þeim tíma sem fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans var starf­rækt var pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan hjá rík­is­lög­reglu­stjóra en ekki hjá sér­stökum sak­sókn­ara eða hér­aðs­sak­sókn­ara. Svör emb­ætt­is­ins eru því sett fram með þeim fyr­ir­vara. Eftir því sem ég kemst næst þá hefur pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unni ekki borist til­kynn­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum vegna fjár­festa sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.“

Tíu stað­reyndir um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár