FME fékk „hvassa brýningu“ vegna peningaþvættisvarna

Á allra næstu dögum mun koma í ljós hvort að íslensk stjórn­völd hafi brugð­ist nægi­lega vel og hratt við áfell­is­dómi yfir pen­inga­þvætt­is­vörnum lands­ins.

Þegar Financial Action Task Force (FATF), alþjóð­leg sam­tök gegn pen­inga­þvætti, felldi áfell­is­dóm yfir lög­gjöf og eft­ir­liti Íslend­inga með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í fyrra­vor fékk „Fjár­mála­eft­ir­litið og ýmsir aðrir hvassa brýn­ingu um að taka til hend­inni og verða við úrbóta­kröfum alþjóða­sam­fé­lags­ins.“

[links]Þetta kemur fram í pistli Unnar Gunn­ars­dóttur, for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), í nýj­ustu útgáfu Fjármála, rits stofn­un­ar­innar, sem kom út í gær.

Líkt og Kjarninn hefur greint frá þá gerði FATF úttekt á frammi­stöðu Íslands varð­andi aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og skil­aði nið­ur­stöðu sinni í apríl 2018. Nið­ur­staðan var, að sögn Unnar, „áfell­is­dómur hvað varðar lög­gjöf og fram­kvæmd stjórn­valda í mál­efnum tengdum pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.“

Brátt muni draga til tíð­inda þegar end­an­leg nið­ur­staða FATF liggi fyrir varð­andi hvort Ísland hafi brugð­ist nægi­lega hratt og vel við þeim. „Ljóst er að Fjár­mála­eft­ir­litið mun áfram gera allt hvað það getur til að efla varnir og orð­spor Íslands að þessu leyti.“

Áfram í eftirfylgni

Kjarninn greindi frá því á þriðju­dag að Ísland hafi skilað FATF eft­ir­fylgn­is­skýrslu vegna aðgerða sem Ísland hefur gripið til til að bæta varnir sínar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, snemma í sumar. Skýrslan var tekin til umræðu á fundi FATF þann 19. júní síð­ast­lið­inn, en Ísland hafði fram til þess tíma til að bregð­ast við fjöl­mörgum athuga­semdum FATF og sleppa við að vera sett á lista sam­tak­anna yfir ósam­vinnu­þýð ríki.

[adspot]Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið kom fram að unnið sé að loka­út­gáfu skýrsl­unnar og að áætlað sé að hún verði birt á heima­síðu FATF fyrstu vik­una í sept­em­ber. „Efn­is­þættir skýrsl­unnar lúta aðal­lega að fylgni Íslands við til­mæli FATF og er megin nið­ur­staða hennar hækkun á 14 til­mælum og stað­fest­ing á því að Ísland verði áfram í auk­inni eft­ir­fylgni hjá FATF.“

Verið að styrkja varnirnar

Unnur ræddi þessi mál í við­tali við sjón­varps­þátt­inn 21 á Hring­braut fyrr á þessu ári. Þá hafði nýverið birst grein eftir Gylfa Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í Vís­bend­ingu sem vakti mikla athygli en þar sagði hann meðal ann­ars: „„Um þessar mundir eru ýmsir af þeim ein­stak­l­ingum sem tóku virkan þátt í fjár­­­mála­æv­in­týr­inu 2003-2008 að snúa aftur til lands­ins. Pen­ingum var í mörgum til­­vikum komið undan árin 2007-2008 og eru þetta fjár­­­magn nú að skila sér til baka, einmitt þegar búið er að gera upp þrotabú hinna föllnu banka upp. Lík­­­legt er að a.m.k. einn öfl­­ugur banki verði í eigu þess­­ara aðila innan ekki langs tíma ef það hefur ekki gerst nú þeg­­ar.“

Unnur sagði að Fjár­mála­eft­ir­litið gæi ekki fylgst með því beint hvort að pen­ingum sem komið hefði verið með ein­hverjum hætti undan væru nú að not­ast til að kaupa upp hluti í bönkum en benti á að verið sé að bregð­ast mjög hart við ábend­ingum um veik­leika sem tengj­ast vörnum Íslands gegn pen­inga­þvætti, vegna athuga­semda FATF. „Það er verið að styrkja allt kerfið varð­andi aðgerðir gegn pen­inga­þvætti. Áður var kannski fók­us­inn fyrst og síð­ast á fjár­mála­þjón­ustu en nú er búið að stækka flór­una. Þannig að það á að vera erf­ið­ara að nota lista­verka­sala, fast­eigna­sala og allt svo­leiðis til að þvætti pen­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár