Ísland áfram í aukinni eftirfylgni vegna peningaþvættisvarna

Loka­út­gáfa skýrslu um pen­inga­þvætt­is­varnir Íslands, vegna athug­unar sem alþjóð­leg sam­tök hafa unnið að frá því í fyrra­vor, mun verða birt fyrstu vik­una í sept­em­ber.

Íslands skil­aði Financial Action Task Force (FATF), alþjóð­legum sam­tökum sem hafa það hlut­verk að móta aðgerðir til að hindra að fjár­mála­kerfið sé mis­notað í þeim til­gangi að koma illa fengnu fé í umferð aftur, eft­ir­fylgn­is­skýrslu vegna aðgerða sem Ísland hefur gripið til til að bæta varnir sínar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, snemma í sumar. Skýrslan var tekin til umræðu á fundi FATF þann 19. júní síð­ast­lið­inn, en Ísland hafði fram til þess tíma til að bregð­ast við fjöl­mörgum athuga­semdum FATF og sleppa við að vera sett á lista sam­tak­anna yfir ósam­vinnu­þýð ríki.

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið kemur fram að unnið sé að loka­út­gáfu skýrsl­unnar og að áætlað sé að hún verði birt á heima­síðu FATF fyrstu vik­una í sept­em­ber. „Efn­is­þættir skýrsl­unnar lúta aðal­lega að fylgni Íslands við til­mæli FATF og er megin nið­ur­staða hennar hækkun á 14 til­mælum og stað­fest­ing á því að Ísland verði áfram í auk­inni eft­ir­fylgni hjá FATF.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans mun sú eft­ir­fylgni meðal ann­ars fela í sér fund­ar­höld þar sem full­trúar frá Íslandi munu fara erlendis til að ræða athuga­semdir FATF. Í kjöl­farið verður málið form­lega tekið fyrir á fundi sam­tak­anna, fyrst und­ir­bún­ings­fundi en svo þar sem full­trúar allra aðild­ar­ríkja sitja. Allt þetta á að klár­ast fyrir ára­mót og í kjöl­farið á að liggja fyrir skýr­ari mynd um hvort að Ísland hafi gert nóg til að bregð­ast við þeim mikla fjölda athuga­semda sem gerðar voru við varnir lands­ins gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Talsverðir veikleikar í vörnum Íslands

Ísland er aðili að FATF og skuld­batt sig árið 1991 til að sam­ræma lög­gjöf sína til­mælum sam­tak­anna. Til að kanna hvort ríki sem taki þátt í sam­starf­inu fylgi þeirri skuld­bind­ingu fram­kvæma sam­tökin úttektir á því hvernig aðild­ar­ríkjum hefur tek­ist að inn­leiða til­mælin. Í apríl 2018 birtu þau skýrslu um Ísland. Í stefnu íslenskra stjórn­valda í aðgerðum gegn pen­inga­þvætti, fjár­mögnun hryðju­verka og útbreiðslu og fjár­mögnun ger­eyð­ing­ar­vopna, sem birt var í júlí 2019, kemur fram að sú úttekt hafi leitt í ljós „tals­verða veik­leika á íslenskri lög­gjöf og fram­kvæmd að þessu leyti.“

Raunar fengu varnir Íslands gagn­vart pen­inga­þvætti algjöra fall­ein­kunn í skýrsl­unni. Sér­stak­lega var þar fjallað um fjár­magns­höftin sem voru við lýði á Íslandi frá nóv­em­ber 2008 og fram í mars 2017. Í skýrslu FATF sagði: „Þessum höftum var lyft í mars 2017 og yfir­völd hafa ekki tekið til­lit til þeirra áhrifa sem það geti haft á áhættu vegna pen­inga­þvættis/fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka í land­inu.“

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Brugðist við

Skýrsla FATF ýtti veru­lega við málum hér­lendis. Það þurfti að bregð­ast við þessum athuga­semdum hratt, auk þess sem fyrir lá að fjórða pen­inga­þvætt­is­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins yrði tekin upp í samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) í des­em­ber 2018.

Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráð­herra var því settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­skipta­nefnd 12. des­em­ber og síð­ari tvær umræður kláraðar dag­inn án ann­arra ræðu­halda en Brynjars Níels­sonar, sem mælti fyrir nefnd­ar­á­liti um málið sem full­trúar alla flokka skrif­uðu undir.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gildi þann 1. jan­úar 2019.

Fjölgað hefur mjög á því sem áður hét pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa hér­aðs­sak­sókn­ara en heitir nú skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu, fjár­munir hafa verið settir í að kaupa upp­lýs­inga­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­semi innan bank­anna sjálfra hefur verið eflt.

Þá gaf stýri­hópur dóms­mála­ráð­herra um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka út nýjan fræðslu­bæk­ling í síð­ustu viku sem bein­ist að því að fræða almanna­heilla­fé­lög um góða stjórn­ar­hætti til að koma í veg fyrir að starf­semi þeirra sé mis­not­uð.

Margháttaðar athugasemdir vegna Arion banka

Kjarninn greindi frá því 31. maí síð­ast­lið­inn að FME hefði fram­kvæmt athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­semdir við brotala­mir hjá bank­anum í jan­úar 2019.

Nið­ur­staða athug­unar FME á Arion banka var birt 29. maí síð­ast­lið­inn, rúmum fjórum mán­uðum eftir að nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir. Það var gert að beiðni Arion banka sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en nið­ur­staðan yrði gerð opin­ber. Bankinn seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum. FME vill ekki svara því hvaða tímara­mma Arion banka var settur til að koma á úrbótum.

Í athugun FME á Arion banka kom meðal ann­ars fram að bank­inn hefði hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­ir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vin­ar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi FME að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

Vildu ekki svara

Kjarninn spurð­ist í kjöl­farið fyrir um það hvort að það stæði yfir athugun á aðgerðum Lands­bank­ans, Íslands­banka og Kviku banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Fjár­mála­eft­ir­litið vildi ekki svara því hvort slík athugun væri í gangi. 

Í svari eft­ir­lits­ins sagði að það hafi, í ljósi þeirra úrbótakrafna sem settar voru fram af hendi FATF, lagt auk­inn þunga í verk­efni tengd vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka á und­an­förnum árum. „Í því sam­bandi hefur verið fram­kvæmt áhættu­mat á öllum til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum og hefur eft­ir­lit verið við­haft í sam­ræmi við það mat, fræðsla hefur verið efld til muna (með fræðslu­efni og fræðslu­fundum) auk þess sem fjöldi og gæði athug­ana hafa auk­ist.“

Frá árinu 2017 og til dags­ins í dag hafi verið fram­kvæmdar tæp­lega 20 athug­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­ar­innar. „Þá standa nú yfir þrjár athug­anir en í sam­ræmi við heim­ildir í lögum og gagn­sæ­is­stefnu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kann stofn­unin innan tíðar að birta gagn­sæ­istil­kynn­ingar vegna þeirra athug­ana. Fleiri athug­anir eru einnig fyr­ir­hug­aðar á næstum mán­uðum. Þær athug­anir sem hafa verið fram­kvæmdar og standa nú yfir hafa tekið mið af þeim athuga­semdum sem FATF gerði í skýrslu sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár