Takmarka þarf notkun á reiðufé í spilakössum til að stöðva peningaþvætti

Í aðgerð­ar­á­ætlun gegn pen­inga­þvætti er lagt til að lögum verði breytt þannig að nafn­lausir spil­arar í spila­kössum geti ekki sett háar fjár­hæðir í þá, tekið þær síðan út sem vinn­inga og látið leggja þær inn á sig sem lög­lega vinn­inga.

Nafn­lausir spil­arar í spila­kössum hér­lendis geta búið til „falska vinn­inga“ með því að hlaða allt að eitt hund­rað þús­und krónum í kass­ana í einu og í stað þess að spila fyrir féð þá prenta þeir ein­fald­lega strax út vinn­ings­miða. Hann er síðan hægt að inn­leysa og fá fjár­hæð­ina sem um ræðir milli­færða inn á reikn­ing vinn­ings­hafa. Þar með er búin til lög­mæt slóð fjár­muna.

[links]Ef upp­haf­legu fjár­mun­irnir voru ólög­lega fengnir, til að mynda vegna þess að þeir voru ávinn­ingur af fíkni­efna­sölu eða fé sem búið var að svíkja undan skatti, þá hefur ofan­greint atferli það í för með sér að pen­ing­arnir verða þvætt­aðir. Fjár­munir sem aflað er ólög­lega fá lög­mæti og sá sem afl­aði þeirra getur notað þá að vild ann­ars staðar en í svarta hag­kerf­inu.

Þetta er meðal þeirra veik­leika sem til­greindir eru á pen­inga­þvætt­is­vörnum hér­lendis þegar kemur að notkun spila­kassa sem pen­inga­þvætt­is­véla í aðgerð­ar­á­ætlun gegn pen­inga­þvætti sem birt var á mánu­dag.

[adspot]Í áætl­un­inni er lagt að lögum verði breytt strax á næsta ári þannig að rekstr­ar­að­ilar spila­kassa verði gert að inn­leiða áfyll­an­leg spila­kort sem tengd séu kenni­tölu og banka­reikn­ingi eða greiðslu­korti hvers spil­ara. Ef heim­ila eigi reiðufé áfram þá þurfi að tak­marka fjár­hæð veru­lega, til dæmis við 1500 krónur.

Mikil ógn

Íslandi stafar mikil ógn af margs­konar leiðum til að þvætta pen­inga sam­kvæmt áhættu­mati sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fram­kvæmdi og birti í apríl síð­ast­liðnum.

Aðgerð­ar­á­ætl­unin sem birt var í upp­hafi viku byggir á því áhættu­mati en einnig á fjöl­mörgum aðfinnslum Financial Action Task Force (FATF) um óvið­un­andi pen­inga­þvætt­is­varnir á Íslandi.

Í áætl­un­inni kemur fram að áhætta tengd bingói, happa­drætti og lottói sé metin lítil. Pen­inga­þvætti sem fram getur farið í gegnum spila­kassa er hins vegar auð­velt og ógnin sem íslensku sam­fé­lagi stafar af því mikil.

Tveir aðilar reka spilakasa hér­lendis, ann­ars vegar Íslands­spil ehf., sem er í 64 pró­sent eigu Rauða kross­ins á Íslandi, 26,5 pró­sent eigu Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar og 9,5 pró­sent í eigu SÁÁ. Hins vegar er Happa­drætti Háskóla Íslands, sem rekur Gull­námu­kass­anna, en hagn­aður af þeirri starf­semi rennur, að frá­dregnu 150 milljón króna leyf­is­gjaldi til rík­is­ins, til nýbygg­inga á vegnum Háskóla Íslands og við­halds á eldri bygg­ingum hans.

Heild­ar­velta árið 2017 í spila­kössum var 11,74 millj­arðar króna og útgreiddir vinn­ingar sama ár námu 8,1 millj­örðum króna. Því er um afar umfangs­mikla starf­semi að ræða.

Margir veikleikar

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni kemur fram að veik­leik­arnir sem séu með pen­inga­þvætt­is­eft­ir­liti í gegnum spila­kassa séu margir. Þar segir að algjör skortur hafi verið á eft­ir­liti með starf­sem­inni og að eng­inn til­greindur aðili hafi haft eft­ir­lit með þeim áður en að pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit rík­is­skatt­stjóra tók við því 1. jan­úar 2019 í sam­ræmi við ný heild­ar­lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem tóku þá gildi. Fumvarp af þeim lögum var lagt fram í fyrra eftir að FATF hót­aði að setja Ísland á lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki í kjöl­far þess að sam­tökin höfðu gefið pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands algjöra fall­ein­kunn í úttekt sem birt var í apríl 2018. Síðan þá hafa íslensk stjórn­völd verið á fullu við að bæta ráð sitt til að lenda ekki á þeim lista.

Í áætl­un­inni kemur einnig fram að rekstr­ar­að­ilar spila­kassa virt­ust skorta þekk­ingu á því með hvaða hætti starf­semi þeirra gat verið mis­notuð sem end­ur­spegl­að­ist meðal ann­ars í því að algjör skortur var á til­kynn­ingum frá þeim til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu um mögu­legt pen­inga­þvætti.

[adspot]Aðgengi að spila­kössum og vinn­ingsmiðum var líka talið upp sem veik­leiki sem og skortur á því að rekstr­ar­að­ila geri kröfur til orð­spors þeirra sem reka spila­staði.

Alvar­leg­asti veik­leik­inn er hins vegar fólgin í því að hægt sé að setja allt að 100 þús­und krónur í spila­kass­ana, taka þær strax út, fá þær lagðar inn á banka­reikn­ing við­kom­andi og þar með veita pen­ing­unum lög­mæti.

Breyta lögum og takmarka reiðufé

Fjöl­margar aðgerðir eru lagðar fram til að taka á ofan­greindum veik­leikum. Hefja þurfi áhættu­miðað eft­ir­lit, gefa út fræðslu­efni um hættu­merki og aðferðir við mis­notkun fyrir spila­kassa og að hefja sam­tal við rekstr­ar­að­ila spila­kassa um að gera ein­göngu samn­inga við spila­staði þar sem gott orð­spor er tryggt ekki seinna en í sept­em­ber 2019.

Mik­il­væg­asta breyt­ingin sem lögð er til snýst þó um að breyta lögum með það í huga að tak­marka reiðufjár­notkun. Í til­lög­unni felst að gera kröfu um að rekstr­ar­að­ilar spila­kassa inn­leiði áfyll­an­leg spila­kort sem tengd séu kenni­tölu og banka­reikn­ingi eða greiðslu­korti við­kom­andi spil­ara. Ef heim­ila eigi reiðufé áfram þá þurfi að tak­marka fjár­hæð veru­lega, til dæmis við 1500 krónur.

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni er lagt til að dóms­mála­ráðu­neytið hefji und­ir­bún­ing að frum­varpi vorið 2020 og að það verði lagt fram haustið 2020 þar sem tryggt verði sér­stakt sól­ar­lags­á­kvæði um inn­leið­ingu spila­korta, en slíkt myndi krefj­ast þess að kortin væru komin í fulla notkun fyrir til­greinda dag­setn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilakassar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár