Mynd: 123RF

Seðlabankann skorti þekkingu á hættumerkjum við peningaþvætti

Mikil áhætta á pen­inga­þvætti fylgdi fjár­magns­höftum á Íslandi og þeim leiðum sem valdar voru til að losa um þau. Seðla­banki Íslands þarf að grípa til marg­hátt­aðra aðgerða til að draga úr þeirri áhættu, nú nokkrum árum eftir að höftum var að mestu aflétt.

Mikil áhætta á pen­inga­þvætti fylgdi aflétt­ingu fjár­magns­hafta á Íslandi, sam­kvæmt áhættu­mati rík­is­lög­reglu­stjóra. Sú áhætta var marg­þætt og grípa þarf til marg­hátt­aðra aðgerða til að laga stöð­una, meðal ann­ars vegna þess að gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­bank­ans skortir þekk­ingu á hættu­merkjum og aðferðum við pen­inga­þvætti. Engar laga­legar skyldur hafa hvílt á Seðla­bank­anum vegna aðgerða gegn pen­inga­þvætti þrátt fyrir að hann haft umsjón með öllu gjald­eyr­is­eft­ir­liti og losun hafta á und­an­förnum árum þegar hund­ruð millj­arða króna hafa verið flutt til og frá land­inu. Þá hefur bank­inn ekki getað miðlað þagn­ar­skyldum upp­lýs­ingum í tengslum við gjald­eyr­is­eft­ir­litið til þar til bærra aðila vegna skorts á laga­heim­ild.

Í nýbirtri áætlun íslenskra stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti sem birt var á vef emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra á mánu­dag kemur fram að það eigi að bregð­ast við þess­ari miklu áhættu á allra næstu vikum og mán­uðum.

Vanda­málið við áætl­un­ina er að hún er birt í sept­em­ber 2019, en fjar­magns­höft­unum, sem höfðu verið við lýði frá því í nóv­em­ber 2008, var að mestu verið aflétt 12. mars 2017.

Því liggur fyrir að þær breyt­ingar sem lagt er til að gerðar verði á hinni afar áhættu­sömu pen­inga­þvætt­is­leiðum sem höftin buðu upp á eru gerðar nokkrum árum eftir að höftin voru tekin niður.

Engar tilkynningar

Í ágúst síð­ast­liðnum birti Seðla­banki Íslands skýrslu um þátt gjald­eyr­is­út­boða í í lausn greiðslu­jafn­að­ar­vand­ans sem Íslands stóð frammi fyrir eftir hrun. Bankinn hefur verið gagn­rýndur harð­lega fyrir þær leiðir sem hann valdi, sér­stak­lega hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið sem gerði var opin milli áranna 2011 og 2015 fyrir nán­ast alla þá sem áttu meira en 25-50 þús­und evrur utan hafta á tíma­bil­inu. Með leið­inni gátu þeir sem nýttu hana fengið 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu á fé sitt, í til­vikum margra leyst út mik­inn geng­is­hagnað og fengið lög­mæti á pen­inga sem gæti hafa verið komið undan t.d. rétt­mætum kröfu­höfum eða skatt­inum. Í skýrsl­unni tók bank­inn undir flesta þá gagn­rýni sem hann hefur fengið á sig vegna fjár­fest­ing­ar­leið­ina, meðal ann­ars um að hún hafi mögu­lega opnað á pen­inga­þvætti.

Það má líkja leið­inni við pen­inga­þvætti í gegnum spila­kassa, sem er þekkt fyr­ir­brigði í und­ir­heimunum. Þá setur sá sem þarf að fá lög­mæti á fé það inn í spila­kass­ann/fjár­fest­ing­ar­leið­ina, prentar svo strax út vinn­ings­mið­ann og lætur þann sem rekur spila­kassa­sal­inn leggja ávinn­ing­inn inn á sig. „Skítugir“ pen­ingar geta með þessu öðl­ast lög­mæti.

Alls voru 206 millj­arðar króna ferjaðir inn í íslenskt efna­hags­líf í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Seðla­bank­inn taldi það ekki hlut­verk sitt að kanna hvort þeir aðilar sem nýttu sér leið­ina væru að þvo pen­inga. Hann sagði það vera hlut­verk þeirra banka sem sinntu milli­göngu. Þeir sinntu ekki því hlut­verki og engin til­kynn­ing barst til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu stjórn­valda um mögu­legt lög­brot á meðan að leiðin stóð til boða.

Ekki hlutverk Seðlabanka að útdeila réttlæti

Í skýrslu bank­ans um fjár­fest­ing­ar­leið­ina við­ur­kenndi bank­inn að aðgerð­inni hafi fylgt „ýmis nei­kvæð hlið­ar­á­hrif, eins og algengt er um aðgerðir af þessu tagi en þau jákvæðu áhrif sem að var stefnt með aðgerð­unum vega þó þyngra á vog­ar­skál­un­um.“ Til­gang­ur­inn, að létta á snjó­hengj­u aflandskróna, hafi því helgað með­al­ið. Seðla­bank­inn taldi það ekki sitt hlut­verk að útdeila rétt­læti í sam­fé­lag­inu „með því að greina á milli æski­legra og óæski­legra fjár­festa, verð­ugra og óverð­ugra.“ Það væri ekki úrlausn­ar­efni hans. „Þótt deila megi um sann­girni þess var fátt sem Seðla­bank­inn gat gert til þess að stuðla að sann­gjarn­ari útkomu innan þess lag­ara­mma sem hann starfar undir og án þess að ganga gegn því mark­miði aðgerð­anna að stuðla að stöð­ug­leika.“

Árum saman hafa fjöl­miðlar kallað eftir því að nöfn þeirra sem fengu að nýta sér leið­ina verði birt, en Seðla­bank­inn hefur borið fyrir sig trúnað. Nú, nokkrum árum eftir að höftum hefur verið aflétt og fjár­fest­ing­ar­leið­inni verið lokað, á að taka á þess­ari stöðu.

Skorti þekkingu á hættumerkjum

Í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti kemur fram að það þurfi að breyta lögum um gjald­eyr­is­við­skipti með þeim hætti að upp­lýs­inga­öflun Seðla­banka Íslands taki einnig mið af aðgerðum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þá er lagt til að bank­inn fái heim­ild til að miðla upp­lýs­ingum að eigin frum­kvæði til ann­arra eft­ir­lits­stofn­ana eða veita þeim mið­lægt aðgengi að upp­lýs­ingum. Und­ir­bún­ingur á breyt­ingum á lögum um gjald­eyr­is­mál á að hefj­ast í nóv­em­ber 2019 og honum á að ljúka í maí á næsta ári. Auk þess er lagt til að bæta við full­trúa frá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans í stýri­hóp um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti.

Eins og stendur er ekki kveðið á um skyldur Seðla­bank­ans hvað varðar aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í lögum um gjald­eyr­is­mál þegar kemur að eft­ir­liti hans með pen­inga­þvætti. Vegna áður­nefndrar þagn­ar­skyldu sem kveðið er á í lög­unum getur bank­inn ekki miðlað ákveðnum upp­lýs­ingum í tengslum við gjald­eyr­is­eft­ir­lit bank­ans.

Þá segir í áætl­un­inni að gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­bank­ans skorti „þekk­ingu á hættu­merkjum og aðferðum við pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í tengslum við erlendan gjald­eyri.“ Þjálfa þurfi starfs­menn eft­ir­lits­ins í þessu. Und­ir­bún­ingur á að hefj­ast í októ­ber 2019 og frek­ari nám­skeið verða haldið í des­em­ber 2019.

Áfram verður fjallað ítar­lega um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka á Kjarn­anum næstu daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár