Ómögulegt að fá heildstæða mynd af gjaldeyriskaupum útlendings

Sami útlend­ing­ur­inn getur átt í umtals­verðum við­skiptum með gjald­eyri á Íslandi án þess að slíkt flagg­ist. Ástæðan er sú að allir erlendir kaup­endur á gjald­eyri eru skráðir undir sömu kenni­töl­unni hjá fjár­mála­stofn­unum. Kenni­tölu „ótil­greinds útlend­ings“.

Eins og staðan er í í dag er ómögu­legt að fá heild­stæða mynd af gjald­eyr­is­kaupum til­tek­ins erlends ein­stak­lings sem er án kenni­tölu ef hann kemur oft í sömu fjár­mála­stofnun. Því er ávallt verið að meta við­skipti þess­ara aðila eins og þau séu ein­stök við­skipti.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýbirtri aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti. Gjald­eyr­is­kaupin og vand­kvæðin sem þeim tengj­ast telj­ast til aðgerða vegna aflétt­ingu hafta sem áhættu­mat rík­is­lög­reglu­stjóra, sem birt var í apríl, sýndi að mikil hætta á pen­inga­þvætti stafi af.

Í áætl­un­inni segir að skrán­ingum vegna kaupa á erlendum gjald­eyri af af hálfu erlendra ein­stak­linga án kenni­tölu sé ábóta­vant hjá fjár­mála­stofn­unum. Þessir aðilar séu ein­fald­lega allir skráðir á sömu kenni­töl­una, sem til­heyrir skrán­ing­unni „ótil­greindur útlend­ingur“, í kerfum fjár­mála­stofn­ana og því er ekki unnt að fylgj­ast með því hvort að sami aðili sé ítrekað að kaupa gjald­eyri. Þar af leið­andi er ómögu­legt að fá heild­stæða mydn af gjald­eyr­is­kaupum erlends aðila.

Sami ein­stak­lingur getur því átt í umtals­verðum við­skiptum án þess að slíkt flagg­ist, sam­kvæmt því sem fram kemur í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni. „Fjár­mála­stofn­unum hefur verið bent á þennan veik­leika og rætt hefur verið við þær um leiðir til að bæta úr þessu. Hefur verið mælst til þess að fjár­mála­stofn­anir leiti leiða til að skrá við­skiptin með þeim hætti að hægt verði að sjá hvaða ein­stak­lingur á í við­skipt­unum (t.d. í athuga­semd­areit) án til­lits til þess hvort allir séu skráðir á sömu kenni­tölu vegna við­skipt­anna.“

[adspot]Einnig getur reynst erfitt fyrir fjár­mála­stofn­anir að leita eftir útlend­ingum vegna gjald­eyr­is­við­skipta þegar skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu, sem áður hét pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa, leit­ast eftir því vegna þess hvernig skrán­ingu sé háttað.

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni er það lagt til að fjár­mála­stofn­anir bæti skrán­ingar sínar þegar erlendur gjald­eyrir er keyptur af aðila án kenni­tölu og að Fjár­mála­eft­ir­litið kanni hvort laga­breyt­ing sé nauð­syn­leg. Ef svo reyn­ist er eft­ir­litið hvatt til þess að leggja fram slíka breyt­ing­ar­til­lögu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni er búist við að und­ir­bún­ingur að þeim aðgerðum hefj­ist í nóv­em­ber 2019 og ljúki í febr­úar næst­kom­andi.

Óljóst um fjölda tilkynninga

Óljóst er hversu margar til­kynn­ingar ber­ast til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu sem varða gjald­eyr­is­við­skipti þar sem kerfi fjár­mála­stofn­ana og skrif­stof­unnar geta ekki kallað fram til­kynn­ingar eftir efni þeirra.

Fjár­munir hafa verið settir í að kaupa upp­lýs­inga­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­kynn­ingar um mögu­legt pen­inga­þvætti. Það kerfi heitir goAML og vinna við inn­leið­ingu þess er þegar hafin. Henni á að ljúka í apríl 2020 og þá á skrif­stofan að geta tekið út töl­fræði eftir efni til­kynn­inga.

[adspot]Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni segir að til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu hafi fjölgað mikið síðan að fjár­magns­höftum var aflétt, en þeirri aflétt­ingu var að mestu lokið í mars 2017. Raunar hafi fjöldi til­kynn­inga marg­fald­ast.

Í áætl­un­inni er lagt til að skrif­stofan fram­kvæmi stefnu­mið­aða grein­ingu í tengslum við erlendan gjald­eyri og upp­lýsi við­eig­andi aðila um hættu­merki og aðferðir. Skrif­stofan kynni svo nið­ur­stöður sínar í stýri­hópi um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og komi með til­lögur um að draga úr áhættu sem stýri­hóp­ur­inn komi til fram­kvæmda.

Und­ir­bún­ingur þess­ara aðgerða hefur þegar haf­ist og er áætlað að þær verði komnar til fram­kvæmda í nóv­em­ber 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár