Dugar ekki til að koma Íslandi af gráa listanum

Það að flýta þeim fresti sem íslensk félög hafa til að skrá raun­veru­lega eig­endur sína mun ekki eitt og sér duga til að koma Íslandi af gráum lista vegna ónógra pen­inga­þvætt­is­varna.

Óli Björn Kárason er formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Óli Björn Kárason er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Það að upp­færa lög um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda íslenskra félaga myndi ekki duga til að koma Íslandi af gráum lista Financial Action Task Force (FATF) vegna óvið­un­andi ráð­staf­ana lands­ins í pen­inga­þvætt­is­vörnum á næsta fundi sam­tak­anna í febr­úar á næsta ári. Það sé ekki raun­sætt að ætla að það verði hægt.

[links]Þetta sagði Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, á Alþingi í dag þegar hann mælti fyrir breyt­ingu á lögum um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda sem flýtir því að allir lög­að­ilar sem stunda ein­hvers­konar atvinnu­rekstur á Íslandi þurfa að upp­lýsa um, og skrá, hverjir raun­veru­legir eig­endur þeirra séu.

Í frum­varpi nefnd­ar­innar, sem Óli Björn mælti fyrir, var lagt til að frestur til að upp­lýsa um raun­veru­legt eign­ar­hald verði styttur frá 1. júní 2020 til 1. mars 2020. Verði frum­varpið sam­þykkt munu félög því hafa nú um tvo og hálfan mánuð til að upp­lýsa yfir­völd um hverjir eigi þau í raun og veru.

Hefur neikvæð áhrif

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar sem situr í efna­hags- og við­skipta­nefnd, tók til máls í umræðum um málið og sagð­ist hafa ákveðnar áhyggjur af því að tím­inn sem væri verið að gefa fyr­ir­tækjum til að upp­færa eig­enda­upp­lýs­ingar sínar væri of skammur. Þor­steinn velti einnig fyrir sér hvort að það að færa frest­inn til 1. mars myndi hafa ein­hver áhrif á veru Íslands á gráum lista FATF, en sá listi verður næst end­ur­skoð­aður á fundi sam­tak­anna í febr­úar næst­kom­andi, eða áður en að frest­ur­inn sem gefin verður til að upp­lýsa um raun­veru­legt eign­ar­hald verður lið­inn.

[adspot]Hann benti einnig á að þrátt fyrir yfir­lýs­ingar ráða­manna um annað þá væri vera Íslands á gráum lista FATF að hafa nei­kvæð áhrif á landið. Nýleg skýrsla dóms­mála­ráð­herra um málið hafi enda dregið fram að þessi fram­vinda, að Ísland hafi verið sett á list­ann, væri meðal ann­ars vegna þess að það væri skortur á trausti vegna seina­gangs íslenskra stjórn­valda að gera úttekt á stöðu pen­inga­þvætt­is­varna eftir úttekt FATF sem birt var árið 2006, sér­stak­lega á meðan að fjár­magns­höft voru við lýði en ekk­ert var gert til að laga brotala­mir.

Óli Björn sagði að sér fynd­ist að Ísland hefði gert nægi­lega mikið til að hafa átt að kom­ast hjá því að lenda á gráa list­anum, en tók undir með Þor­steini um að Ísland hefði verið sof­andi á tímum fjár­magns­hafta. „Það er auð­vitað gagn­rýn­is­vert,“ sagði Óli Björn. Þegar höft voru losuð hefði átt að huga betur að því að upp­færa lög og reglur um pen­inga­þvætti. „Við erum auð­vitað að bíta úr nál­inni með það núna, það er alveg ljóst.“

Óli Björn sagði hins vegar að það hefði verið unnið stór­virki hér á landi við að bregð­ast við þeim athuga­semdum sem FATF setti fram í úttekt sinni snemma árs 2018.

Vill flýta frestinum

Smári McCarthy, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd, sagð­ist ósam­mála Óla Birni um að Ísland ætti ekki heima á list­anum. Ísland upp­fyllti ein­fald­lega ekki þau skil­yrði sem þarf til að mati FATF.

Hann lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu um að færa frest íslenskra félaga til að upp­lýsa um hver ætti þau í raun og veru til 1. febr­úar, svo að það væri komið til fram­kvæmda þegar næsti fundur FATF yrði hald­inn.

Smári minnti hins vegar einnig á að það að vera á gráum lista FATF væri ekki stóra málið, heldur að pen­inga­þvætti væri risa­stórt vanda­mál á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár