Þjálfa þarf peningahund til að berjast gegn peningaþvætti

Embætti toll­stjóra skortir bæði þekk­ingu og úrræði til að geta almenni­lega haft eft­ir­lit með smygli á reiðufé til Íslands. Á meðal þeirra úrræða sem lagt er til að ráð­ist verði í er að þjálfa pen­inga­hund.

Auka þarf úrræði toll­stjóra til að hafa eft­ir­lit með smygli á reiðufé með því að meðal ann­ars þjálfa pen­inga­hund, útbúa verk­lags­reglur og ferla við eft­ir­lit á smygli á reiðufé, inn­leiða raf­rænt til­kynn­inga­kerfi um flutn­ing reiðu­fjár, auka leið­bein­ingar til ferða­manna um til­kynn­ing­ar­skyldu vegna reiðu­fjár bæði á brott­farar- og komu­stöðum, auka heim­ildir tolla­yf­ir­valda við eft­ir­lits­at­hug­anir og við­ur­laga­heim­ildir.

Þetta er meðal þeirra veik­leika sem til­greindir eru á pen­inga­þvætt­is­vörnum hér­lendis sem tengj­ast aflétt­ingu hafta og frjáls­ara flæði fjár­muna milli Íslands og ann­arra landa í aðgerð­ar­á­ætlun gegn pen­inga­þvætti sem birt var á mánu­dag.

[adspot]Í áætl­un­inni segir að emb­ætti toll­stjóra skorti dýpri þekk­ingu á aðferðum við smygl á erlendum gjald­eyri yfir landa­mæri, hvort sem er í eigin per­sónu, farmi eða pósti. Embættið þurfi að afla sér þjálf­unar um aðferðir og hættu­merki hjá evr­ópskum syst­ur­stofn­unum sínum til að auka við þá þekk­ingu.

Þá skorti einnig á úrræði hjá tolla­yf­ir­völdum til að hafa eft­ir­lit með smygli á reiðufé.

Auka þarf úrræði toll­stjóra til að hafa eft­ir­lit með smygli á reiðufé m.a. með því að:

  • Þjálfa pen­inga­hund
  • Útbúa verk­lags­reglur og ferla við eft­ir­lit á smygli á reiðufé.
  • Þjálfa starfs­menn
  • nnleiða raf­rænt til­kynn­inga­kerfi um flutn­ing reiðu­fjár
  • Auka leið­bein­ingar til ferða­manna um til­kynn­inga­skyldu vegna reiðu­fjár bæði á brott­farar- og komu­stöðum
  • Gera eft­ir­lits­á­ætlun um eft­ir­lit með reiðufé í inn­rit­uðum far­angri og farmi
  • Auka heim­ildir tolla­yf­ir­valda við eft­ir­lits­at­hug­anir og við­ur­laga­heim­ildir
  • Auka sam­vinnu milli tolla­yf­ir­valda, SFL og lög­reglu á landa­mærum (Suðurnes)

Und­ir­bún­ingur við inn­leið­ingu þess­ara aðgerða er þegar haf­inn og er áætlað að inn­leið­ing­unni ljúki í mars 2020. Upp­færslu á tolla­lögum á að leggja fram sem frum­varp í febr­úar 2020 og gengið út frá því að það verði sam­þykkt í maí, eða fyrir lok vor­þings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár