Rannsóknir sýna stórfelld skattsvik í 64 Panamamálum

Búið er að vísa 64 málum sem tengj­ast Panama­skjöl­unum til hér­aðs­sak­sókn­ara til refsi­með­ferðar. Alls er rann­sókn lokið í 96 málum sem tengj­ast skjöl­unum og sjö mál er enn í ferli.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur lokið rann­sókn í alls 96 málum sem eiga upp­runa sinn í svo­nefndum Panama­skjölum. Af þeim hefur alls 64 málum verið vísað til refsi­með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, farið var fram á sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd í 17 málum, refsi­með­ferð í tveimur málum er lokið með sekt­ar­gerð hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra og ekki var hlut­ast til um refsi­með­ferð í 13 málum.

Rannsókn tveggja ann­arra mála á loka­stigi og áætlað er að rann­sókn fimm mála til við­bótar verði lokið fyrir ára­mót. Alls eru Pana­ma­málin hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra, þau sem rann­sókn er lokið í og þau sem rann­sókn stendur yfir á, alls 103 tals­ins.

Þetta kemur fram í svarið Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þar segir enn fremur að í þeim 96 málum sem að lokið er með þeirri nið­ur­stöðu að fjár­munum hafi verið skotið undan skatti eru und­an­dregnir skatt­stofnar um 16,4 millj­arðar króna. Áætlaðir und­an­dregnir skatt­stofnar í þeim sjö málum sem er ólokið eru um 2,2 millj­arðar króna.

Keyptu gögn af huldumanni

Árið 2015 keypti íslenska ríkið skatta­skjóls­gögn um 500 félög í eigu um 400 Íslend­inga af huldu­manni. Gögnin komu frá lög­manns­stofu í Panama, Mossack Fonseca & Co, sem hafði unnið umtals­vert fyrir íslensku bank­anna á árunum fyrir hrun. Alls voru greiddar 37 millj­ónir króna fyrir gögnin, en upp­haf­lega vildi selj­and­inn fá 150 millj­ónir króna.

Ári síðar, í apríl 2016, greindu fjöl­miðlar víða um heim frá afrakstri vinnu sinnar úr gagna­leka sem þekktur varð sem Panama­skjölin. Um var að ræða skjöl úr sama ranni og þau sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði keypt. Þ.e. frá Mossack Fonseca.

Þar kom meðal ann­ars fram að skatta­skjóla­eign Íslend­inga var enn umfangs­meiri en áður hafði verið ýjað að. Alls er þar að finna upp­lýs­ingar um 600 Íslend­inga sem tengj­ast um 800 aflands­fé­lögum. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­skipta­vini Lands­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­göngu­liði Kaupþing og Glitnir not­uðu helst, en sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans sem þekktu vel til í starf­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins. Því eru mörg þeirra enn óupp­götvuð.

Allt að 810 milljarðar króna á aflandssvæðum

Það kom til að mynda í ljós í byrjun jan­úar 2017 þegar gerð var opin­ber skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði umfang aflandseigna Íslend­inga, sem unnin var sem við­bragð við birt­ingu Panama­skjal­ana, og áætl­­aði hversu miklu eig­endur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Þar sagði að stökk­breyt­ing hefði orðið á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga hefði fer­tug­fald­ast frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nam ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 vegna þessa nam lík­lega um 56 millj­örðum króna, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Tugir mála felld niður

Kjarninn greindi frá því í í lok árs 2017 að alls 66 skattsvika­mál sem hér­aðs­sak­sókn­ari hafði haft til með­ferðar hefðu verið felld niður. Und­an­dregin skatt­stofn í þeim var sam­an­lagt 9,7 millj­arðar króna. Hluti þeirra mála voru svokölluð Pana­ma­mál sem ratað höfðu til emb­ætt­is­ins frá skatta­rann­sókn­ar­stjóra, en ekki öll.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu var rof í máls­með­ferð sem varð vegna þess að ákæru­valdið og íslenskir dóm­stólar voru að bíða eftir nið­ur­stöðu í máli Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Tryggva Jóns­sonar fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu, og síðan bið eftir því hvernig Hæsti­réttur túlk­aði þá nið­ur­stöðu.

Málin voru felld niður vegna þess að máls­með­ferð þeirra hjá ann­ars vegar skatt­yf­ir­völdum og hins vegar hér­aðs­sak­sókn­ara var ekki nægi­lega sam­tvinnuð í efni og tíma, aðal­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna þess að beðið var nið­ur­stöðu máls sem var til með­ferðar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans voru mál íslenskra sjó­manna sem störf­uðu hjá íslenskum útgerðum erlendis, meðal ann­ars Sjóla­skipum, á meðal þeirra mála sem felld voru nið­ur. Hin meintu brot mann­anna fólust í því að þeir greiddu ekki skatt af launum sínum á Íslandi á meðan að þeir unnu hjá íslenskum útgerðum í Afr­íku, þótt þeir hafi átt heim­il­is­­festi hér. Alls voru 33 þeirra mála sem hafa verið látin niður falla vegna tekna sem urðu til vegna starfa erlend­is. Um tugi millj­óna króna var um að ræða í van­fram­töldum tekjum í hverju til­felli fyrir sig.

En stóru töl­urnar í mál­unum sem voru látin niður falla voru í málum af öðrum toga. Um­fangs­mesta málið sner­ist um van­fram­taldar tekjur og fjár­magnstekjur vegna greiðslna frá erlendu félagi, vaxta­greiðslna og hluta­bréfa­við­skipta upp á sam­tals um 2,2 millj­arða króna. Annað stórt mál sner­ist um van­fram­taldar tekjur upp á 876 millj­ónir króna vegna kaupa á hluta­bréfum á lægra verði en gang­verði, óheim­ilar úthlut­unar úr lög­að­ila og van­fram­tal­inna stjórn­ar­launa.

Þá voru felld niður stór mál sem snér­ust um tekjur vegna óheim­ilar úthlut­unar úr félögum og vegna fram­virkra samn­inga. Þar voru van­fram­taldar tekjur og fjár­magnstekjur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í ein­stökum mál­um.

Sjólaskipasystkinin ákærð

Það mál úr Panama­skjöl­unum sem ákært hefur verið í., og hefur vakið mesta athygli, er gegn systkin­unum sem áttu áður­nefnda útgerð, Sjóla­skip. Systk­inin, tveir bræður og tvær systur, voru ákærð fyrir umfangs­mikil skatt­svik fyrr á þessu ári. Þau seldu fyr­ir­tækið, sem stund­aði veiðar við strendur Afríku, til Samherja árið 2007 á 12 millj­arða króna og málið snýst meðal ann­ars um skatta­lega með­ferð þeirrar upp­hæðar.

Nöfn systk­in­anna fjög­urra, þeirra Guð­mundar Stein­ars Jóns­son­ar, Har­aldar Reynis Jóns­son­ar, Ragn­heiðar Jónu Jóns­dóttur og Berg­lindar Bjarkar Jóns­dótt­ur, var að finna í Panama­skjöl­unum.

Frétta­tím­inn greindi frá því í nóv­em­ber árið 2016 að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefði kært við­skipti systk­in­anna í skatta­skjól­inu Tortólu, sem til­heyrir Bresku Jóm­frú­areyj­unum, til hér­aðs­sak­sókn­ara. Í frétt blaðs­ins kom meðal ann­ars fram að aflands­fé­lögin á Tortólu hefðu verið notuð til að greiða kredit­korta­reikn­inga fjöl­skyldu­með­lima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið undanfarið ár