Tíu stærstu íslensku málin í Panamaskjölunum

Panama­skjölin eru stærsti gagna­leki sög­unnar. Þar var að finna upp­lýs­ingar úr gagna­safni lög­fræði­skrif­stof­unnar Mossack Fonseca í Panama. Í skjöl­unum kemur fram að 600 Íslend­ingar hafi átt um 800 félög.

1. Wintris-málið er lík­ast til stærsta frétt Panama­skjal­an­anna allra. Í því var opin­berað að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra Íslands, hefði ásamt eig­in­konu sinni átt aflands­fé­lagið Wintris sem er með heim­il­is­festi í skatta­skjól­inu Tortóla á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Sig­mundur Davíð hefur ekki viljað upp­lýsa um hvaða eignir séu í félag­inu en gefið hefur verið út að virði þeirra sé á annan millj­arð króna. Wintris var auk þess kröfu­hafi í bú föllnu íslensku bank­anna, sem rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs samdi um að hleypa út úr íslensku hag­kerfi á árinu 2015.

Sig­mundur Davíð sagði ekki sam­herjum innan Fram­sókn­ar­flokks, sam­starfs­flokknum Sjálf­stæð­is­flokki eða almenn­ingi frá því að hann hefði átt þessar eignir né að hann hefði verið kröfu­hafi í bú bank­anna. Þegar til­vist Wintris var borin upp á Sigmund Davíð í við­tali sem birt var 3. apríl, og var sýnt út um allan heim, laug hann, neit­aði síðan að svara frek­ari spurn­ingum og rauk út úr við­tal­inu. Wintris-málið leiddi til þess að Sig­mundur Davíð þurfti að segja af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Íslands 5. apríl 2016.

2. Í Panama­skjöl­unum var að finna upp­lýs­ingar um félagið Guru Invest, sem skráð er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, og hefur fjár­magnað fjöl­mörg verk­efni í Bret­landi og á Íslandi eftir hrun. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður hennar, var skráður með pró­kúru í félag­inu og teng­ist mörgum verk­efn­anna sem það hefur fjár­magnað.

Í skjöl­unum kom einnig fram félagið kom að því að greiða 2,4 millj­arða króna skuld tveggja félaga í eigu fjöl­skyldu Jóns Ásgeirs á árinu 2010. Skuldin var greidd í reiðufé og með skulda­bréfum útgefnum af Íbúða­lána­sjóði. Í skulda­upp­gjör­inu fékk Guru Invest heim­ild frá Seðla­bank­anum til að nota skulda­bréfin til að greiða upp skuld­ina.

Seðla­banki Íslands hefur ekki viljað svara því af hverju félag frá Panama fékk leyfi til að nota inn­lendar eignir í skulda­upp­gjöri með þessum hætti þegar aðrir erlendir eig­endur íslenskra eigna sátu fastir innan hafta með þær, né hvort að dæmi séu um að aðrir erlendir eig­endur skulda­bréfa útgefnum af Íbúð­ar­lána­sjóði hafi fengið að nota þau með sama hætti.

[adspot]

3. Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, sem oft­ast eru kenndir við Bakkavör, áttu að minnsta kosti sex félög sem skráð eru til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Eitt þeirra félaga var á meðal kröfu­hafa í bú Kaup­þings. Félagið, New Ortland II Equities Ltd., gerði sam­tals kröfu upp á 2,9 millj­arða króna í búið. Um var að ræða skaða­bóta­kröfu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Kaup­þingi ehf., sem stofnað er á grunni slita­bús Kaup­þings, var skaða­bóta­kröf­unni hafnað með end­an­legum hætti við slita­með­ferð Kaup­þings. Bræð­urnir voru stærstu ein­stöku eig­endur Kaup­þings fyrir fall bank­ans í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Exista.

Bjarn­freður Ólafsson, lög­maður þeirra, sat í stjórn bank­ans fyrir þeirra hönd og félög bræðr­anna voru á meðal stærstu skuld­ara Kaup­þings. Samkvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis skuld­aði Exista og tengd félög Kaup­þingi, sem breytt­ist í Arion banka við kenni­tölu­flakk í hrun­inu, 239 millj­arða króna. Eitthvað hefur feng­ist upp í þær kröfur vegna nauða­samn­inga Existu og Bakka­varar, og sölu á hlut í Bakkavör, en ljóst er að sú upp­hæð er fjarri þeirri fjár­hæð sem Kaupþing lán­aði sam­stæð­unni.

Það átti ekki að koma mörgum á óvart að Ágúst og Lýður ættu mikla fjár­muni erlendis. Fyrir hrun var hol­lenskt félag í þeirra eigu, Bakka­bræður Holding B.V., aðal­eig­andi fjár­fest­inga­fé­lags­ins Existu sem hélt meðal ann­ars á eign­ar­hlut þeirra í Bakkavör auk þess að vera stærsti eig­andi Kaup­þings. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kom fram að það félag hefði verið á meðal þeirra aðila sem þáðu hæstar arð­greiðslur á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun. Alls fékk félagið tæpa níu millj­arða króna í arð­greiðslur á árunum 2005 til 2007.

4. Skjölin sýndu að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði átt þriðj­ungs­hlut í félag­inu Falson&Co. sem skráð var á Seychelles-eyj­um. Þær eyjar eru þekkt skatta­skjól. Bjarni átti hlut í félag­inu vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai sem hann tók þátt í árið 2006. Falson-hóp­ur­inn gekk út úr við­skipt­unum árið 2008 og ári seinna var félagið gert upp með tapi og Falson sett í afskrán­ing­ar­ferli.

Bjarni hafði verið spurður að því í Kast­ljósi 11. febr­úar 2015 hvort hann hafi ekki átt eignir eða við­skipti í skatta­skjólum. Bjarni neit­aði því en sagði síðar að hann hafi talið Falson vera skráð í Lúx­em­borg og því hafi svör hans verið gefin eftir bestu vit­und. Síðar birti Bjarni skatta­upp­lýs­ingar sínar og sagði við það tæki­færi að honum fynd­ist „bæði eðli­legt og skilj­an­legt að gerðar séu miklar kröfur til for­ystu­manna í stjórn­mál­um. Hér fylgir því jafn­framt yfir­lit yfir allar skatt­skyldar tekjur þau ár sem ég hef gegnt ráð­herra­emb­ætt­i.“

Staða Bjarna var samt sem áður í lausu lofti í byrjun apríl, eftir að fyrstu fréttir úr Panama­skjöl­unum voru sagðar. Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar, sem gerð var í byrjun apríl 2016, kom fram að 60 pró­sent lands­manna vildu að Bjarni segði af sér ráð­herra­emb­ætti vegna aflands­fé­laga­eignar sinnar.

5. Bjarni var ekki eini for­ystu­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem var í Panama­skjöl­unum. Þar var einnig að finna upp­lýs­ingar um aflands­fé­laga­tengsl Ólafar Nordal, vara­for­manns flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún og eig­in­maður hennar, Tómas Sig­urðs­son, þáver­andi for­stjóri Alcoa á Íslandi, voru skráð sem próf­kúru­hafar Dooley Securities á Tortóla-eyju tveimur dögum eftir að hún tók þátt í próf­kjöri flokks síns árið 2006.

Til­gangur félags­ins var að halda utan um ætl­aðan ávinn­ing af kaup­rétti eig­in­manns hennar. Til þess kom aldrei að Tómas nýtt félagið undir kaup­rétti sína, og því var Dooley aldrei notað. Ólöf taldi að félag­inu hefði verið slitið 2008 en það var ekki afskráð fyrr en 2012. Ólöf skráði aðild sína að Dooley aldrei í hags­muna­skrá þing­manna.

6. Þá var Júl­íus Víf­ill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til umfjöll­unar vegna vörslu­sjóðs sem hann á í Panama. Júl­íus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eign­ar­stofnun. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Foundation. Júlíus Vífill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi í kjöl­farið.

Í maí greindu tvö systkin Júlíusar Vífils frá því að hann hefði við­ur­kennt fyrir þeim að í aflands­fé­lagi hans í Panama hafi verið pen­ingar upp­runnir frá for­eldrum þeirra. Pen­ing­anna hafði móðir þeirra ásamt hluta fjöl­skyld­unnar leitað í rúman ára­tug. Um var að ræða sjóð í erlendum banka sem faðir þeirra, Ingvar Helga­son, hafði safnað umboðs­launum frá erlendum bíla­fram­leið­endum inn á alla tíð. Júlíus Vífill hefur sjálfur sagt að ásak­anir systk­ina hans væru algjör ósann­indi og ómerki­leg ill­mælgi. Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­valla­vina, var einnig til umfjöll­un­ar. Svein­björg átti hlut­deild í aflands­fé­lagi sem var í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Panama.

7. Í gögnum Mossack Fonseca var einnig að finna upp­lýs­ingar um félag í eigu fjöl­skyldu Dorritar Moussaieff, eig­in­konu Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, þáver­andi for­seta Íslands, sem ­skráð var á Bresku Jóm­frú­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félag­ið Lasca Finance Limited. Árið 2005 seld­i ­fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Moussaieff Jewellers Ltd. tíu pró­senta hlut sinn í Lasca Finance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussaieff og „Mrs." Moussaieff.

Kjarninn og Reykja­vík Grapevine opin­ber­uðu þetta 25. apríl 2016. Nokkrum dögum áður hafði Ólafur Ragnar farið í við­tal til Christiane Amanpour á banda­rísku ­sjón­varps­stöð­inni CNN. Amanpour spurði Ólaf Ragnar um Panama­skjölin og hreint út hvort hann eða fjöl­skylda hans væri tengd aflands­fé­lög­um: „Átt þú ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eig­in­kona þín ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eitt­hvað eftir að koma í ljós varð­andi þig og fjöl­skyld­u þína?” spurði hún. Ólafur var afdrátt­ar­laus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, ­nei. Það verður ekki þannig.”

Síðar var greint frá því að Dorrit hafi tengst minnst fimm banka­­reikn­ingum í Sviss í gegnum fjöl­­skyldu sína og að minnsta kosti tveim aflands­­fé­lög­­um. Hún var auk þess skráð án lög­heim­ilis eða heim­il­is­festu í Bret­landi vegna skatta­mála.

8. Félög í eigu Finns Ing­ólfs­son­ar, Helga S. Guð­munds­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar voru á meðal þeirra sem fund­ust í Panama­skjöl­unum sem lekið var frá Mossack Fonseca. Félag Finns og Helga, sem skráð var í Pana­ma, keypti meðal ann­ars hlut í Lands­bank­anum á árinu 2007 með láni frá bank­anum sjálf­um.

Menn­irnir þrír hafa allir verið áhrifa­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins á und­an­förnum ára­tugum og Hrólfur var fram­kvæmda­stjóri flokks­ins þegar lek­inn var gerður opin­ber. Hann sagði af sér því starfi í lok apríl vegna umfjöll­unar um aflands­fé­laga­eign hans.

9. Aflands­fé­laga­eign var ekki bara bundin við fólk með póli­tísk tengsl eða umsvifa­mikla við­skipta­jöfra. Félög í eigu tveggja fram­kvæmda­stjóra íslenskra líf­eyr­is­sjóða var einnig að finna í skjölum Mossack Fonseca.

Um var að ræða Kára Arnór Kára­son, þá fram­kvæmda­stjóri Stapa - líf­eyr­is­sjóðs, og þá fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, Krist­ján Örn Sig­urðs­son. Kári Arnór sagði starfi sínu lausu eftir að Kast­ljós spurði hann spurn­inga vegna Panama­skjal­anna. Kristján Örn gerði slíkt hið sama nokkrum dögum síðar.

10. Þá kom fram í gögn­unum að Vil­hjálmur Þor­steins­son, fjár­fest­ir, fyrr­ver­andi gjald­ker­i ­Sam­fylk­ing­ar­innar og hlut­hafi í Kjarn­anum hafi átt félag sem skráð var til heim­il­is á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. Félag­ið, sem hét M-Trade, var stofnað árið 2001 en ­form­lega afskráð árið 2012. Það fjár­festi m.a. í afleiðu­við­skiptum og var í eigna­stýr­ingu hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg. Nafn félags­ins M-Trade kom fyrir í skjölum sem lekið var frá Mossack Fonseca. ­Nafn Vil­hjálms sjálfs er þó ekki í skjöl­un­um.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár