Gríðarlegt umfang skattaskjólseigna Íslendinga

Þeir Íslend­ingar sem hafa verið í aðstöðu til þess hafa frá fornu fari sumir hverjir leitað leiða til þess að flytja fé úr landi, ýmist til þess að forð­ast skatt­greiðslur, leyna auð­legð sinni eða firra sig þeirri geng­is­á­hættu sem fylgir íslensku krón­unni.

Það varð stökk­breyt­ing á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nemur ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 nemur lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu starfs­hóps, sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skip­aði í kjöl­far upp­ljóstrana Panama­skjal­anna í apríl á síð­asta ári. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði skýrslu sinni í sept­em­ber og kynnti hana í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins, en hún var ekki kynnt fyrir Alþingi fyrir kosn­ingar. Kjarninn spurð­ist ítrekað fyrir um málið, og í nóv­em­ber var greint frá því að skýrslan kæmi fyrir nýtt Alþingi þegar það kæmi saman. Af því varð ekki, og Kjarninn sagði frá því fyrr í þess­ari viku að ekk­ert bólaði á skýrsl­unni þrátt fyrir að þing hafi komið saman í byrjun des­em­ber. Í dag var skýrslan svo gerð opin­ber, og hún hefur verið send til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis.

Í starfs­hópnum áttu sæti Sig­urður Ing­ólfs­son, for­mað­ur, Andrés Þor­leifs­son frá­ Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, Anna Borg­þórs­dóttir Olsen frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Björn R. Guð­munds­son frá Hag­stofu Íslands, Fjóla Agn­ars­dóttir frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­in­u, Guð­mundur Sig­bergs­son frá Seðla­banka Íslands, Sig­urður H. Ingi­mars­son frá­ skatt­rann­sókna­stjóra og Sig­urður Jens­son frá rík­is­skatt­stjóra. Starfs­maður hóps­ins var Íris H. Atla­dóttir frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­in­u. Hópurinn tekur marg­sinnis fram í skýrsl­unni að erfitt sé að meta umfang og tap af aflands­fé­lögum, og að flestar rann­sóknir af þessu tagi taki mörg ár, en ekki nokkrar vikur eins og hér var raunin. Þá tekur hóp­ur­inn fram að ljóst sé að þær tölur sem kynntar eru í skýrsl­unni séu aðeins bráða­birgða­nið­ur­stöður og mun ítar­legri grein­ingar sé þörf. „Telur starfs­hóp­ur­inn að gagn­legt gæti verið að taka upp þráð­inn aftur síðar og freista þess að taka á þeim mörgu álita­málum sem upp komu í vinnu­ferl­inu að þessu sinni.“

Stökkbreyting í undanskotum

„Þeir Íslend­ingar sem hafa verið í aðstöðu til þess hafa frá fornu fari sumir hverjir leitað leiða til þess að flytja fé úr landi, ýmist til þess að forð­ast skatt­greiðslur, leyna auð­legð sinni eða firra sig þeirri geng­is­á­hættu sem fylgir íslensku krón­unni,“ segir í skýrsl­unni. Í henni sé reynt að rekja laus­lega þá djúptæku afland­svæð­ingu efna­hags­lífs­ins sem hafi fylgt þenslu á fyrsta ára­tug ald­ar­innar.

„Útrásin sem sést í tölum um erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins var ekki nema að hluta til eig­in­legt eign­ar­hald Íslend­inga erlendis, heldur að miklu leyti það sem kalla mætti fram-og-til­baka fjár­fest­ingu, (e. round tripp­ing). Það eru mála­mynda­gjörn­ingar sem ekki þjóna öðrum til­gangi en þeim að fela eign­ar­hald, forð­ast skatt­greiðslur og koma eignum úr seil­ing­ar­færi lán­ar­drottna. Þar sem þró­unin varð alls ólík á hinum Norð­ur­lönd­unum, sem búa við svip­aðan lag­ara­mma að öðru leyti, vaknar sú spurn­ing óhjá­kvæmi­lega, hvort hægt hefði verið að draga úr eða kom­ast hjá þessum mikla fjár­magns­flótta með því að fylgja líkri stefnu og þau gerðu.“

Í skýrsl­unni segir að lengi hafi verið nokkuð um und­an­skot fjár­muna á erlenda leyni­reikn­inga, en stökk­breyt­ing varð á árunum fyrir hrun. Afland­svæð­ingin á íslenskum eignum var að öðrum þræði „þjóð­ern­issinnuð“ segja skýrslu­höf­undar, vegna þess að aflands­fé­lögin fjár­festu í stórum stíl á Íslandi. Til dæmis var meiri­hluti úrvals­vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar, eða 56%, í eigu aflands­fé­laga í árs­lok 2007, eða um 1.500 millj­arðar króna. Félögin voru að lang­mestu leyti í eigum Íslend­inga, og það sama gilti um óskráð félög í aflandseign­ar­haldi. Á þessum tíma er lík­legt að um 70 pró­sent eigna­safns í eigna­stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg hafi verið bundin í íslenskum hluta­bréfum. Þetta var nátengt mik­illi inn­lendri eigna­verðs­þenslu, útlána­vexti og rót­tækri fjár­mála­væð­ingu íslensks sam­fé­lags á þessum tíma, segir í skýrsl­unni. Útlán banka tíföld­uð­ust á þesum tíma. „Eins og Panama­skjölin gefa til kynna var umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs ein­stakt í heim­inum á þessum tíma. Afl­vak­inn var íslenska fjár­má­laun­d­rið og drif­kraft­ur­inn skatta­hag­ræð­ing og virk mark­aðs­setn­ing íslenskrar sér­banka­þjón­ustu í Lúx­em­borg.“

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að rétt eins og Rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis hafi leitt í ljós að ákveðin lausa­tök hafi verið í opin­berri umgjörð um fjár­mála­kerfið á þessum tíma fyrir hrun, virð­ist íslensk skatta­lög hafa gefið meira svig­rúm til flutn­ings eigna úr lög­sög­unni með lög­legum hætti en víða ann­ars staðar, en eft­ir­fylgni og gagna­skrán­ing á þessu sviði hafi ekki haldið í við hraðan vöxt fjár­magns­flutn­inga.

Uppljóstranir úr Panamaskjölunum urðu til þess að ráðist var í gerð skýrslunnar. Mynd: Birgir Þór
Upp­ljóstr­anir úr Panama­skjöl­unum urðu til þess að ráð­ist var í gerð skýrsl­unnar. Mynd: Birgir Þór

Bara þriðjungur félaga gefinn upp á Íslandi

Starfs­hóp­ur­inn skoð­aði skatt­fram­töl Íslend­inga á árunum 2000 til 2015 með til­liti til arð­greiðslna af erlendri hluta­fjár­eign, og leiddi í ljós að fram­taldar fjár­magnstekjur sem má rekja til aflands­fé­laga nema rúmum 30 millj­örðum króna. Til við­bótar við það eru upp­lýs­ingar um að aðilar hafi selt og inn­leyst sölu­hagnað af aflands­fé­lögum fyrir hátt í 10 millj­arða. Auk þess hafi verið tal­inn fram um millj­arður í vaxta­tekjur frá slíkum félögum.

Þá kemur fram að 1.629 aflands­fé­lög hafa fengið íslenska kenni­tölu vegna banka- og hluta­bréfa­við­skipta.

„Það er eflaust stór hluti virkra aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga, enda leit­uðu margir eig­end­anna fyrst og fremst að við­skipta­tæki­færum hér heima. Félögin í keyptum gögnum skatt­rann­sókna­stjóra voru aftur á móti 585 tals­ins. Þar er því um mark­tækt úrtak að ræða (36% af þýði). Við sam­an­burð á keyptu gögn­unum við skatt­fram­töl kom á dag­inn að aðeins þriðj­ungur félag­anna höfðu verið gefin upp á Íslandi. Segir það hlut­fall auð­vitað aðeins hálfa sög­una, þar sem ekki er tryggt að umsvif hafi verið talin fram að fullu þótt upp­lýst hafi verið um félögin sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár