Ísland tekið af gráa listanum

Ísland hefur verið fjar­lægt af gráum lista FATF vegna úrbóta sem ráð­ist hefur verið í í vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

FATF, alþjóð­legur fjár­mála­að­gerða­hópur ríkja um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögn­un hryðju­verka, hefur ákveðið að fjar­lægja Ísland af gráum lista sam­tak­anna vegna úrbóta sem gerðar hafa verið í vörnum gegn þeim málum.

Mbl.is greinir fyrst frá þessu, þar sem vísað er í blaða­manna­fund sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir boð­aði til í dag. Í frétta­til­kynn­ingu segir að ákvörð­unin um að taka Ísland af gráa lista FATF hafi verið tekin í kjöl­far vett­vangs­at­hug­unar sem fram fór hér á landi í lok sept­em­ber, þar sem stað­fest væri af hálfu sér­fræð­inga á vegum FATF að lokið hefði verið með full­nægj­andi hætti við þær aðgerðir sem Íslandi var gert að grípa til í því skyni að kom­ast af umræddum lista.

„Við sama til­efni var jafn­framt stað­reynt af hálfu umræddra sér­fæð­inga að til staðar væri ríkur póli­tískur vilji hjá íslenskum stjórn­völdum til að halda áfram vinnu við að styrkja varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka,“ segir einnig í til­kynn­ing­unni.'

FATF setti Ísland á gráan lista sam­tak­anna í októ­ber árið 2019, meðal ann­ars vegna þess að þau töldu skort vera á upp­lýs­ingum um eign­ar­hald íslenskra félaga. Samtökin gáfu eft­ir­liti hér á landi með pen­inga­þvætti fall­einkun í kjöl­far úttektar sem þau gerðu á Íslandi, en sú nið­ur­staða lá fyrir vorið 2018.

Í kjöl­far skrán­ingar Íslands á list­ann mættu bæði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, dóms­mála­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþing­is. Þar kom fram að stjórn­völd stefndu að því að kom­ast af list­anum á fundi sam­tak­anna í febr­úar 2020. Það gekk hins vegar ekki upp og ákváðu FATF að halda Íslandi á list­anum eftir febr­ú­ar­fund þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár