Sigmundur Davíð riðar til falls - Bjarni talar um „ráðstafanir“

Bæjar­fulltrúar Framsóknar­flokksins á Akureyri fara fram á tafar­lausa afsögn forsætis­ráðherra. Bjarni Benediktsson neitar að lýsa stuðningi við hann, segir stöðu hans „óheppilega“ og nefnir mögulegar „ráðstafanir“ svo ríkis­stjórnin geti haldið áfram.

Forsætisráðherra í þungum þönkum
For­sæt­is­ráð­herra í þungum þönkum Var þungt hugsi á Alþingi í dag þar sem mót­mæl­endur söfn­uð­ust fyrir framan Alþing­is­húsið á sama tíma og farið var fram á afsögn hans inn­an­húss. Mynd: Kristinn Magnússon

Bæjar­fulltrúar Framsóknar­flokksins á Akureyri, stærsta byggðar­kjarna kjördæmis Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, fara fram á að hann segi af sér „án frekari tafa“. 

Bæjar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins í bænum fara jafnframt fram á að skipt verði um forsætis­ráðherra. „Í ljósi aðstæðna er trúverðug­leiki ríkis­stjórnarinnar brostinn og getur hún því ekki starfað áfram undir forystu núverandi forsætis­ráðherra,“ segir í yfir­lýsingu sjálfstæðis­manna á Akureyri.

Bjarni ræðir um „ráðstafanir“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði í samtali við sjónvarps­fréttir RÚV að Sigmundur væri „í þröngri stöðu“: „Það er auðvitað alltaf óheppilegt þegar menn þurfa að bæta í skýringar eftir að máli vindur fram,“ sagði Bjarni.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson Kemur til landsins á morgun frá Flórída.

Hann neitaði aðspurður að lýsa yfir stuðningi við Sigmund og nefndi sérstak­lega að hægt væri að grípa til „ráðstafana“.

„... hvort ríkis­stjórnin treystir sér til þess að halda áfram, eftir atvikum eftir einhverjar ráðstafanir.“

„Svona spurningum ætla ég ekkert að svara vegna þess að þannig gerast nú ekki hlutirnir þar sem ég er í samstarfi, að menn fái stuðnings­yfir­lýsingar eða vantrausts­yfir­lýsingar í fjöl­miðlum. Við þurfum einfald­lega að vinna þetta eins og almennilegt fólk, setjast niður yfir stöðuna og meta það hvort við teljum okkur hafa nægilegan stuðning til þess að sinna þeim verkefnum sem okkur voru falin og sett á dagskrá. Hvað er til bragðs að taka, hvort ríkis­stjórnin treystir sér til þess að halda áfram, eftir atvikum eftir einhverjar ráðstafanir.“

Ræðir við Sigmund á morgun

Þrátt fyrir orð Bjarna um að hann lýsi ekki yfir stuðningi eða vantrausti í fjöl­miðlum lýsti hann yfir stuðningi við Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur í ágúst 2014 þegar krafist var afsagnar hennar vegna leka­málsins. 

Bjarni kemur frá Flórída á morgun, en hann missti af flugi. Hann hefur, samkvæmt fréttum RÚV, átt samtöl við samflokksmenn sína í dag. Hann er væntanlegur til landsins á morgun og segist munu ræða við Sigmund í kjölfarið. 

Ríkis­stjórnar­fundur, sem átti að fara fram í fyrra­málið, hefur verið afboðaður, sem og þing­fundir. 

„Í dag er mér misboðið“

Sigmundur Davíð, sem býr í Reykjavík, er þingmaður norðaustur­kjördæmis, en hann flutti lögheimili sitt á sveita­bæinn Hrafna­björg í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði.

Yfir­lýsing fram­sóknarmanna á Akureyri er afgerandi og harðorð þess efnis að Sigmundur víki strax: „Vegna þess trúnaðar­brests sem við telj­um að skap­ast hafi milli for­sæt­is­ráðherra og flokks­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins sem og lands­manna allra, skor­um við á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son að segja sig frá störf­um for­sæt­is­ráðherra án frek­ari tafa.“

Þá segir fyrr­verandi bæjar­fulltrúi flokksins í bænum, Jóhannes Gunnar Bjarnason, frá því að hann ljúki stuðningi sínum við Framsóknar­flokkinn nema Sigmundur segi af sér:

„Ég hef verið félagi í Framsóknar­flokknum í mörg ár. Margsinnis hef ég tekið snerrur við fólk, varið bæði stefnu og forystu. Það hef ég ávallt gert með góðri samvisku og talið mig hafa góðan málstað að verja. En í dag er mér misboðið. Svo misboðið að stuðningi mínum við flokkinn er lokið ef formaður flokksins segir ekki af sér. Hann hefur unnið þrekvirki á mörgum sviðum en þessi heiftar­legi dómgreindar­brestur gagnvart aflands­peningum gerir hann óhæfan til áfram­haldandi setu. Það er ekki nokkur sála ómissandi og hvort sem litið er til þjóðar eða flokks þá er niður­staðan aðeins ein. Biðjast afsökunar og segja af sér. Það á reyndar við um aðra líka.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Kom af fundi með þing­flokki sínum í morgun. Fundurinn var „heiðar­legur“ en ekki tókst að ljúka honum.

Sigmundur biðst afsökunar

Sigmundur hefur í dag í fyrsta sinn beðist afsökunar á framgöngu sinni í skatta­skjóls­málinu, þar sem hann hafði leynt eignar­haldi sínu og eiginkonu sinnar á félagi sem stofnað var í skatta­skjóli og gerði kröfu upp á hálfan milljarð í slitabú íslensku bankanna. 

Björn Bjarnason, fyrr­verandi ráðherra Sjálfstæðis­flokksins, segir á bloggsíðu sinni að ekki sé nóg að biðjast afsökunar.

„Nú hafa þúsundir manna komið saman á Austur­velli til að mótmæla Sigmundi Davíð. Að láta eins og ekkert hafi í skorist og að nóg sé að biðjast afsökunar á misheppnaðri framgöngu í sjónvarps­þætti er mikill misskilningur.“

Sigmundur hefur verið staðinn að ósamræmi og ósannindum í frásögn sinni vegna málsins. Hann gekk út úr viðtali við sænskan rannsóknar­blaðamann og Jóhannes Kr. Kristjánsson frétta­mann eftir að hafa verið staðinn að ósannindum og hefur í kjölfarið gagnrýnt RÚV harðlega.

Um 15 þúsund manns komu á mótmæli gegn Sigmundi á Austur­velli í dag, sem eru þau fjölmennustu sem lögregla hefur kynnst. Fyrir mótmælin hafði Sigmundur gert lítið úr því að hann tæki mark á fjölda mótmælenda. „Það mætir nú ekki allt fólkið á Austur­völl,“ sagði hann. 

Möguleikar Sigmundar greindir í slúðurdálki

Fjallað er um málið í slúður­dálknum Orðinu á götunni á Eyjunni.is. Þar er vitnað til áhrifa­manna í stjórn­málum. Höfundur dálksins er ekki birtur, en Björn Ingi Hrafnsson, aðal­eigandi Eyjunnar og góður vinur Sigmundar Davíðs, hefur skrifað dálkinn. Þar eru færð rök fyrir því að Sigmundur geti ekki farið frá án þess að það felli ríkis­stjórnina og fleiri í íslenskum stjórn­málum: 

„Orðið á götunni innan beggja stjórnar­flokka er að staða formanns og vara­formanns Sjálfstæðis­flokksins sé líka undir í málinu. Ef Sigmundur Davíð þarf að segja af sér, munu þau líka þurfa að axla sín skinn. Það gangi ekki gagnvart almenningi og heims­pressunni að forsætis­ráðherra segi af sér af því að nafn hans hafi verið í Panama­skjölunum og við taki Bjarni Benediktsson sem forsætis­ráðherra, en nafn hans sé nú reyndar þar líka!“

Jafnframt segir í slúður­dálknum að Sigmundur geti sprengt allt í loft upp. „Einn mögu­leikinn enn hefur verið nefndur. Hann er sá að forsætis­ráðherra sprengi allt í loft upp, rjúfi hreinlega þing og boði til kosninga. Fari um landið og skýri sitt mál og ræði árangur ríkis­stjórnarinnar. Segi sem svo, að vitaskuld sé þetta mál erfitt og hafi valdið sér skaða, en hann vilji leggja öll spilin á borðið, hvetji aðra til að gera slíkt sama og leggi verk sín óhræddur í dóm kjósenda.“

Sigmundur neitaði í dag að hafa íhugað afsögn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýringu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjónanna Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Önnu Sigur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar ályktanir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eftir­farandi: Þann 13. maí 2016 skrifaði umboðs­maður hjónanna bréf til ríkis­skattstjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­framtöl...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár