Trump vill lögmann sinn sem dómsmálaráðherra til frambúðar

Todd Blanche var persónu­legur lögmaður Trump og tók tíma­bundið við ráðuneytinu eftir að Trump rak dómsmála­ráðherrann. Nú boðar forsetinn að hann muni festa stöðu Blanche sem dómsmála­ráðherra í sessi.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, sagðist í gær ætla að tilnefna fyrr­verandi einka­lögfræðing sinn sem dómsmála­ráðherra til frambúðar.

Todd Blanche gegnir nú starfi settur yfirmaður dómsmála­ráðuneytisins eftir að Trump rak Pam Bondi dómsmála­ráðherra í kjölfar gagnrýni á meðferð hennar á birtingu rann­sóknar­skjala varðandi kynferðis­afbrota­manninn Jeffrey Epstein.

Blanche, sem var áður næst­ráðandi í dómsmála­ráðuneytinu, hefur síðan sótt meinta óvini Trumps til saka, þar á meðal James Comey, fyrr­verandi forstjóra FBI.

Trump sagði gestum í kvöld­verði í Hvíta húsinu að hann hygðist formlega tilnefna Blanche í embættið á fimmtudag, samkvæmt myndefni sem embættis­maður í Hvíta húsinu deildi á samfélags­miðlum.

„Á morgun mun ég gefa fyrirmæli um ... að við ætlum að gera hann að fastráðnum dómsmála­ráðherra,“ sagði Trump í mynd­skeiðinu sem Dan Scavino, aðstoðar­starfsmanna­stjóri Trumps, deildi.

Blanche hefur stýrt dómsmála­ráðuneytinu á meðan það reynir að koma á umdeildri áætlun um að stofna 1,8 milljarða dala bótasjóð sem …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JH
    Jón Hermannsson skrifaði
    Grein með fyrirsögninni: Trump vill lögmann sinn sem dómsmálaráðherra til frambúðar.
    Hvað eigið þið við með "til frambúðar"? Mér finnst fyrirsögin villandi. Eigið þið við um aldur og ævi eða út kjörtímabilið?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár